Heimild: Þorsteinn Þ. Víglundsson (1976, 1. júní). Hjónin í Klöpp, bls. 213. Blik. Ársrit Vestmannaeyja 1976, 32. árg.
Heimild: Þorsteinn Þ. Víglundsson (1976, 1. júní). Hjónin í Klöpp, bls. 213. Blik. Ársrit Vestmannaeyja 1976, 32. árg.

Klöpp, Vestmannaeyjum

Heiti: Klöpp
Byggingarár: 1894
Horfið: Fór undir hraun 1973
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Sigurbjörg Sigurðardóttir og Kristján Ingimundarson
Upphafleg staðsetning: Njarðarstígur 16, Vestmannaeyjar
Flutt: 1968 á Urðir á austurströnd Heimaeyjar og gert að hesthúsi
Hvernig flutt: Í heilu lagi

Saga:

Árið 1885 réðst Sigurbjörg Sigurðardóttir (1861-1931) vinnukona til hreppstjórahjónanna á Gjábakka í Vestmannaeyjum, þeirra Margrétar (1835-1916) og Ingimundar (1829-1912). Árið eftir eignaðist hún son með Kristjáni (1867-1952) syni hreppstjórahjónanna. Ungu hjónaefnin bjuggu áfram á Gjábakka, en stofnuðu eigið heimili árið 1892 í svokölluðum „Helgahjalli“ við sunnanverða höfnina og sama ár gengu þau í hjónaband.1Þorsteinn Þ. Víglundsson (1976, 1. júní). Hjónin í Klöpp. Blik. Ársrit Vestmannaeyja 1976, 32. árg., bls. 209-215.

Kristján Ingimundarson varð með árunum sjósóknari mikill og hin mesta aflakló. Honum græddist brátt nokkurt fé sökum aflasældar og fjárhyggju, sem var honum meðfædd. – Ungu hjónin í Helgahjalli þóttust því brátt hafa efni á því að rífa Helgahjall og byggja sér gott íbúðarhús á lóðinni. Þessi hugsjón þeirra varð að veruleika árið 1894. Þá byggðu þau sér lítið og snoturt íbúðarhús og kölluðu það Klöpp. Undir því var kjallari að hálfu leyti í jörðu, hlaðinn úr grjóti og sementi slett milli steinanna, eins og tíðkaðist þá svo víða með okkar þjóð.2Þorsteinn Þ. Víglundsson (1976, 1. júní), bls. 212. 

Kristján stundaði sjómennsku, fyrst á skipi föður síns og síðar eignaðist hann hlut í vélbátum. Hann stundaði lundaveiðar á hverju sumri fram á níræðisaldur. Árið 1904 var hann ráðinn fiskimatsmaður í Eyjum. Einnig var hann hringjari í Landakirkju í marga áratugi.

Eftir að Sigurbjörg lést árið 1931 bjó Kristján áfram í Klöpp með fósturdóttur sinni þar til hann lést í apríl 1952.3Þorsteinn Þ. Víglundsson (1976, 1. júní).

Íbúðarhúsið Klöpp … var talið nr. 16 við Njarðarstíg enda þótt það stæði við Strandveginn gegnt hraðfrystistöð Ísfélags Vestmannaeyja, sem nú hefur byggt stóra steinbyggingu á „Klapparlóðinni“. Í fyrstu var íbúðarhús þetta ekki svo stórt, eins og það sýndist á myndinni [hér að ofan]. Nokkru eftir aldamótin stækkaði eigandinn það að mun og bjuggu þá tvær fjölskyldur í húsinu. T. d. var Friðrik Jónsson, síðar kenndur við íbúðarhús sitt Látra (nr. 44 við Vestmannabraut) leigjandi hjá Klapparhjónunum árið 1908. Þá var hann formaður á v/b Heklu, VE 115, sem þeir áttu saman með fleirum.
Íbúðarhúsið Klöpp var flutt í heilu lagi austur á Urðir árið 1968 og gert þar að hesthúsi. Þá stunduðu vissir menn í Eyjum hrossarækt! Þar rann svo hraun yfir húsið í marzmánuði 1973.4Þorsteinn Þ. Víglundsson (1976, 1. júní), bls. 215.

Urðir voru á austurströnd Heimaeyjar fyrir gos.

 

Leitarorð: Vestmannaeyjar

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 12. júlí, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 12. júlí, 2024