Norðurvegur 2, Ísafirði, í júlí 2023. Ljósm.: Ja.is.
Norðurvegur 2, Ísafirði, í júlí 2023. Ljósm.: Ja.is.

Norðurvegur 2, Ísafirði

Byggingarár: 1877
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Jón Sigurðsson ?
Upphafleg staðsetning: Mjógata 8, Ísafirði
Flutt: 1944 á Norðurveg 2, Ísafirði

Saga:

Árið 1877 var Jóni Sigurðssyni timburmanni mæld út lóð fyrir húsi, sem síðar fékk númerið 8 við Mjógötu í Hæstakaupstað á Ísafirði. Þegar húsið var virt árið eftir segir um það: „Íveruhús úr tré 12al. langt, 8al. breitt, 9al. hátt, með skúr við gaflinn 8al langri, 4al breiðri og tvöföldu þaki úr borðum og þakspæni. Niðri í húsinu eru  2 íbúðarherbergi þiljuð, máluð og betrekt með einföldu lofti. Eldhús og 4al af norðurendanum, afþiljað, en óþiljað innan. Uppi í öðrum endanum 2. afþiljuð íbúðarherbergi hálfþiljuð innan, annað óþiljað uppi.“1Bragi Bergsson, Herborg Árnadóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir (2022). Ísafjörður – Neðstikaupstaður og gamli bærinn á Eyrinni. Húsakönnun, Norðurvegur 2 [ekkert bls.tal].

Þegar gerð var húsakönnun á Skutulsfjarðareyri á árunum 1992 til 1993 er húsið númer 8 við Mjógötu sagt horfið en það hafi verið áfast öðru húsi. Þar kemur einnig fram að árið 1917 hafi húsið verið einlyft timburhús, portbyggt með risi og litlum kjallara, klætt bárujárni, með áföstum skúr fyrir eldhúsdyrum. Í þessari húsakönnun er þess ekki getið að húsið við Norðurveg 2 hafi verið flutt þangað.2Elísabet Gunnarsdóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir (ódags.). Skutulsfjarðareyri. Húsakönnun á Ísafirði 1992-3. Handrit, bls. 106 og 108.

Í húsakönnun sem gefin var út árið 2022 kemur hins vegar fram að húsið sem nú stendur við Norðurveg 2 hafi verið flutt þangað árið 1944 frá Mjógötu 8.3Bragi Bergsson, Herborg Árnadóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir (2022).

 

Leitarorð: Ísafjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 20. mars, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 20. mars, 2024