Bergstaðastræti 16, Reykjavík
Hverfisgata 44, Reykjavík, á árunum 1975 til 1987. Ljósm.: Kristinn Guðmundsson. Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. KG-289. Sótt 11. febrúar 2025 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=1733196.
Hverfisgata 44 að nálgast áfangastað sinn við Bergstaðastræti 16 í Reykjavík í september 2007. Ljósm.: Reynir Adamsson.
Saga:
Í mars 1908 var virt til brunabóta hús sem Tryggvi Árnason trésmiður hafði byggt við Hverfisgötu og fékk síðar númerið 44 við götuna. Húsið var tvíloftað timburhús, byggt af binding. Þak og þrír útveggir voru klæddir plægðum borðum og járni. Niðri voru fjögur íbúðarherbergi, eldhús, búr og þrír fastir skápar, allt þiljað. Loft og veggir herbergja voru þiljaðir með striga og pappir, allt málað. Í tveimur herbergjanna voru há brjóstþil. Á hæðinni var einn oft og ein eldavél. Á öðru gólfi var sama herbergjaskipan og frágangur. Þar voru 2 ofnar og ein eldavél. Á þriðja gólfi voru 3 geymslurými og gangur. Rafleiðslupípur voru um allt hús og linoleumdúkur límdur og negldur á fyrsta gólfi. Kjallari með steinsteypugólfi var undir öllu húsinu og steinmilligerð eftir endilöngu. Hann var hólfaður í fjóra geymsluklega, gang og þvottahús með vatnspotti. Við vesturgafl var inn- og uppgönguskúr með kjallara, þaksvölum og veggsvölum á norðurhlið, byggður eins og húsið. Við suðurhlið var annar inn- og uppgönguskúr með kjalla og veggsvölum á vesturhlið, einnig byggður eins og húsið. Á sömu lóð var einlyft trésmíðahús fyrir sunnan húsið.
Grunnflötur hússins ásamt inngönguskúrunum tveimur var um 86,5 fermetrar.1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 22-22-1905 til 28-03.1911. Aðfnr. 736. Brunav.nr. 1181. Sótt 11. febrúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/736-bok-22-11-1905-til-28-03-1911-adfnr-736.pdf.
Í húsakönnun sem gerð var á húsum við hluta Hverfisgötu árið 2001 kemur fram að húsið hafi alla tíð verið sem íbúðarhús og útlit þess sé mjög upprunalegt. Undir þakskeggi var útskorið skraut og undir gluggum á efri hæð er samfellt vatnsbretti með skrautbandi undir. Þetta ytra séu áhrif frá nýklassís og húsið sé gott dæmi um íslensk timburhús frá fyrsta áratug 20. aldar. Þar kemur einnig fram að árið 1925 hafi Guðmundur H. Þorláksson byggingameistar teiknað einlyft bakhús úr steinsteypu á baklóð hússins. Það hús var stækkað árið 1951 og breytt í samkomusal. Í sal þessum var Hvítasunnusöfnuðurinn með samkomur um árabil og þar hafði kaffistofa Samhjálpar aðstöðu um tíma og þar var tónleikasalur Söngskólans í Reykjavík undir lok 20. aldar.2Nikulás Úlfar Másson og Helga Maureen Gylfadóttir (2001). Húsakönnun. Laugavegsreitir – miðsvæði. Reykjavík: Árbæjarsafn. Skýrsla nr. 85; M.a. Vísir, 27. árg., 257. tbl., bls. 4; Samhjálp. Saga Samhjálpar. Sótt 11. febrúar 2025 af https://www.samhjalp.is/sagan; M.a. Guðríður Á og Þuríður steppa og Guðmundur dansar ballet (1980, 7. nóvember). Dagblaðið, 6. árg., 253. tbl., bls. 16.
Um tíma bjó Páll Ísólfsson (1893-1974) tónskáld og organisti í húsinu og kenndi þar á orgel og píanó.3Tilkynning (1923, 17. maí). Vísir, 13. árg., 77. tbl., bls. 4.
Þegar húsið þurfti að víkja af Hverfisgötunni var ákveðið að flytja það að Bergstaðastræti 16 í Reykjavík. Þar stendur húsið enn, vel til haft og sómir sér vel, þó erfiðlega hafi gengið að flytja það vegna þrengsla á leiðinni.4Húsið komið á áfangastað (2007, 18. september). Vísir. Sótt 11. febrúar 2025 af https://www.visir.is/g/200770918001/husid-komid-a-afangastad.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 11. febrúar, 2025
Heimildaskrá
- 1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 22-22-1905 til 28-03.1911. Aðfnr. 736. Brunav.nr. 1181. Sótt 11. febrúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/736-bok-22-11-1905-til-28-03-1911-adfnr-736.pdf.
- 2Nikulás Úlfar Másson og Helga Maureen Gylfadóttir (2001). Húsakönnun. Laugavegsreitir – miðsvæði. Reykjavík: Árbæjarsafn. Skýrsla nr. 85; M.a. Vísir, 27. árg., 257. tbl., bls. 4; Samhjálp. Saga Samhjálpar. Sótt 11. febrúar 2025 af https://www.samhjalp.is/sagan; M.a. Guðríður Á og Þuríður steppa og Guðmundur dansar ballet (1980, 7. nóvember). Dagblaðið, 6. árg., 253. tbl., bls. 16.
- 3Tilkynning (1923, 17. maí). Vísir, 13. árg., 77. tbl., bls. 4.
- 4Húsið komið á áfangastað (2007, 18. september). Vísir. Sótt 11. febrúar 2025 af https://www.visir.is/g/200770918001/husid-komid-a-afangastad.
Deila færslu
Síðast uppfært 11. febrúar, 2025


