Byggðavegur 142, Akureyri
Vélahúsið dregið um 200 m leið upp á lóðina við Byggðaveg 142 á Akureyri. Sótt 27. október 2024 af https://www.akureyri.net/is/menning/otrulegt-en-satt-saga-akureyrar-i-frodlegu-ljosi.
Byggðavegur 142, Akureyri, í ágúst 2021. Sótt 27. október 2024 af https://fastinn.is/soluskra/1004755#images.
Saga:
Húsið sem nú stendur við Byggðaveg 142 á Akureyri er sagt byggt árið 1898 í Fasteignaskrá. Það hefur þó ekki alltaf staðið á þessum stað, enda eru allt í kringum það mun yngri hús, flest byggð á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar.
Húsið númer 142 var byggt annað hvort árið 1898 eða 1900 á athafnasvæði Tóvélaverksmiðjana (síðar Gefjun) á Gleráreyrum, sem hófu starfsemi 1897. Húsið var byggt sem íbúðarhús af eða fyrir Aðalstein Halldórsson (1869-1941) forstjóra Tóvélaverksmiðjanna.1Jón Hjaltason (2021). Ótrúlegt en satt. Saga Akureyrar í öðruvísi ljósi, stundum skemmtilegu, stundum sorglegu, jafnvel vandræðalegu en alltaf fróðlegu, bls. 140. Akureyri: Völuspá útgáfa í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri; Arnór Bliki Hallmundsson (2015, 30. júlí). Hús dagsins: Byggðavegur 142. Sótt 27. október 2024 af https://arnorbl.blog.is/blog/arnorbl/entry/1875021/.
Í Fasteignamati árið 1918 er húsinu lýst sem einlyftu með porti og risi, á kjallara með pappaklæddu þaki. Húsið er sagt 8,8×7,5m að stærð auk skúra með 2,6×1,1m við norðurstafn og 2,1×1,3m við suðurstafn og í húsinu eru talin 9 herbergi auk geymslu. Húsið er sagt leigt Steindóri Jóhannessyni, en eigandi er væntanlega Gefjun.2Arnór Bliki Hallmundsson (2015, 30. júlí).
Árið 1956 bjó Johan Jacobsen (1895-1985) í húsinu. Hann var Norðmaður sem kom til Íslands árið 1927 til að vinna í síldarbræðslunni í Krossanesi. Eftir að sú starfsemi lagðist af vann hann á Gefjun í áratugi. Hann fékk leyfi til að flytja gamla Tóvélahúsið á nýjan grunn sem hann hafði gert á lóð við Byggðaveg 142. Húsið var flutt í heilu lagi í janúar 1957 um 200 m leið og sá Skapti Áskelsson í Slippnum um að það verk gekk áfallalaust þótt upp brekku væri að fara. Líklega hefur húsið verið múrhúðað þegar það kom á nýja staðinn. Einnig hefur stór gluggi verið settur á framhlið hússins. Þrátt fyrir þessar breytingar sést vel að hús þetta á sér aðrar rætur en nærliggjandi hús.3Jón Hjaltason (2021), bls. 140; Arnór Bliki Hallmundsson (2015, 30. júlí).
Í umfjöllun sinni um húsið minnir Arnór Bliki Hallmundsson á að hús þetta hafi sérstakt sögulegt gildi í atvinnusögu Akureyrar, því það er eina húsið sem eftir stendur frá upphafi Tóvélaverksmiðjana á Akureyri og tekur höfundur undir að varðveislugildi hússins er mikið.4Arnór Bliki Hallmundsson (2015, 30. júlí).
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 28. október, 2024
Heimildaskrá
- 1Jón Hjaltason (2021). Ótrúlegt en satt. Saga Akureyrar í öðruvísi ljósi, stundum skemmtilegu, stundum sorglegu, jafnvel vandræðalegu en alltaf fróðlegu, bls. 140. Akureyri: Völuspá útgáfa í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri; Arnór Bliki Hallmundsson (2015, 30. júlí). Hús dagsins: Byggðavegur 142. Sótt 27. október 2024 af https://arnorbl.blog.is/blog/arnorbl/entry/1875021/.
- 2Arnór Bliki Hallmundsson (2015, 30. júlí).
- 3Jón Hjaltason (2021), bls. 140; Arnór Bliki Hallmundsson (2015, 30. júlí).
- 4Arnór Bliki Hallmundsson (2015, 30. júlí).
Deila færslu
Síðast uppfært 28. október, 2024

