Pöntunarfélag Svalbarðseyrar 1919-1931. Hluti myndar. Ljósm.: Hallgrímur Einarsson. Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. H2-29. Sótt 23. október 2024 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=1592394.
Pöntunarfélag Svalbarðseyrar 1919-1931. Hluti myndar. Ljósm.: Hallgrímur Einarsson. Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. H2-29. Sótt 23. október 2024 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=1592394.

Safnasafnið, Svalbarðsstrandarhreppi

Heiti: Pöntunarfélagið - Kaupfélaið - Gamla-búð - Safnasafnið
Byggingarár: 1900-1901
Upphafleg notkun: Verslunar- og íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Stefán Stefánsson (og Guðmundur Pétursson ?)
Aðrir eigendur:
1901: Stefán Stefánsson og Guðmundur Pétursson
1904: Guðmundur Pétursson
1911: Pöntunarfélag Svalbarðseyrar
1940-1964: Kaupfélag Svalbarðseyrar
2003: Íbúðalánasjóður / Svalbarðsstrandarhreppur
2004: Safnasafnið
Upphafleg staðsetning: Svalbarðseyri, Svalbarðsstrandarhreppi
Flutt: 2006 að Safnasafninu Svalbarðsströnd
Hvernig flutt: Í heilu lagi
2

Gamla-Búð tilbúin til flutnings árið 2006 á Svalbarðseyri. Ljósm. úr gagnasafni Húsafriðunarnefndar.

Safnasafnið 3

Safnhús Safnasafnsins. Gamla-Búð er til hægri. Svalbarðsstrandarhreppur. Sótt 23. október 2024 af https://www.svalbardsstrond.is/is/mannlifid/myndir/svalbardsstrond-i-myndum/080710_h_mg_1503.

Saga:

Árið 1901 byggði Stefán Stefánsson (1873-1964) í Tungu á Svalbarðsströnd (síðar bóndi á Varðgjá og Svalbarði) verslunar- og íbúðarhús ofan við bryggjuna á Svalbarðseyri. Verslunin var á neðri hæð, en Stefán bjó í risinu. Hafi Guðmundur Pétursson (1876-1966) frá Efri-Dálksstöðum ekki verið félagi Stefán frá upphafi kom hann a.m.k. mjög snemma inn í reksturinn. Ráku þeir félagar verslunina saman í þrjú ár, en þá dró Stefán sig út úr verslunarrekstrinum og Guðmundur hélt verslunarrekstrinum áfram næstu árin. Þegar Guðmundur flutti til Akureyrar árið 1909 tók bróðir hans, Ásgeir Pétursson (1875-1942) verslunina til leigu í eitt ár.1Benjamín Kristjánsson (1964, 3. júlí). Stefán Stefánsson bóndi Svalbarði. Íslendingur, 50. árg., 27. tbl., bls. 5; Stefán Stefánsson (1946, 20. nóvember) Merkur maður sjötugur. Dagur, 29. árg., 53. tbl., bls. 3; Gagnasafn Húsafriðunarnefndar.

Árið 1911 keypti Pöntunarfélag Svalbarðseyrar húsið og árið 1940 tók Kaupfélag Svalbarðseyrar við húsinu. Þegar Kaupfélagið hætti starfsemi í húsinu 1964 bjuggu ýmis eigendur í húsinu og höfðu þar margvíslegan rekstur, m.a. eggjabú, en frá árinu 1997 stóð húsið autt og leið fyrir viðhaldsleysi. Íbúðalánasjóður eignaðist húsið 2003 en framseldi það Svalbarðsstrandarhreppi til eignar og ráðstöfunar. Árið eftir fékk Safnasafnið húsið að gjöf frá hreppnum og árið 2006 var húsið flutt á lóð safnsins við Grenivíkurveg (Þjóðveg 1) þar sem það er nú nýtt undir starfsemi safnsins ásamt húsi sem áður var Þinghús og Samkomuhús hreppsins.

Áður en húsið var flutt var það styrkt með skábitum að utan og skorsteinn tekinn af því. Á lóð safnins beið þess steypt jarðhæð og síðar var húsið tengt við gamla Þinghúsið með tengibyggingu.2Gagnasafn Húsafriðunarnefndar.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 23. október, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 23. október, 2024