Saga:

Húsið í baksýn er Lágholtsvegur 2, skömmu eftir byggingu. Kristinn Björgvin Þorsteinsson (2018, 2. júní). Gamlar ljósmyndir. Sótt 12. október 2023 af https://www.facebook.com/search/top/?q=L%C3%A1gholtsvegur%202.
Í nóvember árið 1932 var hús þeirra Þórðar Ingimundarsonar og Lofts G. Hjartar virt til brunabóta. Húsið stóð á Bráðræðisholti, við Lágholtsveg 2 (líklega á þeim slóðum þar sem fjölbýlishúsin við Grandaveg 42 d til g standa í dag (2024). Í virðingunni segir að húsið sé nýtt, einlyft íbúðarhús með risi og kjallara, byggt úr bindingi, klætt utan með borðum, pappa, listum og járni bæði á veggjum og þaki. Pappalag er í útveggjabindin og innan á hann er klætt með Korkotex-plötum með álímdu veggfóðri. Skilveggir eru úr bindindi með tvöföldum panelþiljum og þiljað er neðan á loftbita. Allar þiljur eru strigalagðar, veggfóðraðar og málaðar. Sagspónastopp er í bitalögum. Tvær íbúðir virðast vera á aðalhæðinni, því þar eru 4 íbúðarherbergi, 2 eldhús, vatnssalerni og anddyri. Þegar matið var gert var rishæðin enn ósundurhólfuð og óþiljuð, en þar voru gólfborð á bitalögum og loftið nýtt sem geymsla. Steinsteyptur kjallari var undir öllu húsinu, múrsléttaður að utan. Þar voru skilveggir úr steinsteypu og var kjallaranum skipt í þvottahús, tvo geymsluklefa og þurrkherbergi. Húsið var 75 m² og í því var miðstöð, vatns-, skolp- og raflagnir.1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar 1930 til 1933. Aðfnr. 745.
Í mars 1948 undirritaði Þorsteinn Erlingsson leigusamning um lóðina númer 31 við Skipasund. Þangað var hús Þórðar Ingimundarsonar flutt, og þar stendur það enn. Á teikningu af húsinu við Skipasund sést að við flutning er einungis gert ráð fyrir einni íbúð í húsinu, þvottahús og geymslur í kjallara, eldhús og íbúðarherbergi á aðalhæðinni og herbergi í risi.2Teikning Arinbj. Þorkelssonar, dags. 4. júlí 1947. Sótt af teikningavef Reykjavíkurborgar 12. október 2023, https://reykjavik.is/byggingateikningar. Síðar voru útbúnar íbúðir bæði í risi og kjallara, auk íbúðarinnar á hæðinni.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 29. febrúar, 2024
Heimildaskrá
- 1
- 2Teikning Arinbj. Þorkelssonar, dags. 4. júlí 1947. Sótt af teikningavef Reykjavíkurborgar 12. október 2023, https://reykjavik.is/byggingateikningar.
Deila færslu
Síðast uppfært 29. febrúar, 2024