Fossgata 7, Seyðisfirði
Saga:
Árið 1923 seldi Jóhann Sigvaldason (1851-1940) útvegsbóndi Jóhanni Hanssyni (1884-1956) hið myndarlega hús sitt við Hafnargötu 6 á Seyðisfirði, sem nefnt var Framhús og byggt var 1906. Skilyrði fyrir sölunni var að hann og kona hans hefðu afnot af einu herbergi á loftinu á meðan þau lifðu. „Í stað þessa fyrirkomulags innréttaði Jóhann Hansson handa þeim stofu og eldhús í pakkhúsi sem stóð hinum megin götunnar og tilheyrði Framhúsinu. Þetta hús var kallað Litla-Framhús.“1Þóra Guðmundsdóttir (2021). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, 2. útg., bls. 212. Seyðisfjörður: Seyðisfjarðarkaupstaður. Ekki er vitað hvenær pakkhús þetta var byggt. Þess má geta að Framhús fór mjög illa þegar aurskriða lenti á húsinu 18. desember 2020 og hefur nú (2024) verið fjarlægt.
Þegar gömlu hjónin voru látin árið 1939 notaði Jóhann litla húsið til að lengja lítið steinhús sem hann átti við Fossgötu 7. Það hús hafði bróðir Jóhanns, Kristján Hansson, byggt árið 1921. Timburhúsið var byggt við innendann á húsinu við Fossgötu. Þegar þetta var gert leigði Hansína systir Jóhanns húsið og bjó þar með fjölskyldu sinni. Síðar keypti Hansína og maður hennar, Kristjón Sigurðsson, húsið.2Þóra Guðmundsdóttir (2021), bls. 193 og 212.
Í bókinni Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar kemur fram að húsið við Fossgötu hafi verið brunavirt árið 1938 og í þeirri virðingu verður ekki betur séð en búið sé að lengja gamla steinhúsið með viðbyggingu úr timbri sem var 5,4 m á lengd og 6,1 m á breidd. Viðbyggingin var úr timbri, pappa og járnvarin, þiljuð að innan með panel og skilrúmsborðum, sem voru máluð og veggfóðruð.3Þóra Guðmundsdóttir (2021), bls. 202. Ekki er ósennilegt að virðingin hafi einmitt farið fram vegna þess að byggt hafði verið við húsið og húsið því flutt 1938.
Því má bæta við að Jóhann var kvæntur Jónínu Stefánsdóttur (1892-1971). Hann lærði ungur vél- og járnsmíði í Noregi og Danmörku. Hann setti á stofn vélsmiðju á Seyðisfirði sem tók til starfa 1906, sem bar nafn hans, og þótti ein sú fullkomnasta á landinu og var mikil lyftistöng fyrir atvinnulíf Seyðisfjarðar.4Sjötugur í dag: Jóhann Hannesson [svo] Seyðisfirði (1954, 21. maí). Morgunblaðið, 41. árg., 114. tbl., bls. 7.
Leitarorð: Seyðisfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 23. september, 2024
Heimildaskrá
- 1Þóra Guðmundsdóttir (2021). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, 2. útg., bls. 212. Seyðisfjörður: Seyðisfjarðarkaupstaður.
- 2Þóra Guðmundsdóttir (2021), bls. 193 og 212.
- 3Þóra Guðmundsdóttir (2021), bls. 202.
- 4Sjötugur í dag: Jóhann Hannesson [svo] Seyðisfirði (1954, 21. maí). Morgunblaðið, 41. árg., 114. tbl., bls. 7.
Deila færslu
Síðast uppfært 23. september, 2024