Reykjavíkurvegur 4, Hafnarfirði. Sótt 4. maí 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=4225379483820&set=gm.346809768746457&idorvanity=247258775368224.
Reykjavíkurvegur 4, Hafnarfirði. Sótt 4. maí 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=4225379483820&set=gm.346809768746457&idorvanity=247258775368224.

Grænakinn 27, Hafnarfirði

Heiti: Finnshús - Finnshóll
Byggingarár: ≈ 1900
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Finnur Gíslason og Sólveig Sveinsdóttir
Aðrir eigendur:
1964: Sigurður Ólafur Stefánsson
1969: Kristín Sigurjónsdóttir og Gunnar Sigurjónsson
Upphafleg staðsetning: Reykjavíkurvegur 4, Hafnarfirði
Flutt: 1964 til 1966 að Grænukinn 27, Hafnarfirði
Hvernig flutt: Flutt í heilu lagi
Grænakinn 27

Finnshóll kominn á flutningabíll í nóvember 1964. Ljósm.: Jón Gunnar Sigurjónsson. Sótt 4. maí 2024 af https://www.facebook.com/photo?fbid=2484817178330595&set=gm.5502978106410136.

Grænakinn 27 2

Finnshóll kominn á nýjan grunn við Grænukinn. Heimild: Deilur um húsflutning í Hafnarfirði (1966, 13. ágúst). Alþýðublaðið, 46. árg., 181. tbl., bls. 1.

524237_10151077919783707_1768147359_n

Grænakinn 27, Hafnarfirði, líklega 2012. Ljósm.: Jóna Svava Sigurðardóttir. Sótt 4. maí 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=10151077919783707&set=oa.282796595147775.

Grænakinn 27

Grænakinn 27, Hafnarfirði, í apríl 2024. Ljósm.: Höfundur.

Saga:

Um aldamótin 1900 byggðu hjónin Finnur Gíslason (1857-1937) seglasaumari og Sólveig Sveinsdóttir (1851-1939) sér hús við Reykjavíkurveg 4 í Hafnarfirði, sem ætíð var kallað Finnshóll eða Finnshús. Í brunavirðingu frá árinu 1917 kemur fram að húsið sé einlyft með porti og risi. Niðri voru þrjár stofur, eldhús og búr. Á loftinu voru 5 herbergi og kjallari. Kjallari var undir helmingi hússins. Við austurgafl þess var anddyri með risi og skúr var við suðurhliðina með skúrþaki.1Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir o.fl. (2020). Kinnar, íbúðahverfi Hafnarfirði, bls. 98; Magnús Jónsson (1970). Bær í byrjun aldar. Hafnarfjörður, bls. 85-86. Útg. Höfundur.

Húsið þurfti að víkja þegar Reykjavíkurvegur var breikkaður og var Sigurður Ólafur Stefánsson þá eigandi hússins. Árið 1964 fékk hann leyfi til að flytja húsið að Grænukinn 27 í Hafnarfirði.2Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir o.fl. (2020), bls. 98.

Segja má að uppbygging Kinnahverfisins hafi hafist árið 1947 þegar fyrstu húsin voru byggð við Köldukinn. Flutningshús voru flutt á svæðið og sett niður árið 1949 en formlegt skipulag fyrir hverfið var ekki samþykkt fyrr en í desember 1951. Í frétt í Alþýðublaðinu frá þeim tíma segir meðal annars: „Milli 40 og 50 umsóknir um smáhúsalóðir í Hafnarfirði. Sérstakt hverfi ætlað húsunum, en bærinn leggur til teikningar ókeypis. /…/ Hafnarfjarðarbær hefur skipulagt sérstakt hverfi fyrir þessi hús ofarlega í bænum þar, sem eru svo kallaðar Kinnar. /…/ Þeir sem þess óska geta fengið ókeypis teikningar að húsum þessum hjá bænum, en einnig er þeim leyfilegt að láta teikna hús eftir eigin fyrirsöng.“ Nokkuð var um að eldri hús í bænum væru flutt í hverfið og olli það í sumum tilfellum deildum [sic]. Dæmi um það er hús sem áður var Reykjavíkurvegur 4 en það þurfti að víkja þaðan vegna breikkunar götunnar. Þá sendu fjöldi íbúa hverfisins bréf til bæjarins til að mótmæla þeim flutningi en í frétt Alþýðublaðsins sagði meðal annars um það mál „Hafnarfjörður fer að verða furðulegur bær. Ætli menn að byggja bílskúr, verða þeir að hlíta ströngum reglum byggingarsamþykktar en Pétur og Páll viðrast geta dröslað aflógahjöllum eftirlitslaust á grunna, a.m.k. í Kinnahverfinu.3Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir o.fl. (2020), bls. 2.

