Hlíðargata 4, Neskaupstað, í júní 2026. Ljósm.: Höfundur.
Hlíðargata 4, Neskaupstað, í júní 2026. Ljósm.: Höfundur.

Hlíðargata 4, Neskaupstað

Heiti: Viðfjörður - Tunga
Byggingarár: 1916
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Bjarni Sveinsson og Guðrún Friðbjörnsdóttir
Upphafleg staðsetning:

Viðfjörður

Hlíðargata 4 3

Hlíðargata 4, Neskaupstað, í júní 2026. Elsti hluti hússins (vesturendi). Ljósm.: Höfundur.

Hlíðargata 4 2

Hlíðargata 4, Neskaupstað, í júní 2026, norðan megin. Elsti hluti hússins (vesturendi) hægra megin. Ljósm.: Höfundur.

Saga:

Bjarni Sveinsson (1894-1978) fæddist í Viðfirði 5. ágúst 1894. Árið 1914 kvæntist hann Guðrúnu Friðbjörnsdóttur (1893-1989) frá Þingmúla í Skriðdal. Þau byggðu sér þar hús og stofnuðu heimili. Viðfjörður er syðsti fjörðurinn sem gengur inn af Norðfjarðarflóa.

Árið 1920 fluttu þau með dætur sínar þrjár í Nesþorp í Norðfirði og einnig húsið sem þau höfðu reist í Viðfirði. Húsið var tekið niður spýtu fyrir spýtu og flutt með bát. Því var komið fyrir á steyptum kjallara á lóðinni sem nú (2023) er númer 4 við Hlíðargötu í Neskaupstað og nefnt Tunga. Þar bjuggu þau allan sinn búskap.1Unnur Bjarnadóttir (2026, 30. júní). Munnleg heimild; Sigurður Aðalgeirsson (1978, 3. desember). Bjarni Sveinsson frá Viðfirði – Minning. Morgunblaðið, 65. árg., 278. tbl., bls. 26.

Guðrún hafði lært  karlmannafatasaum hjá Guðrúnu Gísladóttur saumakonu á Seyðisfirði á árunum 1910 til 1912. „Guðrún vann við saumaskap allt til um 1930 ásamt því að sinna heimilisstörfum. Reyndar sá hún alveg fyrir heimilinu með saumaskap um tveggja ára skeið þegar maður hennar fékk spænsku veikina og átti við alvarlegan heilsubrest að stríða.“2Smári Geirsson (2009). Norðfjarðarsaga II. Frá 1895-1929, bls. 381. Reykjavík: Hólar.

Smíðahús Bjarna á baklóð Tungu í júní 2026. Ljósm.: Höfundur.

Fyrstu árin í Neskaupstað stundaði Bjarni sjómennsku en vann einnig við bátasmíði. Síðan vann hann við Dráttarbrautina í Neskaupstað og vann samhliða því talsvert við húsasmíði. Hann lengdi húsið í austur um 10 árum eftir að það flutt þar sem hann hafði smíðaverkstæði. En síðar kom hann sér upp smíðahúsi á baklóðinni við Tungu þar sem hann smíðaði hann m.a. trillur og vann við ýmsar viðgerðir.

Í tímans rás hefur nokkrum sinnum verið byggt við húsið. Fljótlega var settur kvistur á húsið með einum glugga. Árið 1952 byggði Unnur yngsta dóttir þeirra Guðrúnar og Bjarna ásamt manni sínum Áseiri Lárussyni við Tungu og bjó þar með sinni fjölskyldu. Árið 1974 var húsinu mikið breytt og var þá kvisturinn m.a. stækkaður.3Sigurður Aðalgeirsson (1978, 3. desember); Unnur Bjarnadóttir (2026, 30. júní).

 

Leitarorð: Neskaupstaður – Norðfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 9. júlí, 2026

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 9. júlí, 2026