Fossagata 15, Reykjavík
Fossagata 15, Reykjavík, líklega skömmu eftir að húsið var flutt þangað. Úr gagnasafni Húsafriðunarnefndar.
Saga:
Í febrúar 1908 var brunavirt hús sem Guðrún Árnadóttir (1859-1938) ekkja hafði reist á lóð sinni Brautarholt á Bráðræðisholti í Reykjavík. Húsið stóð þar sem nú er bílastæði norðaustan Grandavegar 5.1Drífa Kristín Hjartardóttir, verkefnastjóri húsverndar Borgarsögusafni Reykjavíkur (2025, 21. janúar). Tölvupóstur.
Húsið var byggt af bindingi. Bæði útveggir og þak var járnklætt. Niðri í húsinu voru þrjú íbúðarherbergi, eldhús og 2 skápar, allt þiljað, klætt striga og málað. Þar voru tveir ofnar og ein eldavél. Uppi var eitt herbergi og framloft. Kjallari var undir öllu húsinu með steinsteyptu gólfi, en timburgólf var ofan á því hálfu. Í honum var eitt íbúðarherbergi, eldhús og einn fastur skápur, tveir geymsluklefar og gangur. Þar var einn ofn og ein eldavél. Í inngönguskúr við vesturgafl hússins voru 3 gangar og skápur. Samtals var grunnflötur hússins um 40 fermetrar.2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 22-11-1905 til 28-03-1911. Aðfnr. 736. Brunav.nr. 1175. Sótt 21. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/736-bok-22-11-1905-til-28-03-1911-adfnr-736.pdf.
Hjónin Guðrún Árnadóttir og Oddur Jónsson (1857-1902) hófu búskap í Brautarholti árið 1883 eða 1884, líklega í steinbæ sem var þar þá. Árið 1902 drukknaði Oddur og stóð Guðrún þá ein uppi með 7 börn, sem flest voru í ómegð.3Reykjavík og grend (1902, 5. júlí). Reykjavík, 3. árg., 15. tbl. 3, bls. 3; Minningarorð: Sigríður Oddsdóttir. Brautarholti, Reykjavík (1962, 18. ágúst). Alþýðublaðið, 43. árg., 186. tbl., bls. 2. Sex árum síðar byggði hún nýtt hús á lóð sinni.
Í manntali sem tekið var árið eftir að nýja húsið var reist sést að í Brautarholti bjó þá Guðrún Árnadóttir ásamt þremur börnum sínum. Þar bjó þá líka Ástríður (1888-1961) dóttir hennar ásamt Þorsteini Guðlaugssyni (1886-1968) manni sínum og einum syni þeirra. Auk þess bjó í Ingigerður Magnúsdóttir (f. 1860) í húsinu með syni sínum.4Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Manntal í Reykjavík 1909. 1. hluti: Aðalstræti – Bræðraborgarstígur. Sótt 21. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Manntol/M_1906-1910/1909/manntal-i-reykjavik-1909-1.-hluti.pdf.
Brautarholt yngra þurfti að víkja þegar Bráðræðisholtið var endurskipulagt. Árið 1989 var húsið flutt að Fossagötu 15 í Litla Skerjafirði, þar sem það kúrir enn í hógværð sinni innan um jafnaldra sína.
Leitarorð: Skerjafjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 21. janúar, 2025
Heimildaskrá
- 1Drífa Kristín Hjartardóttir, verkefnastjóri húsverndar Borgarsögusafni Reykjavíkur (2025, 21. janúar). Tölvupóstur.
- 2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 22-11-1905 til 28-03-1911. Aðfnr. 736. Brunav.nr. 1175. Sótt 21. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/736-bok-22-11-1905-til-28-03-1911-adfnr-736.pdf.
- 3Reykjavík og grend (1902, 5. júlí). Reykjavík, 3. árg., 15. tbl. 3, bls. 3; Minningarorð: Sigríður Oddsdóttir. Brautarholti, Reykjavík (1962, 18. ágúst). Alþýðublaðið, 43. árg., 186. tbl., bls. 2.
- 4Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Manntal í Reykjavík 1909. 1. hluti: Aðalstræti – Bræðraborgarstígur. Sótt 21. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Manntol/M_1906-1910/1909/manntal-i-reykjavik-1909-1.-hluti.pdf.
Deila færslu
Síðast uppfært 21. janúar, 2025

