Litla-Heiði, Sólhlíð 21, Vestmannaeyjum
Saga:
Sigurður Sigurfinnsson (1851-1916) flutti til Vestmannaeyja árið 1872 og um 10 árum síðar fékk hann ábúð á jörð á Vilborgarstöðum, sem voru í raun 8 aðskildir bæir. Sigurður bjó að Norðurbæ til æviloka og byggði þar hús sem nefnt var Litla-Heiði eða Gamla-Heiði. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær hann byggði húsið, en líklega hefur það verið byggt um eða eftir 1883.
Auk búskapar var Sigurður formaður, oftast á eigin bátum. Hann lét einnig til sín taka í félagsmálum, var meðal annars formaður Framfarafélagsins, hafði forgöngu um stofnun Sundfélags Vestmannaeyja, var fréttaritari „Fjallkonunnar“, starfaði mikið í Góðtemplarahreyfingunni og var hreppsstjóri. Honum hefur verið lýst sem höfðingja í sjón og raun.
Árið 1897 lét Sigurður flytja hús sitt vestar á eyjuna og stóð það þar sem nú er hús númer 21 við Sólhlíð. Þessi staðsetning þótti heppilegra, bæði með tilliti til veðurlags og ekki var eins langt inn í Vestamannaeyjabæ. Þess má geta að um skeið var Norðurbærinn á Vilborgarstöðum sýslumannssetur, eða frá 1883 til 1891 þegar Aagaard sýslumaður bjó þar.

Litla-Heiði líklega skömmu áður en húsið var rifið um 1990. Ljósm.: Sigurgeir. Sótt 4. júlí 2024 af https://heimaslod.is/index.php/Litla-Hei%C3%B0i.
Í október 1875 kvæntist Sigurður Þorgerði Gísladóttur (1840-1919), en þau skildu. Hún hafði áður misst tvo eiginmenn í sjóslysum. Sigurður gekk að eiga Guðríði Jónsdóttur (1871-1944) árið 1904.
Húsið var rifið um 1990. Nú stendur steinsteypt fjölbýlishús Sólhlíð 21, sem byggt var um 1990. Þess má geta að öll bæjarhús á Vilborgarstöðum lentu undir hrauni í eldgosinu 1973.1Heimaslóð (2013, 10. nóvember). Húsin á Heimaey. Litla-Heiði. Sótt 4. júlí 2024 af https://heimaslod.is/index.php/Litla-Hei%C3%B0i; Heimaslóð (2024, 4. febrúar). Æviskrár Víglundar Þórs Þorsteinssonar. Sigurður Sigurfinnsson (hreppstjóri). Sótt 4. júlí 2024 af https://heimaslod.is/index.php/Sigur%C3%B0ur_Sigurfinnsson_(hreppstj%C3%B3ri); Guðjón Á. Eyjólfsson (1973). Vestmannaeyjar. Byggð og eldgos, bls. 117. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja; Heimaslóð 2015, 4. apríl). Þorgerður Gísladóttir. Sótt 4. júlí 2024 af https://heimaslod.is/index.php/%C3%9Eorger%C3%B0ur_G%C3%ADslad%C3%B3ttir.
Við þetta má bæta að Einar ríki, sem kemur við sögu Þingvalla, var sonur Sigurðar.
Á loftmynd frá árinu 1953 sést hvar Vilborgarstaðir voru og Litla-Heiði þar sem Sólhlíð 21 er nú (2024).
Leitarorð: Vestmannaeyjar
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 4. júlí, 2024
Heimildaskrá
- 1Heimaslóð (2013, 10. nóvember). Húsin á Heimaey. Litla-Heiði. Sótt 4. júlí 2024 af https://heimaslod.is/index.php/Litla-Hei%C3%B0i; Heimaslóð (2024, 4. febrúar). Æviskrár Víglundar Þórs Þorsteinssonar. Sigurður Sigurfinnsson (hreppstjóri). Sótt 4. júlí 2024 af https://heimaslod.is/index.php/Sigur%C3%B0ur_Sigurfinnsson_(hreppstj%C3%B3ri); Guðjón Á. Eyjólfsson (1973). Vestmannaeyjar. Byggð og eldgos, bls. 117. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja; Heimaslóð 2015, 4. apríl). Þorgerður Gísladóttir. Sótt 4. júlí 2024 af https://heimaslod.is/index.php/%C3%9Eorger%C3%B0ur_G%C3%ADslad%C3%B3ttir.
Deila færslu
Síðast uppfært 4. júlí, 2024
