Garðastræti 9, Reykjavík, um 1970. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Borgarsögusafn. Myndasafn. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 0371.jpg. Sótt 31. júlí 2024 af https://borgarsogusafn.is/myndasafn?q=Gar%C3%B0astr%C3%A6ti+9#S%C3%9E%C3%93%20%C3%81BS%200371.jpg.
Garðastræti 9, Reykjavík, um 1970. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Borgarsögusafn. Myndasafn. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 0371.jpg. Sótt 31. júlí 2024 af https://borgarsogusafn.is/myndasafn?q=Gar%C3%B0astr%C3%A6ti+9#S%C3%9E%C3%93%20%C3%81BS%200371.jpg.

Grjótagata 6, Reykjavík

Heiti: Hjallhús - Olsenshús
Byggingarár: 1892
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Guðmundur Ólsen
Aðrir eigendur:
1985: Ríkharð H. Hördal
Um 2003: Elín Edda Árnadóttir og Sverrir Guðjónsson
Upphafleg staðsetning: Garðastræti 9, Reykjavík
Flutt: 1985 að Grjótagötu 6, Reykjavík
Grjótagata 6 1

Garðastræti 9, Reykjavík, 1975-1985. Ljósm.: Kristinn Guðmundsson. Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. KG-94. Sótt 31. júlí 2024 af https://www.sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=1732805.

Grjótagata 6 3

Saga:

Húsið sem nú er Grjótagata 6 í Reykjavík var flutt þangað árið 1985 frá Garðastræti 9 í Reykjavík.

Húsið var byggt árið 1892, en þá reif Guðmundur Ólsen (1855-1918), kaupmaður og slökkviliðsstjóri um tíma, hús kjörföður síns, Jóhannesar Ólsen, sem nefnt var Hjallhús, og byggði nýtt hús, sem fyrst var skráð sem Læknisgata 4, en síðar Garðastræti 9, oftast nefnt Ólsenshús.1Páll Líndal (1991). Reykjavík. Sögustaður við Sund. 1. bindi, A-G, bls. 154. Reykjavík: Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf. Þegar húsið var virt í september 1892 var því líst þannig:

[Nýtt hús] úr plankverki með járnþaki á súð og klætt á tvo vegu járni og tvo vegu timbri,  með milliklæðningu og pappa bæði á þakinu og hliðuum. Miðri í húsinu eru 3 herbergi auk eldhúss alt með tvöföldum loptum og málað á maskínupappír. Eldhúsið er aðeins þiljað. Þar eru 3 magazinofnar og ein eldavjel. Uppi eru 4 herbergi þiljuð og máluð og 1 magazinofn. Kjallari með trjególfi í tveim þriðju hlutum er undir öllu húsinu, honum er skift í tvent.2Brunabótavirðingar, númer 72. Bók 03-07-1888 til 17-02-1900. Aðfnr. 734.

Guðmundur Ólsen varð bráðkvaddur í verslun sinni í Aðalstræti 21. janúar 1918. Eiginkona hans var Fransiska Bernhöft (1870-1957).

Árið 1921 var veitt leyfi til að byggja eina hæð ofan á húsið.3Páll Líndal (1991), bls. 154.

Þess má geta að þegar Henný Goldstein (1905-1986), sem var gyðingur, flýði Þýskaland skömmu eftir valdatöku Hitlers ásamt móður sinni og ungum syni leigði hún herbergi í Garðastræti 9. Fyrst eftir að hún kom til landsins vann hún sem kjólameistarai í saumastofunni Gullfoss í Reykjavík, en þegar hún hugðist stofna eigin saumastofu 1938 kærði vinnuveitandi hana fyrir yfirvöldum og stóð til að vísa henni úr landi. Þá greip Hendrik Ottósson (1897-1966) útvarpsmaður og rithöfundur til þess ráðs að kvænast henni, en þá fékk hún íslenskan ríkisborgararétt og gat dvalist hér áfram. Hjónabandið var ekki tímabundin ráðstöfun, því Henný og Hendrik voru gift til æviloka.4Hannes Hólmsteinn Gissurarson (2012). Gyðingastjarnan og hakakrossinn: Örlög tveggja útlendinga á Íslandi. Þjóðmál, 1. tbl., 8. árg., bls. 57-71.

Árið 1985 þurfti húsið að víkja vegna fyrirhugaðrar nýbyggingar við Garðastræti. Þá var húsið fllutt að Grjótagötu 6 í Reykjavík. Ríkharð H. Hördal (1946-2012) forvörður stóð fyrir þeim flutningi og gerði upp húsið á nýja staðnum undir handleiðslu Magnúsar Skúlasonar arkitekt.5Hörður Ágústsson (2000). Íslensk byggingararfleifð I. Ágrip af húsagerðarsögu 1750-1940, bls. 127. Önnur prentun, fyrst gefin út 1998. [Reykjavík:] Húsafriðunarnefnd ríkisins.

Seinna eignuðust listamannahjónin Elín Edda Árnadóttir, myndlistamaður og leikmynda- og búningahönnuður, og Sverrir Guðjónsson söngvari húsið. Þau greindu frá því í blaðaviðtali að áður hefði hús sem hýsti kvennaklósett miðborgarinnar staðið á þeim stað sem hús þeirra stóð. „Enda góður andi og gott flæði í húsinu,“ sagði Sverrir í viðtalinu.6Heimilið er lifandi afl (2008 1. október). 24 stundir, 4. árg., 187. tbl., bls. 28.

Við þetta má bæta að nokkru áður en húsið var flutt hafði dágóður skúr við húsið verið fluttur á Árbæjarsafn.7Árbæjarsafn. Garðastræti 9. sótt 31. júlí 2024 af https://app.arbaejarsafn.is/hus/dc671dbc-44b9-45f7-8948-e12d5c3174b8.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 31. júlí, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 31. júlí, 2024