Nýibær, Hofsósi
Saga:
Húsið Nýibær á Hofsósi, sem nú stendur sunnan Norðurbrautar, austan við Grund, var upphaflega byggt í landi Brekku, austan við hana og þá nefnt Austur-Brekka.1Katrín Gunnarsdóttir (2001, febrúar). Grafarós og Hofsós. Fornleifaskráning, ekkert bls.tal. Byggðasafn Skagfirðinga – Rannsóknaskýrslur nr. 5; Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason, Kári Gunnarsson og Kristján Eiríksson (2021). Byggðasaga Skagafjarðar. 10, Hofsós, Grafarós, Haganesvík, Drangey og Málmey, bls. 142. Sauðárkróki: Sögufélag Skagfirðinga.
Upphaflega var Nýibær torfbær sem stóð austan við Brekku, var austurveggur Brekku sem var all þykkur, vesturveggur Nýjabæjar, austurveggur Brekku var síðan steinsteyptur myndaðist þá smá sund á milli húsana. Síðan var byggt timburhús ofan á torfbæinn, og var austasti hluti þess skáli úr torfi.2Katrín Gunnarsdóttir (2001, febrúar).
Árið 1935 eða 1938 var timburhúsið flutt í flekum á þann stað sem það stendur enn. Heimildum ber ekki saman um hvenær húsið var flutt, en í fasteignaskrá er húsið sagt byggt árið 1936 og er talið líklegt að þá sé miðað við flutningsárið, eins og títt er.
(Kristinn) Guðni Þórarinsson (1888-1967) og seinni kona Jóhanna Ragnheiður Jónasdóttir (1889-1965) hófu búskap í Nýjabæ árið 1930 og bjuggu þar ævina á enda. Þau hafa líklega staðið fyrir því að bærinn var fluttur.3Katrín Gunnarsdóttir (2001, febrúar); Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason, Kári Gunnarsson og Kristján Eiríksson (2021), bls. 145.
Þess má geta að listaverkið Hátíð var gefið Hofsóskirkju árið 1991 í aldarminningu þeirra hjóna. Börn þeirra og fjölskyldur þeirra gáfu kirkjunni verkið.4Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason, Kári Gunnarsson og Kristján Eiríksson (2021), bls. 44
Leitarorð: Skagafjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 30. ágúst, 2024
Heimildaskrá
- 1Katrín Gunnarsdóttir (2001, febrúar). Grafarós og Hofsós. Fornleifaskráning, ekkert bls.tal. Byggðasafn Skagfirðinga – Rannsóknaskýrslur nr. 5; Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason, Kári Gunnarsson og Kristján Eiríksson (2021). Byggðasaga Skagafjarðar. 10, Hofsós, Grafarós, Haganesvík, Drangey og Málmey, bls. 142. Sauðárkróki: Sögufélag Skagfirðinga.
- 2Katrín Gunnarsdóttir (2001, febrúar).
- 3Katrín Gunnarsdóttir (2001, febrúar); Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason, Kári Gunnarsson og Kristján Eiríksson (2021), bls. 145.
- 4Hjalti Pálsson, Egill Bjarnason, Kári Gunnarsson og Kristján Eiríksson (2021), bls. 44
Deila færslu
Síðast uppfært 30. ágúst, 2024