Ártún, Tálknafirði
Ártún á núverandi stað. Ljósm. sótt 18. ágúst 2024 af hópnum Tálknafjörður Tálknfirðingar myndir á Facebook.
Ártún á núverandi stað árið 2018. Ljósm.: Gunnlaugur Björn Jónsson.
Saga:
Húsið Ártún í Tálknafirði er líklega að stofni til elsta húsið í Tálknafjarðarbæ. Samkvæmt upplýsingum úr húsaskráningu sem gerð var í Tálknafirði árið 2019 var það upphaflega byggt í landi Eyrarhúsa miklu vestar í bænum árið 1896.
Erfitt er að átta sig á íbúum Eyrarhúsa og eignarhaldi því líklega hefur þar verið að minnsta kosti tvíbýli og sumir eigendur eða íbúar hafa stoppað stutt við. Bæirnir gengu einnig undir ýmsum nöfnum, t.d. Ytri-Eyrarhús, Innrihús og Sveinseyrarhús, sem flækir einnig málið.
Þegar nýtt íbúðarhús var byggt á Eyrarhúsum árið 1950 var gamla íbúðarhúsið flutt inn í Tunguþorp. Efri hlutinn var var tekinn niður og endurreistur. Neðri hlutinn var skúr sem stóð við Eyrarhús, var honum velt á tunnum uppp á vörubílspall og fluttur í heilu lagi. Síðan byggt portbyggt ris á sinn hvorn hluta með tveimur göflum.
Það voru hjónin Guðrún Árný Sigurðardóttir (1908-1994) og Sigurður Ágúst Einarsson (1909-1991) sem stóðu að þessum flutningi. Sigurður hannaði allar breytingar á húsinu sjálfur en naut aðstoðar Þórarins Jónssonar við bygginguna. Því má segja að öll neðri hæð hússins sé gamla Eyrarhúsið.1Gunnlaugur Björn Jónsson (2019). Húsaskráning í Tálknafirði. Úr gagnasafni Minjastofnunar Íslands; Gunnlaugur Björn Jónsson (2024, 16. ágúst). Tölvupóstur; Sögur og sagnir (2019, 20. febrúar). Tunga, Hóll og Sveinseyri. Sótt 18. ágúst 2024 af https://sogurogsagnir.is/sagnabrunnur/tunga-holl-og-sveinseyri/; Lýður Björnsson (2009). Tálknafjörður um aldamótin 1900. Árbók Barðastrandarsýslu 2009, bls. 25-73.
Leitarorð: Tálknafjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 19. ágúst, 2024
Heimildaskrá
- 1Gunnlaugur Björn Jónsson (2019). Húsaskráning í Tálknafirði. Úr gagnasafni Minjastofnunar Íslands; Gunnlaugur Björn Jónsson (2024, 16. ágúst). Tölvupóstur; Sögur og sagnir (2019, 20. febrúar). Tunga, Hóll og Sveinseyri. Sótt 18. ágúst 2024 af https://sogurogsagnir.is/sagnabrunnur/tunga-holl-og-sveinseyri/; Lýður Björnsson (2009). Tálknafjörður um aldamótin 1900. Árbók Barðastrandarsýslu 2009, bls. 25-73.
Deila færslu
Síðast uppfært 19. ágúst, 2024

