Húsið lengst til hægri á þessari mynd er Andrésarhús eða Austurvöllur, síðar Skúlagata 13. Ljósmyndasafn Stykkishólms. Mynd nr. 3458. Sótt 6. september 2024 af https://ljosmyndasafn.stykkisholmur.is/photo.asp?ID=3458&Nr=1&texti=Sk%FAlagata&flokkur=&ljosmyndari=&PageIndex=1.
Húsið lengst til hægri á þessari mynd er Andrésarhús eða Austurvöllur, síðar Skúlagata 13. Ljósmyndasafn Stykkishólms. Mynd nr. 3458. Sótt 6. september 2024 af https://ljosmyndasafn.stykkisholmur.is/photo.asp?ID=3458&Nr=1&texti=Sk%FAlagata&flokkur=&ljosmyndari=&PageIndex=1.

Skúlagata 13, Stykkishólmi

Heiti: Ytribær - Andrésarhús - Austurvöllur – Fögruvellir – Sólbakki
Byggingarár: <1916
Brann: 1992
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Júlíus Sigurðsson og Guðrún Marta Skúladóttir
Aðrir eigendur:
1921: Andrés Hjörleifur Grímúlfsson og Jóhanna Kristín Bjarnadóttir
1926: Steinunn Indriðadóttir
Upphafleg staðsetning: Fagurey á Breiðafirði (Sveitarfélagið Stykkishólmur)
Flutt: 1921 að Skúlagötu 13, Stykkishólmi

Saga:

Hjónin Júlíus Sigurðsson (1877-1943) og Guðrún Marta Skúladóttir (1880-1954), sem var frá Fagurey á Breiðafirði, giftu sig í upphafi 20. aldar og hófu sín hjúskaparár í Fagurey, þar sem þau reistu sér timburhús sem kallaðist Ytribær. „Í fasteignamati 1916-1918 segir um húsið: „Hús og mannvirki, sem ábúendur eiga eru: Timburhús járnvarið 10×6 al. Hæð 7 al. Með kjallara 6×4 al. 2 heyhlöður og 3 fjárhús.“”1Elín Ósk Hreiðarsdóttir fornleifafræðingur (2022, 5. október). Tölvupóstur. Hjónin fluttu til Hrappseyjar um 1920 og var þá húsið sem þau byggðu flutt í Stykkishólm, en enn sést grunnur þess í Fagurey.2Elín Ósk Hreiðarsdóttir fornleifafræðingur (2022, 5. október). Tölvupóstur.

Húsið keyptu hjónin Andrés Hjörleifur Grímúlfsson (1859-1929) og Jóhanna Kristín Bjarnadóttir 1867-1952), sem búið höfðu í Hrappsey, en voru að flytja til Stykkishólms. Þau fluttu í húsið árið 1921, sem hafði verið reist í svokallaðri Maðkavík í Stykkishólmi (síðar númer 13 við Skúlagötu).3Bragi S. Jósepsson (2004). Eitt stykki hólmur eða Stykkishólmsbók hin skemmri, bls. 594. [Stykkishólmur:] Mostrarskegg; Jón Guðnason (1976). Íslenzkar æviskrár frá landnámstímum til ársloka 1965, bls. 14. Reykjavík: Hið íslenzka bókmenntafélag.

Eftir að húsið var endurbyggt í Stykkishólmi 1921 var það fyrst nefnt Andrésarhús en frá 1924 gekk það einnig undir nafninu Austurvöllur. Þá voru einnig notuð nöfnin Fögruvellir og Sólbakki, en bæði þessi nöfn komu fyrir í fasteignamati en aldrei í sóknarmanntali.4Bragi S. Jósepsson (2004), bls. 594.

Skúlagata 13 eftir bruna í janúar 1992. Ljósm.: Árni Helgason. Ljósmyndasafn Stykkishólms. Mynd nr. 499. Sótt 6. september 2024 af https://ljosmyndasafn.stykkisholmur.is/photo.asp?ID=499&Nr=5&texti=Sk%FAlagata&flokkur=&ljosmyndari=&PageIndex=1.

Andrés flutti ásamt stórri fjölskyldu sinni úr Stykkishólmi árið 1926 og flutti þá Steinunn Indriðadóttir (1871-1963) í húsið ásamt hálfstálpuðum syni sínum.5Bragi S. Jósepsson (2004), bls. 594.

Húsið stóð lengi óbreytt en í fasteignamati frá 1940 kemur fram að húsið hafði verið stækkað verulega og var eftir breytingu fullar tvær hæðir með valmaþaki. Húsið brann árið 1992.6Bragi S. Jósepsson (2004), bls. 596; Ægir Jóhannsson (2010, 2. maí). Tölvupóstur.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 6. september, 2024

Heimildaskrá

  • 1
    Elín Ósk Hreiðarsdóttir fornleifafræðingur (2022, 5. október). Tölvupóstur.
  • 2
    Elín Ósk Hreiðarsdóttir fornleifafræðingur (2022, 5. október). Tölvupóstur.
  • 3
    Bragi S. Jósepsson (2004). Eitt stykki hólmur eða Stykkishólmsbók hin skemmri, bls. 594. [Stykkishólmur:] Mostrarskegg; Jón Guðnason (1976). Íslenzkar æviskrár frá landnámstímum til ársloka 1965, bls. 14. Reykjavík: Hið íslenzka bókmenntafélag.
  • 4
    Bragi S. Jósepsson (2004), bls. 594.
  • 5
    Bragi S. Jósepsson (2004), bls. 594.
  • 6
    Bragi S. Jósepsson (2004), bls. 596; Ægir Jóhannsson (2010, 2. maí). Tölvupóstur.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 6. september, 2024