Aðalstræti 31, Þingeyri
Fjarðargata (2), Þingeyri
1974 að Aðalstræti 31, Þingeyri
Húsið fyrir miðri mynd er Hallarinn. Hægra megin við hann er gamli Sparisjóðurinn. Fremst vinstra megin eru hús sem nú eru horfin. Þar er nú bílastæði fyrir norðan Simbahöllina, Fjarðargötu 5, sem er háa, dökka húsið þar sem rýkur úr skorsteini á miðju þaki. Sótt 11. apríl 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=10210277170683869&set=pcb.1455862321873976.
Aðalstræti 31, Þingeyri, í febrúar 1996. Heimild: Gunnar Hvammdal (1996). Þáttur úr húsasögu Þingeyrar. Hús byggð fyrir 1900. Hvenær voru elstu húsin byggð og af hverjum?, bls. 49.
Saga:
Á uppdrætti af Þingeyri frá árinu 1882 er merkt inn íbúðarhús Gunnars Melkjörssonar Backmann. Gunnar starfaði þá sem bókari hjá Gramsverslun.1Margrét Hallmundsdóttir (2014, október). Fornleifaskráning á Þingeyri við Dýrafjörð, V-Ísafjarðarsýslu Fornleifakönnun vegna fyrirhugaðrar breytinga á deiliskipulagi, bls. 23-24. Bolungarvík: Náttúrustofa Vestfjarða; Kjartan Árnason og Gláma Kím (ódags.). Húsakönnun fyrir Aðalstræti, hluta Vallargötu, Hafnarstrætis, Fjarðargötu, Brekkugötu og Kirkjugötu – Þingeyri. Daninn Niels Christian Gram hóf verslun á Þingeyri 1865 og hafði mikið umleikis. Hann byggði m.a. stórt verslunarhús, sem fjallað er á öðrum stað á þessum vef.2Með hús í farangrinum. Vallargata 1, Þingeyri.
Hús Gunnars, Bachmannshús, stóð þar sem síðar varð Fjarðargata, eiginlega í götustæðinu fyrir framan Fjarðargötu 2, þar sem nú er Blábankinn (2024).3Ljósmynd af Þingeyri fyrir 1950. Sótt 11. apríl 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=10210277170683869&set=pcb.1455862321873976.
Gunnar (1842 -1894) var lengi í þjónustu Grams kaupmanns, fyrst í Stykkishólmi og síðar á Þingeyri. Kona hans var Guðrún Jónsdóttir. Þau fluttu frá Þingeyri árið 1888. Hvarf þá Gunnar frá verslunarstörfum en tók að stunda trésmíði á Ísafirði og síðar á Patreksfirði, þar sem hann lést.
Síðan bjó Oddur Jónsson (1859-1920) læknir í húsinu til ársins 1894. Hann var fyrsti lærði læknirinn sem kom til starfa á Þingeyri og bætti úr brýnni þörf. En sá galli var á gjöf Njarðar að hann átti við drykkjusýki að glíma og gat því ekki alltaf sinnt sjúklingum sem leituðu til hans. Var honum vikið úr embætti. Við af honum tók Sigurður Magnússon (1866-1940) læknir, ungur og algerlega óreyndur, og bjó í húsinu til ársins 1899, ásamt konu sinni Esther Helgu Jensen Magnússon (1867-1935). Þá flutti Magnús Ásgeirsson læknir í húsið ásamt Magneu Ísaksdóttur konu sinni og bjuggu þar til ársins 1902 þegar Magnús lést úr brjóstveiki frá nokkurra mánaða gömlum syni sínum. Á þessu tímabili var húsið auðvitað kallað Læknishús. 4Eptirmæli (1894, 2. mars). Þjóðólfur, 46. árg., 11. tbl., bls. 42; Gunnar Hvammdal (1996). Þáttur úr húsasögu Þingeyrar. Hús byggð fyrir 1900. Hvenær voru elstu húsin byggð og af hverjum?, bls. 49. Í Mannlíf og saga í Þingeyrar- og Auðkúluhreppum hinum fornu, 2. hefti, 45-54. Ritstjóri: Hallgrímur Sveinsson; Valdimar H. Gíslason (2003, 28. maí). Amerískir lúðuveiðimenn við Vestfirði. Bæjarins besta, 20. árg., 21. tbl., bls. 11-12; Kristinn Daníelsson (1942, 17. desember). Minningarorð um Ásgeir Magnússon vjelstjóra. Morgunblaðið, 29. árg., 276. tbl., bls. 6.
