Vestmannaeyjarbær 1884. Ljósa tveggja hæða húsið vinstra megin á myndinni er Frydendal. Líklega fyrsta tveggja hæða húsið í Vestmannaeyjum. Sótt 10. júlí 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=519266434762876&set=gm.243103525823779&idorvanity=166156446851821.
Vestmannaeyjarbær 1884. Ljósa tveggja hæða húsið vinstra megin á myndinni er Frydendal. Líklega fyrsta tveggja hæða húsið í Vestmannaeyjum. Sótt 10. júlí 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=519266434762876&set=gm.243103525823779&idorvanity=166156446851821.

Bjarmi, Miðstræti 4, Vestmannaeyjum

Heiti: Frydendal - Bjarmi
Byggingarár: 1883-1884
Rifið: 1975
Upphafleg notkun: Íbúðar- og veitingahús
Fyrsti eigandi: Jóhann Jögen Johnsen og Anna Sigríður Johnsen
Aðrir eigendur:
1893: Anna Sigríður Johnsen
?-1919: Árni J. Johnsen
1919-1934: Kaupfélagið Bjarmi
?-1969?: Helgi Benediktsson
Upphafleg staðsetning: Norðan lóðar númer 4 við Miðstræti, Vestmannaeyjum
Flutt: 1928 flutt tvær breiddir sínar suður að Miðstræti 4, Vestmannaeyjum

Saga:

Ekki er vitað með fullri vissu hvenær hús sem nefnt var Frydendal var byggt í Vestmannaeyjum, en talið er að það hafi verið á fyrri hluta 19. aldar, 1838 segja sumir. Í því húsi réð síðast ríkjum Madame Roed (1910-1878)

— þekkt kona í sögu Vestmannaeyja fyrir brautryðjandastarf í garðrækt og svo kunn veitingakona í þorpinu. Hún kenndi Eyjabúum m. a. að rækta kartöflur.
Madama Roed lézt 23. nóvember 1878, 68 ára að aldri.
Eftir lát hennar keypti Jóhann Jörgen Johnsen [1847-1893] Frydendal.
Árið 1880 réðst Anna Sigríður Árnadóttir [1855-1930] heimasæta á Oddsstöðum bústýra hans í Frydendal. Hún varð ástmey hans og svo eiginkona.
Í Frydendal ráku hjónin veitingasölu, útgerð og búskap, þar til Jóhann veitingamaður lézt vorið 1893.
Nokkru eftir 1880 reif Jóhann Jörgen gamla Frydendal til grunna og byggði stórt og vandað timburhús á lóðinni. Viðinn í þá byggingu keypti hann frá Finnlandi. Húsið var tvílyft með lágu risi og bar svo mjög af öllum öðrum íbúðarhúsum í þorpinu að það var ýmist kallað Húsið í daglegu tali fólksins eða Vertshúsið. Var þá Jóhann Jörgen titlaður veitingamaður.
Leifar þessa stóra íbúðarhúss, Frydendals, er verzlunarhúsið Bjarmi eign Helga kaupmanns Benediktssonar (1899-1971) Bjarmi stendur nokkrum húsbreiddum sunnar en Frydendalur stóð, var færður, þegar Miðstrætið var að fullu mótað, og hefur svo verið breytt æðimikið frá uppruna sínum.1Þorsteinn Þ. Víglundsson (1969, 1. júní). Húsið Frydendal í Eyjum, bls. 18-19. Blik. Ársrit Vestmannaeyja 1969, 27. árg., 1. tbl., bls. 17-21.

Þegar Jóhann Jörgen lést var Anna Sigríður var ein með 5 börn á framfæri. Hún hélt áfram búrekstrinum af miklum skörungsskap, rak útgerð og bætti síðan verslunarrekstri við þegar elsti sonur hennar Gísli J. Johnsen (1881-1965) stálpaðist og gat aðstoðað móður sína.2Þorsteinn Þ. Víglundsson (1969, 1. júní), bls. 19.

Frú Anna Sigríður í Frydendal rak allan atvinnurekstur sinn af miklum dugnaði og myndarskap. Hún var forkur. — Veitingasölunni hélt hún áfram eftir lát eiginmannsins. Inn í Frydendal lagði Þorsteinn héraðslæknir sjúklinga sína, ef þeir þurftu sérstakrar hjúkrunar og umönnunar við. Þannig var heimili frú Sigríðar jafnframt hjúkrunarheimil þorpsins um árabil, þar til Frakkar byggðu sjúkrahús sitt, „Gamla spítalann“, húsið nr. 20 við Kirkjuveg.
Heimilisfólkið í Frydendal var oftast um og yfir 20 manns.3Þorsteinn Þ. Víglundsson (1969, 1. júní), bls. 20-21.

Árið 1914 var Kaupfélagið Bjarmi stofnað, sem var sambland af pöntunarfélagi og hlutafélagi. Í júlí 1919 ákváðu félagsmenn að kaupa húseignina Frydendal, sem þá var í eigu Árna J. Johnsen (1892-1963) yngsta sonar þeirra Önnu Sigríðar og Jóhanns Jörgens.4Þorsteinn Þ. Víglundsson (1974, 1. júní). Samvinnusamtökin í Vestmannaeyjum. Blik. Ársrit Vestmannaeyja 1974, 31. árg., 1. tbl., bls. 9-74.

Haustið 1928 afréð stjórn kaupfélagsins

… að flytja verzlunarhús sitt Frydendal um rúma breidd sína suður að Miðstrætinu. Þetta verk tóku tveir iðnaðarmenn í kaupstaðnum að sér að framkvæma, þeir Magnús Isleifsson trésmíðameistari í London og Einar Magnússon járnsmíðameistari í Stóra-Hvammi við Kirkjuveg. Þetta stórvirki var framkvæmt haustið 1928. Þegar svo lokið var við að flytja þetta tveggja hæða hús, hófst bygging búðar vestan við það og áföst því.5Þorsteinn Þ. Víglundsson (1974, 1. júní), bls. 55.

Kaupfélaginu Bjarma var slitið í febrúar 1934. Þá hefur Helgi Benediktsson útgerðar- og verslunarmaður væntanlega eignast Frydendal, en þá var farið að kalla húsið Bjarma. Þar rak hann vefnaðarvöru- og matvöruverslun. Einnig bjuggu ýmsir í húsinu um lengri eða skemmri tíma.6Þorsteinn Þ. Víglundsson (1974, 1. júní), bls. 57; Heimaslóð (2021, 6. apríl). Helgi Benediktsson.

Húsið stóð við Miðstræti 4 í Vestmannaeyjum, gegnt húsinu Hóli við Miðstræti 5. Það var rifið árið 1975.7Heimaslóð (2016, 17. febrúar). Bjarmi.

Bjarmi, Miðstræti 4, 23. maí 1974. Bakhlið hússins. Vel sést hve hrauntunga var nálægt húsinu. Lengst til hægri sést í húsið Hól. Ljósm.: Sigurgeir Jónasson. Heimild: Ljósmyndasafn Vestmannaeyja.

Á loftmynd frá 1953 má sjá hvar Bjarmi stóð þétt við Miðstræti. Heimild: https://www.map.is/vestm/#.

Loftmynd frá 2022 af sama svæði og á myndinni að ofan. Heimild: https://www.map.is/vestm/#

Leitarorð: Vestmannaeyjar

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 11. júlí, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 11. júlí, 2024