Lækjargata 8b, Siglufirði

Heiti: Árbakki
Byggingarár: 1897-1904
Rifið: ≈1960
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Gunnlaugur Þorfinnsson
Upphafleg staðsetning: Engidalur, Fljótum
Flutt: 1908 að Lækjargötu 8b, Siglufirði
Hvernig flutt: Húsið var dregið sundur

Saga:

Engidalur er austastur Úlfsdala eða Dala, sem er nyrsta byggðin í Fljótum í Skagafirði. Gunnlaugur Þorfinnsson (1869-1945) bjó á hjáleigu í Engidalslandi á árunum 1897-1905. Hann reisti sér timburhús og sem hann nefndi Árbakka, því húsið stóð við ána að austanverðu, skammt frá sjó. Eiginkona Gunnlaugs var Þóra Helgadóttir (1864-1943).

„Húsið var dregið sundur, flutt til Siglufjarðar og reist þar aftur 1908.“1Sigurjón Sigtryggsson (1986). Frá Hvanndölum til Úlfsdala. Þættir úr sögu Hvanneyrarhrepps, bls. 703. 3 bindi. Reykjavík: Sögusteinn; Húsið stóð við Lækjargötu númer 8b, en var rifið um 1960.2Harpa Grímsdóttir (1998, desember). Byggingarár húsa á Siglufirði, bls. 24. Reykjavík: Veðurstofa Íslands; Örlygur Kristfinnsson (2010, 15. maí). Munnleg heimild.

Um Gunnlaug segir í Íslendingabók:

Formaður á Siglufirði. Tökubarn í Leyningi, Hvanneyrarsókn í Siglufirði, Eyj. 1870. Bóndi á Máná á Úlfsdölum 1894-1897 og á Árbakka í landi Engidals á Úlfsdölum 1897-1905. Fór til Vesturheims 1905 frá Engidal, Hvanneyrarhreppi, Eyj. Kom aftur til Siglufjarðar 1910.3Íslendingabók. Sótt 29. júlí 2025 af https://islendingabok.is/search.

Séra Bjarni Þorsteinsson segir í Aldarminningu sinni að húsið hafi verið flutt árið 1908 og búi þau hjón enn í því, þ.e. árið 1918.4Bjarni Þorsteinsson (1918). Siglufjarðarverzlunarstaður hundrað ára 1818 – 20. maí – 1918. Aldar­minning. Ágrip af sögu kauptúns og sveitar, bls. 68. Reykjavík: Gutenberg.

Í minningargrein um Gunnlaug segir m.a.:

Fram til vorsins 1905, átti Gunnlaugur heima á Dölum, en þá fluttist hann til Vesturheims og dvaldist þar í 5 ár. Stundaði hann þar mikið fiskiveiðar á Winnipegvatni og farnaðist það vel. Að
þeim tíma liðnum kom hann aftur hingað heim og settist þá að hér í hænum. Tók hann þá fyrst að sér skipstjórn, en nokkru síðar réðist hann að vatnsveitu bæjarins sem verkstjóri, og hafði það
starf lengi á hendi.5Jón Jóhannesson (1946, 5. janúar). Gunnlaugur Þorfinnsson skipstjóri. Minningarorð. Siglfirðingur, 19. árg., 1. tbl., bls. 4.

 

Leitarorð: Siglufjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 29. júlí, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 29. júlí, 2025