Karlsstaðir, Vöðlavík. Héraðsskjalasafn Austfirðinga. Ljósmyndasafn. Mynd nr. 60-2629. Sótt 28. september 2024 af https://myndir.heraust.is/fotoweb/archives/5007-Mannl%C3%ADf-og-sta%C3%B0ir/Mannlif_og_stadir/60-2629.jpg.info.
Karlsstaðir, Vöðlavík. Héraðsskjalasafn Austfirðinga. Ljósmyndasafn. Mynd nr. 60-2629. Sótt 28. september 2024 af https://myndir.heraust.is/fotoweb/archives/5007-Mannl%C3%ADf-og-sta%C3%B0ir/Mannlif_og_stadir/60-2629.jpg.info.

Karlsstaðir, Vöðlavík, Fjarðabyggð

Heiti: Karlstaðir - Karlsstaðir
Byggingarár: 1890-1930 ?
Horfið: ?
Upphafleg notkun: Íbúðarhús ?
Fyrsti eigandi: ?
Aðrir eigendur:
1933: Guðmundur Guðnason og Guðný Þórunn Jónsdóttir
Upphafleg staðsetning: Hrúteyri við Reyðarfjörð, í landi Sléttu
Flutt: 1933 að Karlsstöðum í Vöðlavík

Saga:

Á Hrúteyri á suðurströnd Reyðarfjarðar, í landi Sléttu, myndaðist vísir að þéttbýli eftir að eyrin var gerð að löggildri verslunarhöfn árið 1883. Helsti framkvæmdamaðurinn þar var Peter N. Randulff, sem

… fékk borgarabréf sem kaupmaður á Hrúteyri árið 1887 og þar byggði hann íbúðarhús 1890 og stækkaði það 1895. Á því ári byggði hann þarna einnig nýtt síldarhús. Randulff hafði mikið umleikis um skeið því að auk verslunarinnar stundaði hann síldveiðar, oft í félagi við Klausen á Eskifirði, og hafði skip sem hét Hrúteyri í förum milli Noregs og Íslands. Í tíð Randulffs á Hrúteyri byggðist þar upp vísir að þorpi og í manntali frá 1901 er getið um að þar hafi verið fjögur íbúðarhús.1Hreinn Ragnarsson og Steinar J. Lúðvíksson (ritstjórar) (2007). Síldarstaðir á 19. öld. Í Silfur hafsins. Gull Íslands. Síldarsaga Íslendinga. 1. bindi, bls. 153. Reykjavík: Nesútgáfan.

„Á eyrinni bjuggu milli 40-50 manns þegar flest var. Þessari útgerð var lokið snemma í byrjun 20. aldar, húsin tekin niður og flutt.“2Guðný Zoëga o.fl. (2004). Fornleifaskráning vegna aðal- og deiliskipulags í Fjarðabyggð, bls. 99. Rannsókna­skýrslur 2004/27. Byggðasafn Skagfirðinga. Búseta mun hafa verið á eyrinni fram um 1930.3Ármann Halldórsson, Sigmar Magnússon og Þorsteinn Bergsson (1974). Sveitir og jarðir í Múlaþingi, III. bindi, bls. 170. Búnaðarsamband Austurlands.

Eitt þeirra húsa sem stóð á Hrúteyri, líklega eitt íbúðarhúsanna, var flutt að Karlsstöðum í Vöðlavík árið 1933. Þá bjó þar Guðmundur Guðnason (1883-1971) ásamt seinni konu sinni Guðnýju Þórunni Jónsdóttur (1893-1956). Þegar hún lést árið 1956 flutti Guðmundur til sonar síns í Hafnarfirði.

Steyptur húsgrunnur síðasta íbúðarhússins á Karlsstöðum árið 2020. Ljósm.: Guðný Zoëga. Heimild: Guðný Zoëga (2021). Vöðlar, Ímastaðir og Karlstaðir í Vöðlavík – fornleifaskráning, bls. 51. Rannsóknaskýrslur Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum 5/2021.

Húsið var járnklætt, ein hæð og loft með súð, 3 herbergi og eldhús niðri, en 2 herbergi uppi.4Ármann Halldórsson, Sigmar Magnússon og Þorsteinn Bergsson (1974), bls. 88; Minning. Vilhjálmur Jónsson. Ímastöðum (1968, 25. október). Íslendingaþættir Tímans, 1. árg., 10. tbl., bls. 11.

Þegar fornleifar voru skráðar í Vöðlavík sumarið 2020 mátti sjá steinsteyptan grunn hússins, 6 x 7 m að grunnfleti.5Guðný Zoëga (2021). Vöðlar, Ímastaðir og Karlstaðir í Vöðlavík – fornleifaskráning, bls. 52. Rannsóknaskýrslur Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum 5/2021.

Þess má geta á Karlsstöðum hefur Ferðafélag Fjarðamanna reist skála.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 1. október, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 1. október, 2024