Hafnargata, Keflavík
Eskifjörður
1902 að Hafnargötu (18) í Keflavík
Saga:
Árið 1902 fluttu hjónin Helgi Eiríksson bakari (1878-1940) og Sesselja Árnadóttir (1879-1963) frá Eskifirði til Keflavíkur til að starfrækja brauðgerðarhús og höfðu í farteskinu þetta reisulega hús.1Marta Valgerður Jónsdóttir (1989). Keflavík í byrjun aldar. Minningar frá Keflavík, bls. 771. Þrjú bindi. Niðjatöl tóku saman Guðleifur Sigurjónsson og Þorsteinn Jónsson, sem einnig ritstýrði. Reykjavík: Líf og saga í samvinnu við Sögunefnd Keflavíkur. Um þetta segir Marta Valgerður Jónsdóttir:
Þau komu ekki tómhent ungu hjónin, því þau fluttu með sér stórt og myndarlegt hús, er þau höfðu átt og búið í á Eskifirði. Þótti þetta í mikið ráðist, en allt blessaðist þetta vel. Þegar húsið var rifið eystra, var hverju stykki, stóru og smáu, raðað niður í búnt og allt tölusett. Man ég, að þeir, er skipuðu öllu þessu efni upp í Keflavík, dáðust að, hve vel var gengið frá efni hússins og spáðu að fljótlega mundi húsið rísa af grunni, enda varð sú raunin á. Húsinu var valinn staður ofan við Hafnargötuna, rétt við Klapparstíginn. Var nú byggður grunnur og steypt stétt, eða rammi umhverfis allt húsið. Var þetta furðu stór flötur á mælikvarða Keflvíkinga, sem á þeim árum byggðu ósköp smá hús. Húsið var tvílyft. Í austurenda niðri, var sölubúð, sem sneri að Hafnargötunni, þar inn af jafnstórt herbergi, sem sneri í suður og innst skrifstofa, einnig á móti suðri. Í vestari enda var brauðgerðarhús, ásamt sölubúð og skrifstofu. Á miðri hlið hússins, sem sneri að götu, var sameiginlegur inngangur, en dyr til hægri í búðina og til vinstri í bakaríið. Efri hæðin var öll notuð til íbúðar. Þar voru stórar og skemmtilegar stofur, eldhús og nokkur svefnherbergi, mjög vistleg íbúð. Efst var lágt ris, sem aðallega var notað til geymslu, þó voru þar tvö smáherbergi.2Marta Valgerður Jónsdóttir (1989), bls. 771-772.
Helgi var sonur merkishjónanna Sigríðar Pálsdóttur frá Karlsskála í Reyðarfirði og Eiríks Björnssonar bónda þar. Var Karlsskálaheimilið nafnkennt í tíð þeirra hjóna fyrir að vera ríkis- og rausnarheimili.3Marta Valgerður Jónsdóttir (1964, 1. desember). Minningar frá Keflavík. Faxi, 24. árg., 10. tbl., bls. 156-157. Því hafa þar örugglega verið næg efni til að kaupa slíkt stórhýsi frá Noregi. Ekki er vitað hvar húsið stóð í Eskifirði og jafnvel ekki víst að húsið hafi verið sett upp þar.
Ólafur Ásbjarnarson kaupmaður tók verslunarhúsnæðið á leigu og höndlaði þar með nýlendu- og vefnaðarvöru. Einnig var póstafgreiðsla í húsinu, sem Helgi sá um.
Heimili þeirra hjóna Helga og Sesselju var alltaf mannmargt, því þau voru gestrisin og dvöldu sumir gestir langdvölum og auk þriggja eða fjögurra barna þeirra voru bakari, bakaralærlingur og þjónustustúlkur til heimilis í húsinu.
Húsið stóð ekki lengi í Keflavík, því það brann til kaldra kola 22. janúar 1908. Talið var að upptök eldsins hafi verið vegna lampa sem tóð á hillu í eldhúsinu. Einhverju varð bjargað úr hinu brennandi húsi, en margt af því eyðilagðist með öllu þegar því var varpað út um glugga í látunum og fátinu sem greip þá sem dreif að til að reyna að bjarga því sem bjargað varð. Meðal þess sem brann var mikið bókasafn. Tvö næstu hús voru hætt komin en skemmdust ekki mikið, húsbúnaður var borinn úr þeim til öryggis.
Eftir þetta fluttu þau Helgi og Sesselja til Ísafjarðar.4Skúli Magnússon (1973, 5. maí). Bakarís-bruninn í Keflavík. Tíminn Sunnudagsblað, 12. árg., 17. tbl., bls. 401-402.
Leitarorð: Eskifjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 22. janúar, 2026
Heimildaskrá
- 1Marta Valgerður Jónsdóttir (1989). Keflavík í byrjun aldar. Minningar frá Keflavík, bls. 771. Þrjú bindi. Niðjatöl tóku saman Guðleifur Sigurjónsson og Þorsteinn Jónsson, sem einnig ritstýrði. Reykjavík: Líf og saga í samvinnu við Sögunefnd Keflavíkur.
- 2Marta Valgerður Jónsdóttir (1989), bls. 771-772.
- 3Marta Valgerður Jónsdóttir (1964, 1. desember). Minningar frá Keflavík. Faxi, 24. árg., 10. tbl., bls. 156-157.
- 4Skúli Magnússon (1973, 5. maí). Bakarís-bruninn í Keflavík. Tíminn Sunnudagsblað, 12. árg., 17. tbl., bls. 401-402.
Deila færslu
Síðast uppfært 22. janúar, 2026