Hverfisgata 18, Hafnarfirði
Saga:
Þetta hús byggði Kristinn Kristjánsson (1872-1953) skipstjóri og seglasaumari þar sem nú stendur hús númer 6 við Linnetsstíg í Hafnarfirði og nefndi Hraunprýði. Hann fluttist til Hafnarfjarðar 1893 og tveimur árum síðar kvæntist hann Rannveigu Jónsdóttur (1873-1956) og er ekki ólíklegt að þau hafi byggt húsið um það leyti sem þau giftust. Árið 1902 fluttust foreldrar Rannveigar, Jón Guðmundsson (1824-1908) og Vilborg Jónsdóttir (1833-1917), að Hraunprýði og hafa líklega verið í sambýli með ungu hjónunum til ársins 1909 þegar þau Kristinn og Rannveig fluttu burt. Auk þess leigðu hjón herbergi á loftinu, þannig að í a.m.k. eitt ár bjuggu þrjár fjölskyldur í húsinu, alls um 12 manns.
Árið 1919 lét Sigurður Ólafsson kennari flytja húsið að Hverfisgötu 18 í Hafnarfirði.1Magnús Jónsson (1970). Bær í byrjun aldar. Hafnarfjörður, bls. 70-72. Útg. Höfundur. Hús þetta var rifið um 1980.2Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir o.fl. (2020). Miðbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun. Ekki hefur verið byggt á lóðinni sem það stóð á (2024).
Leitarorð: Hafnarfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. maí, 2024
Heimildaskrá
- 1Magnús Jónsson (1970). Bær í byrjun aldar. Hafnarfjörður, bls. 70-72. Útg. Höfundur.
- 2Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir o.fl. (2020). Miðbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun.
Deila færslu
Síðast uppfært 5. maí, 2024