Jónas Thorsteinsson Hall (1857-1946) kom í húsið árið 1903. Var húsið þá kallað Hallhús eða Hallshús, eða einfaldlega Hallarinn. Árið 1910 er hann sagður til heimilis í Hallshúsi ásamt Jónu Ingibjörgu Örnólfsdóttur Hall (1864-1944) og 8 börnum þeirra hjóna. Önnur fjögurra manna fjölskylda bjó þá einnig í húsinu. Jónas var verslunarstjóri á Flateyri, Ísafirði og Þingeyri, en árið 1930 er hann sagður bókhaldari í Hallshúsi.[4] Hann bjó í húsinu til ársins 1932 að Angantýr Arngrímsson og Elín R. Tómasdóttir kona hans hefja þar búskap.5Gunnar Hvammdal (1996), bls. 49; Íslendingabók. Sótt 11. apríl 2024 af https://islendingabok.is/; Manntal 1910. Sótt 11. apríl 2024 af https://manntal.is/.
Árið 1974 var húsið flutt þangað sem það stendur enn, á lóð númer 31 við Aðalstræti á Þingeyri. Þá áttu þau Páll Ragnar Sveinsson (1952-2021) og Mjallfríð Sigríður Jakobsdóttir (f. 1952) húsið. en aðeins í eitt ár, því árið eftir festu hjónin Ólafía Sigurjónsdóttir og Guðberg Kristján Gunnarsson kaup á húsinu og hafa átt það síðan.6Bergþóra Valsdóttir (2024, 27. apríl). Tölvupóstur.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 26. janúar, 2026
Heimildaskrá
- 1Margrét Hallmundsdóttir (2014, október). Fornleifaskráning á Þingeyri við Dýrafjörð, V-Ísafjarðarsýslu Fornleifakönnun vegna fyrirhugaðrar breytinga á deiliskipulagi, bls. 23-24. Bolungarvík: Náttúrustofa Vestfjarða; Kjartan Árnason og Gláma Kím (ódags.). Húsakönnun fyrir Aðalstræti, hluta Vallargötu, Hafnarstrætis, Fjarðargötu, Brekkugötu og Kirkjugötu – Þingeyri.
- 2
- 3Ljósmynd af Þingeyri fyrir 1950. Sótt 11. apríl 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=10210277170683869&set=pcb.1455862321873976.
- 4Eptirmæli (1894, 2. mars). Þjóðólfur, 46. árg., 11. tbl., bls. 42; Gunnar Hvammdal (1996). Þáttur úr húsasögu Þingeyrar. Hús byggð fyrir 1900. Hvenær voru elstu húsin byggð og af hverjum?, bls. 49. Í Mannlíf og saga í Þingeyrar- og Auðkúluhreppum hinum fornu, 2. hefti, 45-54. Ritstjóri: Hallgrímur Sveinsson; Valdimar H. Gíslason (2003, 28. maí). Amerískir lúðuveiðimenn við Vestfirði. Bæjarins besta, 20. árg., 21. tbl., bls. 11-12; Kristinn Daníelsson (1942, 17. desember). Minningarorð um Ásgeir Magnússon vjelstjóra. Morgunblaðið, 29. árg., 276. tbl., bls. 6.
- 5Gunnar Hvammdal (1996), bls. 49; Íslendingabók. Sótt 11. apríl 2024 af https://islendingabok.is/; Manntal 1910. Sótt 11. apríl 2024 af https://manntal.is/.
- 6Bergþóra Valsdóttir (2024, 27. apríl). Tölvupóstur.
Deila færslu
Síðast uppfært 26. janúar, 2026