Ekki voru Hafnfirðingar á eitt sáttir um hvað gera skyldi við húsið. Í júlí 1966 birti Þjóðviljinn frétt undir heitinu „Með illu skal húsið rísa“.4Með illu skal húsið rísa (1966, 28. júlí). Þjóðviljinn, 31. árg., 166. tbl., bls. 9.:

Nokkru síðar fjallar Alþýðublaðið um deilurnar um húsflutning þennan og segir m.a.:

Húsið, sem þessum deilum veldur, er gamalt timburhús, mjög vandað og vel smíðað og var tvöfalt gler í öllum gluggum. Þó er það nú farið að láta töluvert á sjá, þar sem óvildarmenn hafa brotið í því hverja einustu rúðu, brotið upp hurðir og unnið fleiri spjöll, stolið ofnum og þessháttar.
Það var í október 1964 sem flytja átti húsið, enda lá þá fyrir samþykkt bæjarstjórnar með 7 atkvæðum gegn 2 (komma og framsóknar). Skömmu síðar var áróðursmaskínan sett í gang, og varð það til þess, að húsið var stoppað á miðri leið, þegar verið var að flytja það á grunn, er maðurinn hafði byggt undir það. Varð að setja það út fyrir veginn og þar hefur það staðið, þar til fyrir skömmu, að það var flutt á ákvörðunarstað. Er vægt áætlað, að þessar tafir, svo og skemmdir á húsinu hafi kostað eigandann rúmar 60 þúsund krónur, enda hyggst hann fara í mál við þá aðila, sem hann telur ábyrga.
Áróðursmennirnir hafa sagt, að tilkoma hússins rýri stórlega söluverð annarra húsa í þessu nýja hverfi. Sannleikurinn er hinsvegar sá, að töluverður hluti húsanna þarna í nágrenninu er aðfluttur, t.d. heil röð við Bröttukinn. Eigandi hússins segir að það sé ekki eins og hann ætlaði sér að flytja inn án nokkurra lagfæringa. Hann eigi eftir að múrhúða húsið að utan, mála og snyrta á annan hátt.  Ætti það þá ekki að gefa hinum húsunum mikið eftir.5Deilur um húsflutning í Hafnarfirði (1966, 13. ágúst). Alþýðublaðið, 46. árg., 181. tbl., bls. 1 og 10.

Árið 1969 var byggt við húsið til vesturs og hefur það útlit hússins haldið sér.6Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir o.fl. (2020), bls. 98. Verður ekki betur séð en húsið og umhverfi þess sé eigendum sínum til sóma.

Leitarorð: Hafnarfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. maí, 2024

Heimildaskrá

  • 1
    Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir o.fl. (2020). Kinnar, íbúðahverfi Hafnarfirði, bls. 98; Magnús Jónsson (1970). Bær í byrjun aldar. Hafnarfjörður, bls. 85-86. Útg. Höfundur.
  • 2
    Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir o.fl. (2020), bls. 98.
  • 3
    Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir o.fl. (2020), bls. 2.
  • 4
    Með illu skal húsið rísa (1966, 28. júlí). Þjóðviljinn, 31. árg., 166. tbl., bls. 9.
  • 5
    Deilur um húsflutning í Hafnarfirði (1966, 13. ágúst). Alþýðublaðið, 46. árg., 181. tbl., bls. 1 og 10.
  • 6
    Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson, Rósa Karen Borgþórsdóttir o.fl. (2020), bls. 98.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. maí, 2024