Ljósmyndastofa Árna Thorsteinssonar
Saga:
Árið 1861 flutti Árni Thorsteinsson (1828-1907) land- og bæjarfógeti í hús númer 20 við Austurstræti í Reykjavík. Þar bjó hann ásamt eiginkonu sinni Sophiu C. H. Thorsteinsson (1839-1914) og börnum þeirra hjóna. Í húsinu var einnig embættisskrifstofa Árna og húsið því kallað Landfógetahúsið. Hús þetta stendur enn og þar er Hressingarskálinn (Hressó) rekinn.
Árið 1898 lét Árni (1870-1962) yngri, sonur þeirra hjóna, byggja ljósmyndastofu syðst á lóðinni við húsið, einlyft timburhús með kjallara. Húsið var með flötu þaki og var ¼ hluti þaksins úr gleri.
Eftir stúdentspróf árið 1890 fór Árni til Kaupmannahafnar og nam lögfræði. Hann lauk cand. phil. prófi en hætti lögfræðináminu því tónlistin átti hug hans allan. Hann lærði ljósmyndafræði og rak ljósmyndastofuna til ársins 1918. Jafnhliða því starfi hafði hann umsjón með brunatryggingum húsa í Reykjavík en vann síðan hjá Sjóvátryggingafélagið Íslands og loks hjá Landsbankanum. Þekktastur er hann þó líklega sem einsöngvari og tónskáld, en á því sviði var hann algjörlega sjálfmenntaður.1Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1987). Kvosin. Byggingarsaga miðbæjar Reykjavíkur, bls. 164-165. Reykjavík: Torfusamtökin; Þorsteinn Jónsson (2011). Reykvíkingar. Fólkið sem breytti Reykjavík úr bæ í borg, bls. 168-170. Reykjavík: Sögusteinn; Baldur Andrésson (2011, 27. júní). Árni Thorsteinsson (1870-1962). Sótt 28. september 2023 af http://www.musik.is/Baldur/TsagaRvk/1900-1930/til1930_7.html; Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Aðfnr. 734. Brunabótavirðingar 1888-1900. Sótt 28. september 2023 af https://www.borgarskjalasafn.is/is/midlun/brunavirdingar-husa-i-reykjavik-1811-1981/brunavirdingar-1811-1953.
Árið 1995, þegar til stóð að rífa ljósmyndastofuna og fleiri skúra á lóð Austurstrætis 20, var ákveðið að flytja viði ljósmyndastofunnar í Árbæjarsafn með það fyrir augum að endurreisa hana þar. Það hefur enn ekki verið gert, en vonandi verða þau áform að veruleika.2Gagnasafn Minjastofnunar Íslands. Ljósmyndastofa Árna Thorsteinssonar (áður Austurstræti 20). Verknr. 1049.

Ljósmyndahús Árna Thorsteinssonar. Ljósm.: Magnús Gíslason. Sótt 19. desember 2025 af https://www.facebook.com/photo?fbid=10242379411800913&set=gm.3429841197153967&idorvanity=149822718489181.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 19. desember, 2025
Heimildaskrá
- 1Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1987). Kvosin. Byggingarsaga miðbæjar Reykjavíkur, bls. 164-165. Reykjavík: Torfusamtökin; Þorsteinn Jónsson (2011). Reykvíkingar. Fólkið sem breytti Reykjavík úr bæ í borg, bls. 168-170. Reykjavík: Sögusteinn; Baldur Andrésson (2011, 27. júní). Árni Thorsteinsson (1870-1962). Sótt 28. september 2023 af http://www.musik.is/Baldur/TsagaRvk/1900-1930/til1930_7.html; Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Aðfnr. 734. Brunabótavirðingar 1888-1900. Sótt 28. september 2023 af https://www.borgarskjalasafn.is/is/midlun/brunavirdingar-husa-i-reykjavik-1811-1981/brunavirdingar-1811-1953.
- 2Gagnasafn Minjastofnunar Íslands. Ljósmyndastofa Árna Thorsteinssonar (áður Austurstræti 20). Verknr. 1049.
Deila færslu
Síðast uppfært 19. desember, 2025