Berg, Vesturvegur 23b, Vestmannaeyjum
Saga:
Um húsið Berg, sem nú stendur við Vesturveg 23b í Vestmannaeyjum segir á vefsíðunni Heimaslóð:
Húsið Berg stóð upphaflega við Bárustíg 4. Húsið Berg byggðu Jónína Ástgeirsdóttir frá Litlabæ, fædd 4.júlí 1884, dáin 8.mars 1917, af barnsförum, barnlaus, og Sigurjón Jónsson frá Moldnúpi V-Eyjafjöllum, fæddur 15.apríl, 1884 [rétt mun vera að hann fæddist 2. desember 1880], drukknaði 9.október 1909. Þau bjuggu í því þegar 1908. Það var fært seint á sjötta áratugnum að Vesturvegi 23b.
Hilmar Sigurbjörnsson [1928-2006], Himmi Ninon, átti húsið frá því að það var flutt. Þar bjó hann ásamt konu sinni, Jónínu Ingibergsdóttur [1931-2014], og fjórum börnum; Sigurbirni, Kristjáni, Katrínu og Árna. Jónína seldi Viðari Sigurbjörnsyni frá Akureyri húsið árið 2005.1Heimaslod.is (2016, 3. janúar). Berg. Sótt 10. apríl 2024 af https://heimaslod.is/index.php/Berg
Jónína og Sigurjón hófu búskap á Bergi árið 1908. Sama ár eignuðust þau stúlku, sem lifði einungis í örfáa mánuði. Árið eftir fæddi hún andvana barn þeirra og sama ár fórst Sigurjón með mótorbátnum Sæborgu í Þykkjabæjarfjöru ásamt bróður Jónínu. Hún bjó áfram á Bergi og giftist Þórði Jónssyni (1887-1939) í desember 1910. Eftir að hafa fætt andvana stúlkubarn árið 1916 dó Jónína af barnsförum árið eftir.2Heimaslod.is (2023, 14. desember). Jónína Ástgeirsdóttir (Litlabæ). Sótt 10. apríl 2024 af https://heimaslod.is/index.php/J%C3%B3n%C3%ADna_%C3%81stgeirsd%C3%B3ttir_(Litlab%C3%A6).
Árið 1960 var húsið flutt að Vesturvegi 23b því það stóð í vegarstæði Miðstrætis. Um þennan húsflutning sagði á sínum tíma í Framsóknarblaðinu.
Húsið Berg, sem stóð við Bárugötu, í vegarstæði Miðstrætis, hefur nú verið flutt, og er komið á nýjan grunn við Vesturveg. Má í þessu sambandi minna á, að upphaflega var ætlunin, að húsið yrði flutt á vegum bæjarins á grunn við Miðstræti, litlu vestar en það áður stóð. Sagt er að Magnús á Vesturhúsum hafi dæmt húsið ónýtt til flutnings. Afleiðingin varð sú, að bærinn lét fyrirtæki Magnúsar byggja nýtt hús yfir íbúa Bergs. Þetta nýja hús, sem er þó ekki stórt, hefur lengi verið í smíðum og talið er, að sú bygging sé mjög dýr. Húsnæðislaus maður fékk síðan gamla húsið svo til endurgjalds laust eða gegn því einu að flytja það burtu.
Þess má geta, að flutningurinn tókst svo vel, að ekki brotnaði rúða í húsinu.3Húsaflutningar (1960, 12. október). Framsóknarblaðið, 23. árg., 16. tbl., bls. 4.
Leitarorð: Vestmannaeyjar
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 12. júlí, 2024
Heimildaskrá
- 1Heimaslod.is (2016, 3. janúar). Berg. Sótt 10. apríl 2024 af https://heimaslod.is/index.php/Berg
- 2Heimaslod.is (2023, 14. desember). Jónína Ástgeirsdóttir (Litlabæ). Sótt 10. apríl 2024 af https://heimaslod.is/index.php/J%C3%B3n%C3%ADna_%C3%81stgeirsd%C3%B3ttir_(Litlab%C3%A6).
- 3Húsaflutningar (1960, 12. október). Framsóknarblaðið, 23. árg., 16. tbl., bls. 4.
Deila færslu
Síðast uppfært 12. júlí, 2024