Einarsnes 58, Reykjavík
Sölvhólsvegur 14 í Reykjavík, árið 2002. Heimild: Til sölu (2002, 21. apríl). Morgunblaðið, 90. árg., bls. C 15.
Einarsnes 58, Reykjavík, árið 2015. Heimild: https://fastinn.is/soluskra/722464.
Saga:
Árið 1905 byggði Páll Hafliðason (1857-1937) skipstjóri og síðar starfsmaður hjá trésmiðjunni Völundi hús við Sölvhólsgötu í Reykjavík. Húsið fékk síðar númerið 14 við götuna, en nefnt Pálshús eftir fyrsta eiganda sínum. Húsið stóð þar sem nú er bílastæði gegnt Lindargötu 13. Þegar húsið var virt til brunabóta í september 1905 var m.a. skráð í virðingabók:
Páll skipstjóri Hafliða hefur bygt einlyft hús með porti og risi á lóð sinni við Nýjabæjarlóð. Hús þetta er bygt af binding, klætt utan með plægðum 1“ borðum, pappa, listum og járni þar yfir, og með járnþaki á plægðri 1“ borða súð með pappa á milli. Innan á binding er pappír og millumgólf í báðum bitalögum, fyllt með sagi. Niðri eru 3 íbúðarherberfi, eldhús, búr og 1 fastur skápur sem alt er þiljað, og herbergin með striga og pappír á veggjum og loftum. Alt málað. Þaru er 2 ofnar og 1 eldavjel. Uppi eru 3 íbúðarherbergi, eldhús og geymsluherbergi, sem alt er þiljað og málað. Þar er 1 ofn og 1 eldavjel. Kjallari með steinsteypugólfi 3 ál. á hæð er undir öllu húsinu. …
Við vesturgafl er inngöngu skúr. Hann er bygður eins og húsið. Í honum eru 2 gangar og 1 fastur skápur.1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 02-04-1900 til 13.-11-1905. Aðfnr. 735. Brunav.nr.: 964. Sótt 14. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/735-bok-02-04-1900-til-13-11-1905-adfnr-735.pdf.
Grunnflötur hússins með inngönguskúrnum meðtöldum var um 55 fermetrar. Síðar var byggður geymslu- og þvottaskúr á lóðinni. Einnig var byggður bílskúr, kjallari hækkaður og gluggum breytt.2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 02-04-1900 til 13.-11-1905. Aðfnr. 735. Brunav.nr.: 964; Nikulás Úlfar Másson og Margrét Jónasdóttir (1999). Byggingasaga. Reykjavík: Árbæjarsafn. Skýrsla nr. 72.
Þegar manntal var gert árið 1910 bjó Páll í húsinu með Guðlaugu Ágústu Lúðvígsdóttur (1876-1962) konu sinni ásamt 9 börnum þeirra hjóna. Þá bjó Lúðvíg Alexíusson (1833-1919) faðir Guðlaugar hjá þeim. Í manntalinu kemur fram að þegar það var gert var Páll atvinnulaus og rúmfastur. Auk þess bjuggu hjónin Jón Ólafsson (1875-1957), sem vann við seglasaum, og Ólafía Guðmundsdóttir í húsinu.3Þjóðskjalasafn Íslands. Manntöl. Manntal 1910. Sótt 14. janúar 2025 af https://manntal.is.
Um miðja síðustu öld má sjá af blaðaauglýsingum að í húsinu hefur starfað í nokkur ár fasteignasalan Sala og samningar. Síðar var húsgagnaverkstæði í húsinu eða á lóð þess.4T.d.: Lítill sumarbústaður (1947, 13. júní). Vísir, 37. árg., 106. tbl., bls. 3; Íbúð (1947, 20. september). Morgunblaðið, 213. tbl., bls. 8; Ódýr húsgögn (1970, 28. febrúar). Vísir, 60. árg., 50. tbl., bls. 14.
Árið 2002 auglýstu Ríkiskaup húsið á lóðinni Sölvhólsgötu 14 í Reykjavík til sölu til brottflutnings eða niðurrifs.5Til sölu (2002, 21. apríl). Morgunblaðið, 90. árg., bls. C 15. Sama ár var húsið flutt á nýjan steinsteyptan kjallara á lóðinni númer 58 við Einarsnes í Litla Skerjafirði í Reykjavík.
Leitarorð: Skerjafjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 15. janúar, 2025
Heimildaskrá
- 1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 02-04-1900 til 13.-11-1905. Aðfnr. 735. Brunav.nr.: 964. Sótt 14. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/735-bok-02-04-1900-til-13-11-1905-adfnr-735.pdf.
- 2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 02-04-1900 til 13.-11-1905. Aðfnr. 735. Brunav.nr.: 964; Nikulás Úlfar Másson og Margrét Jónasdóttir (1999). Byggingasaga. Reykjavík: Árbæjarsafn. Skýrsla nr. 72.
- 3Þjóðskjalasafn Íslands. Manntöl. Manntal 1910. Sótt 14. janúar 2025 af https://manntal.is.
- 4T.d.: Lítill sumarbústaður (1947, 13. júní). Vísir, 37. árg., 106. tbl., bls. 3; Íbúð (1947, 20. september). Morgunblaðið, 213. tbl., bls. 8; Ódýr húsgögn (1970, 28. febrúar). Vísir, 60. árg., 50. tbl., bls. 14.
- 5Til sölu (2002, 21. apríl). Morgunblaðið, 90. árg., bls. C 15.
Deila færslu
Síðast uppfært 15. janúar, 2025

