Skógargata 10b, Sauðárkróki
Suðurgata 1, Sauðárkróki, líklega á árunum 1960-1960. Í forgrunni er Sauðáin í sínum gamla farvegi. Héraðsskjalasafn Skagfirðinga. Sótt 19. apríl 2024 af https://atom.skagafjordur.is/index.php/kcm213.
Suðurgata 1, Sauðárkróki, um 1960. Á neðri hæð hússins var rekin húsgagnaverslun á þessum tíma. Héraðsskjalasafn Skagfirðinga. Sótt 19. apríl 2024 https://atom.skagafjordur.is/index.php/kcm428.
Skógargata 1 flutt árið 1985. Húsið er statt í Aðalgötu þegar myndin er tekin. Sótt 19. apríl 2024 af https://atom.skagafjordur.is/index.php/is-hsk-n00301-e-fey-3234.
Skógargata 10b, Sauðárkróki, um 2018. Heimild: Héraðsskjalasafn Skagfirðinga. Skógargata 10b. Sótt 19. apríl 2024 af https://heradsskjalasafn.skagafjordur.is/is/gagnasofn/husaskra/saudarkrokur/skogargata/skogargata-10b.
Saga:
Á vef Héraðsskjalasafns Skagfirðinga segir þetta um húsið sem nú stendur við Skógargötu 10b á Sauðárkróki:
Læknishúsið var byggt við Suðurgötu 1 árið 1901 að frumkvæði Sigurðar Pálssonar héraðslæknis en húsið var síðar flutt árið 1985 á Skógargötu 10B. Þegar Læknishúsið stóð við Suðurgötu rann Sauðá austan við það og út í sjó. Sunnan við húsið var stór garður þar sem fólk kom saman á hátíðsdögum. Húsið hýsti héraðslækna og fjölskyldur þeirra til ársins 1956 ásamt því að gegna hlutverki lyfjabúðar og skrifstofu sem var í norðvesturenda hússins. Húsið hefur gengið í gegnum ýmsar breytingar frá upphafi en eftir að húsið var flutt á Skógargötu var unnið að því að færa húsið sem næst upprunalegri mynd. Það má sjá á ljósmyndum að á tímabilinu 1920 til 1925 voru settir kvistir upp af útvegg á austur- og vesturhlið, og svalir yfir forstofu sem sneri til suðurs. Á tímabilinu 1925 til 1957 er húsið klætt með járnklæðningu, hamrað járn á neðri hæð en bárujárn í ris og kvistum. Stór gluggi og hurð sett á vesturhlið. Árið 1978-1979 var húsið mælt upp og teiknað eins og talið er að það hafi litið út í kringum 1925. Árni Friðriksson arkitekt og Finnur Birgisson arkitekt, Teiknistofunni Höfða, unnu það verkefni. Þessar teikningar voru hafðar að leiðarljósi þegar húsið er gert upp eftir að það er flutt á núverandi stað, Skógargötu 10B en það var gert 01.09.1985. Húsið var sett á steyptan kjallara, nokkru hærri en fyrirmyndin. Tillaga að staðsetningu í Skógargötu og aðlögun með tilliti til staðsetningu var gerð af Bergljótu S. Einarsdóttur arkitekt, Teiknistofu Guðrúnar Jónsdóttur árið 1985. 1Héraðsskjalasafn Skagfirðinga. Skógargata 10b. Sótt 19. apríl 2024 af https://heradsskjalasafn.skagafjordur.is/is/gagnasofn/husaskra/saudarkrokur/skogargata/skogargata-10b.

Grunnmynd Steindórs Jónssonar af Suðurgötu 1. Sótt 11. október 2019 af http://2017.skjaladagur.is/laeknishusid-a-saudarkroki-lundur/.
Hönnuður og yfirsmiður hússins var Steindór Jónsson (1879-1953) og var Læknishúsið fyrsta húsið sem hann reisti á Sauðárkróki og jafnfram fyrsta íslenska sveiserhúsið á Króknum. Um húsið segir Hörður Ágústsson:
Til er af því grunnteikning. Í grunnmyndinni gætir þó lítilla áhrifa frá sveiser. Þar er enginn gangur og stiginn upp á loftið er úr eldhúsi. Forstofur koma í ganga stað. Í því er tvískinningur, hreinræktað sveiserhús að utan en innanskipan af eldri gerð. Húsið ber Steindóri í alla staði gott vitni sem hæfileikamanni á sviði húsagerðar.2Hörður Ágústsson (2000). Íslensk byggingararfleifð I. Ágrip af húsagerðarsögu 1750-1940, bls. 167. Reykjavík: Húsafriðunarnefnd ríkisins.
Sigurður Pálsson (1869-1910) var læknir á Sauðárkróki frá 1898 til dauðadags árið 1910. Eiginkona hans var Þóra Gísladóttir (1873-1951). Sigurður þótti
… einkar hlýr í viðmóti og svo alþýðlegur í umgengni, að með eindæmum þótti á þeim tímum, var jafnvel fundið það til foráttu af sumum mönnum. Var honum slík framkoma eiginleg. Hann var gæddur óvenjulegum persónutöfrum, sem naumast verða skilgreindir til nokkurrar hlítar. Var jafnvel haft á orði, að hann gæti bætt sjúklingum með návist sinni einni.3Kristmundur Bjarnason (1969). Saga Sauðárkróks. Fyrri hluti. Fram til ársins 1907, bls. 310. Sauðárkróki: Sauðárkrókskaupstaður.
Sigurður drukknaði í Ytri-Laxá í Húnavatnssýslu þegar hann var þar að vitja sjúklings. Þegar sýslumaður Skagfirðinga fór til að sækja líkið riðu 30 Skagfirðingar til móts við hann til þess að fylgja líkinu til Sauðárkróks.4Sigurður Pálsson (1910, 18. október). Fjallkonan, 27. árg., 40. tbl., bls. 158.
Leitarorð: Sauðárkrókur – Skagafjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 19. apríl, 2024
Heimildaskrá
- 1Héraðsskjalasafn Skagfirðinga. Skógargata 10b. Sótt 19. apríl 2024 af https://heradsskjalasafn.skagafjordur.is/is/gagnasofn/husaskra/saudarkrokur/skogargata/skogargata-10b.
- 2Hörður Ágústsson (2000). Íslensk byggingararfleifð I. Ágrip af húsagerðarsögu 1750-1940, bls. 167. Reykjavík: Húsafriðunarnefnd ríkisins.
- 3Kristmundur Bjarnason (1969). Saga Sauðárkróks. Fyrri hluti. Fram til ársins 1907, bls. 310. Sauðárkróki: Sauðárkrókskaupstaður.
- 4Sigurður Pálsson (1910, 18. október). Fjallkonan, 27. árg., 40. tbl., bls. 158.
Deila færslu
Síðast uppfært 19. apríl, 2024



