Laufásvegur 31, Árbæjarsafni, Reykjavík
Laufásvegur 31, Reykjavík, árið 1972. Hafinn er undirbúningur fyrir flutning hússins. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Borgarsögusafn. Ljósmyndasafn. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 710.
Laufásvegur 31, Reykjavík. Árbæjarsafn. Laugarásvegur 31. Sótt 4. nóvember 2024 af https://app.arbaejarsafn.is/hus/168d4326-aa36-4563-92cf-1f28c36912eb.
Saga:
Árið 1972 var hús sem stóð við Laufásveg 31 í Reykjavík flutt í Árbæjarsafn í Reykjavík. Á vef safnsins segir þetta um húsið:
Húsið sem áður stóð við Laufásveg 31 var reist 1902. Það er timburhús, klætt bárujárni, og tilheyrir kynslóð sveitser-húsa sem voru flutt tilsniðinn frá Noregi á síðari hluta 19. og fyrri hluta 20. aldar. Fyrsti eigandi þess var Hannes Thorarensen kaupmaður og bjó fjölskylda hans þar til 1967 þegar breska ríkið keypti húsið og gaf Árbæjarsafni en til stóð að reisa nýtt sendiráð á lóðinni. Húsið var flutt á Árbæjarsafn árið 1972 en nýtt sendiráð reis ekki fyrr en um aldamótin 2000 og þá í samvinnu við þýska sendiráðið. Húsið var upphaflega embættisbústaður borgarminjavarðar, sem var jafnframt forstöðumaður safnsins, og hefur á seinni árum verið nýtt sem starfsmannahús.1Árbæjarsafn. Laufásvegur 31. Sótt 3. nóvember 2024 af https://app.arbaejarsafn.is/hus/168d4326-aa36-4563-92cf-1f28c36912eb.
Ekki er vitað hver teiknaði húsið, „… en talið er að Stefán Eiríksson hinn oddhagi hafi skorið út allt prýði þess.“2Hörður Ágústsson (2000). Íslensk byggingararfleifð II. Varðveisluannáll 1863-1990. Verndunaróskir, bls. 182. [Reykjavík:] Húsafriðunarnefnd ríkisins.
Þegar húsið var virt til brunabóta í nóvember 1902 er húsið sagt vera einloftað með porti, risi og kvisti. Það var byggt af bindingi og klætt utan með járni. Niðri voru 3 íbúðarherbergi, eldhús, búr og gangur. Herbergin voru öll þiljuð með gólfborðum, striga og pappír. Öll voru þau máluð. Uppi voru 5 íbúðarherbergi og gangur, allt þiljað og málað. Niðri voru 3 ofnar og ein eldavél en uppi voru 2 ofnar. Undir öllu húsinu var kjallari með steinsteyptu gófli. Inngönguskúr var við austurhlið hússins, þiljaður að innan og málaður. Í honum var borð á tvo vegu með skápum undir.
Geymsluhús var á lóðinni. Það var með timburgólfi, hólfað í þrjú rými og eitt salerni.3Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunavirðingar 1900 til 1905. Aðf.nr. 735. Sótt 3. nóvember 2024 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/735-bok-02-04-1900-til-13-11-1905-adfnr-735.pdf.
Hannes Skúlason Thorarensen (1864-1944) kom „… til Reykjavíkur 1879 og gerðist verslunarþjónn hjá H. Th. A. Thomsen. Starfaði hann við Thomsensverslun í 28 ár og var þar verslunarstjóri fimm síðustu árin. Þegar Sláturfjelag Suðurlands var stofnað 1907, var hann ráðinn forstjóri þess, og gegndi því starfi til 1924. Þá gerðist hann forstjóri Vínverslunar Ríkisins og var það til ársloka 1935.“4Sigurður Nordal (1944, 21. janúar). Hannes Thorarensen forstjóri. Morgunblaðið, 31. árg., 14. tbl., bls. 8.
Hannes gekk að eiga Louise Thorarensen (1876-1967), fædd Bartels, árið 1901 og bjuggu þau allan sinn búskap á Laugarásvegi 31. Húsinu fylgdi „… mjög stór lóð um mörg ár, þar sem Hannes hafði bæði sauðfé og hross og mikla garðrækt, en frú Louise hafði mikið yndi af garðræktinni og ekki síður af blómarækt, og var hún um skeið ein mesta rósaræktarkona bæjarins. Umsvif voru því mikil á heimili þeirra hjóna um miörg ár, sízt minni en þá gerðist á stórum heimilum til sveita. Þangað lagði fjöldi utan- og innanbæjarmanna leið sína um mörg ár og var ávall’t veittur hinn bezti beini.“5Hákon Bjarnason (1967, 22. ágúst). Louise Thorarensen – Minningarorð -. Morgunblaðið, 54. árg., 187. tbl., bls. 17.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 4. nóvember, 2024
Heimildaskrá
- 1Árbæjarsafn. Laufásvegur 31. Sótt 3. nóvember 2024 af https://app.arbaejarsafn.is/hus/168d4326-aa36-4563-92cf-1f28c36912eb. ↩︎
- 2Hörður Ágústsson (2000). Íslensk byggingararfleifð II. Varðveisluannáll 1863-1990. Verndunaróskir, bls. 182. [Reykjavík:] Húsafriðunarnefnd ríkisins. ↩︎
- 3Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunavirðingar 1900 til 1905. Aðf.nr. 735. Sótt 3. nóvember 2024 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/735-bok-02-04-1900-til-13-11-1905-adfnr-735.pdf. ↩︎
- 4Sigurður Nordal (1944, 21. janúar). Hannes Thorarensen forstjóri. Morgunblaðið, 31. árg., 14. tbl., bls. 8. ↩︎
- 5Hákon Bjarnason (1967, 22. ágúst). Louise Thorarensen – Minningarorð -. Morgunblaðið, 54. árg., 187. tbl., bls. 17. ↩︎
Deila færslu
Síðast uppfært 4. nóvember, 2024

