Skerplugata 8, Reykjavík
Frakkastígur 4, Reykjavík. Ljósm. úr gagnasafni Húsafriðunarnefndar.
Skerplugata 8, Reykjavík, í júní 2022. Ljósm.: Ja.is.
Saga:
Í lok september 1903 var brunavirt hús sem Sigurgeir Sigurðsson skipstjóri hafði látið byggja á svonefndri Byggðarendalóð í Reykjavík. Húsið var timburhús með risi, kjallara og inngönguskúr og fékk síðar númerið 4 við Frakkastíg.1Þorsteinn Jónsson (2012). Reykvíkingar. Fólkið sem breytti Reykjavík úr bæ í borg, bls. 914. Reykjavík: Sögusteinn. Húsið stóð á horni Frakkastígs og Lindargötu, þar sem nú er fjölbýlishúsið Lindargata 39. Í virðingunni segir m.a.:
Hús þetta er byggt af bindingi, klætt utan með plægðum 1″ borðum, pappa og járni þar yfir og með járnþaki á plægðri 1″ borðasúð með pappa á milli og með pappa innaná binding. Niðri í húsi þessu eru 3 íbúðarherbergi, eldhús búr og gangur sem allt er þiljað og herbergin með pappa á veggjum og striga og pappír á loptum sem eru tvöföld, allt málað. Þar eru 2 ofnar og 1 eldavjel. Uppi er ekkert gjört. Kjallari er undir öllu húsinu …
Við vesturhlið húss þessa er byggður inngönguskúr af sama efni sem húsið sjálft, járnvarinn utan og þiljaður og málaður innan.2Borgaraskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 02-04-1900 til 13-11-1905 Aðfnr. 735. Brunav.nr. 776. Sótt 6. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/735-bok-02-04-1900-til-13-11-1905-adfnr-735.pdf.
Í manntali árið 1906 kemur fram að þar býr þá Sigurjón Guðmundsson (1868-1954) ásamt Aldísi Jónsdóttur (1867-1958) ráðskonu sinni og Ólöfu Ólafsdóttur (1887-1966) dóttur hennar. Jafnframt býr þar Steinn Jónsson (f. 1868) sjómaður og Herdís Sveinsdóttir (f. 1859) ráðskona hans.3Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Manntal í Reykjavík og Seltjarnarnesi 1906. Sótt 6. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Manntol/M_1906-1910/manntal-i-reykjavik-og-seltjarnarnesi-1906.pdf.
Þegar til stóð að byggja fjölbýlishús við Lindargötu þurfti Frakkastígur 4 að víkja. Var húsið þá flutt í Skerjafjörð eins og fleiri hús, sem voru fyrir í nýju skipulagi. Húsið var flutt að Skerplugötu 8 árið 1989. Það voru hjónin Sigríður Arnardóttir og Kristján Franklín Magnús sem stóðu að þeim flutningi. Valdimar Erlingsson húsasmíðameistari sá um flutning hússins fyrir þau. Inngönguskúrinn sem var á vesturhlið hússins var ekki fluttur með húsinu, en þegar húsið var komið á sinn nýja stað var byggður inngönguskúr við austurgafl hússins og síðar viðbygging við suðurhlið þess.4Valdimar Erlingsson (2020, 9. júní). Munnleg heimild; Teikningar af húsinu á teikningavef Reykjavíkurborgar. Enn stendur húsið við Skerplugötu og ber þess merki að vel er hlúð að því.
Leitarorð: Skerjafjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 10. janúar, 2025
Heimildaskrá
- 1Þorsteinn Jónsson (2012). Reykvíkingar. Fólkið sem breytti Reykjavík úr bæ í borg, bls. 914. Reykjavík: Sögusteinn.
- 2Borgaraskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 02-04-1900 til 13-11-1905 Aðfnr. 735. Brunav.nr. 776. Sótt 6. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/735-bok-02-04-1900-til-13-11-1905-adfnr-735.pdf.
- 3Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Manntal í Reykjavík og Seltjarnarnesi 1906. Sótt 6. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Manntol/M_1906-1910/manntal-i-reykjavik-og-seltjarnarnesi-1906.pdf.
- 4Valdimar Erlingsson (2020, 9. júní). Munnleg heimild; Teikningar af húsinu á teikningavef Reykjavíkurborgar.
Deila færslu
Síðast uppfært 10. janúar, 2025

