Aðalstræti 16, 1966. Ljósm.: Skarphéðinn 
Haraldsson. Ljósmyndasafn Reykjavíkur, mynd nr. SKH ÁBS 0011.jpg. Sótt 27. september 2023 af https://ljosmyndasafn.reykjavik.is/.
Aðalstræti 16, 1966. Ljósm.: Skarphéðinn Haraldsson. Ljósmyndasafn Reykjavíkur, mynd nr. SKH ÁBS 0011.jpg. Sótt 27. september 2023 af https://ljosmyndasafn.reykjavik.is/.

Lindargata 60, Reykjavík (hluti húss)

Heiti: Landfógetahúsið
Byggingarár: 1901-1902
Upphafleg notkun: Lóskurðarstofa
Fyrsti eigandi: Innréttingarnar
Aðrir eigendur:
1791: Margrethe Angel til veitingasölu
1796: Landsstjórnin fyrir landfógetabústað
1828: Reykjavíkur- og Seltjarnarneshreppir fyrir barnaskóla
1848: Jón Guðmundsson ritstjóri Þjóðólfs og Hólmfríður Þorvaldsdóttir
1876: Eyjólfur og Páll Þorkelssynir gullsmiðir
1889: Hans Andersen klæðskeri
Upphafleg staðsetning: Aðalstræti 16, Reykjavík
Flutt: 2002 að Lindargötu 60, Reykjavík

Saga:

Húsið sem stendur á lóð númer 16 við Aðalstræti í Reykjavík á sér afar langa sögu. Í skýrslu Minjasafns Reykjavíkur, Ingólfstorg og nágrenni. Skrá yfir fornleifar og hús í vesturhluta Kvosar, frá 2011 er saga þess rakin í stuttu máli.

Á lóðinni miðri stendur hús sem að stofni til telst eitt elsta hús borgarinnar en það var endurbyggt 2004-2005 og er nú hluti af samstæðu hótelbygginga á lóðinni sem reistar voru á árunum 2003-2005. Sögu eldra hússins má rekja aftur til tíma Innréttinganna, en eftir bruna 1764 var byggð þarna lóskurðarstofa sem var einlyft grindarhús með háu risi. Á árunum 1796-1828 var húsið notað sem landfógetabústaður en 1833 var það orðið mjög lélegt og var vesturhluti þess þá rifinn. Á árunum 1831-1848 starfaði þarna fyrsti barnaskólinn í Reykjavík. Eftir það var þar heimili Jóns Guðmundssonar ritstjóra Þjóðólfs og Hólmfríðar Þorvaldsdóttur. Um 1874 var húsið aftur lengt til vesturs. Árið 1895 var hluti þess rifinn og húsið byggt upp aftur sem tvílyft hús, að nokkru leyti úr sama efni og að grunni til sama hús og 1764. Árið 1900 var húsið hækkað með portbyggðu risi, kvistur byggður á suðurhlið og tvílyft útbygging með kvisti við norðurhlið. Einnig var byggt tvílyft geymsluhús með porti og risi norðvestan við húsið. Ári seinna var aðalhúsið lengt til vesturs og tengt því húsi. Við þessar breytingar fékk húsið þá stærð, lögun og útlit sem það síðan hélt, ásamt nýklassískum stíleinkennum og timburskrauti við þakbrún og kvisti. Árið 2001 var húsið tekið í sundur og efri hluti þess geymdur við Túngötu en neðri hæðin tekin niður meðan fornleifauppgröftur fór fram á lóðinni. Neðri hæðin var síðan byggð upp aftur með viðum sem nýtanlegir voru úr gamla húsinu, utan vestasta hlutans sem var endurbyggður úr steinsteypu. Efri hlutanum var komið fyrir aftur og vestasti hluti hans endurbyggður. Viðbyggingin til norðurs var fjarlægð. Byggðar voru á þrjá vegu kringum húsið nýjar byggingar sem taka form sitt og útlit af húsum sem áður stóðu við Aðalstræti 18 (Uppsölum) og Aðalstræti 8 (Fjalakettinum). Á lóðinni fundust leifar landnámsskála sem varðveittar eru í sýningarsal í kjallara. 1Guðný Gerður Gunnarsdóttir, Anna Lísa Guðmundsdóttir og Drífa Kristín Þrastardóttir (2011). Ingólfstorg og nágrenni. Skrá yfir fornleifar og hús í vesturhluta Kvosar, bls. 35. Minjasafn Reykjavíkur. Skýrsla nr. 157.

Í þessari umfjöllun kemur ekki fram afdrif þess húshluta sem hér er til umfjöllunar. Vestasti hluti hússins, sem byggður var 1901 eða 1902, var nefnilega fluttur árið 2002 austur á Lindargötu þar sem hann varð hluti að húsi númer 60. Flutningshlutinn, sem var um 47 m² að grunnfleti, var settur á steyptan kjallara meðfram götunni. Steinsteypt viðbygging var byggð hornrétt á framhúsið, við suðurhlið þess. Allt húsið er því tvær hæðir með risi á háum kjallara.2Helga Maureen Gylfadóttir og Guðný Gerður Gunnarsdóttir (2007). Húsakönnun. Lindargata 50 – 62,  bls. 18. Minjasafn Reykjavíkur, skýrsla nr. 134; Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Lindargata 60. Sótt 27. september 2023 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. mars, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. mars, 2024