Grettisgata 54b, Reykjavík
Húsið tilbúið til flutnings í janúar 2017. Ljósm.: Vísir/Vilhelm. Heimild: Vegamótastígur 9 víkur fyrir hóteli (2017, 9. janúar). Sótt 15. maí 2023 af https://www.visir.is/g/2017981530d
Útlit Grettisgötu 54b. Grettisgata 54b. Sótt15. maí 2023 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/
Saga:
Árið 1904 var brunavirt hús sem Páll Guðmundsson trésmiður hafði byggt á lóð sinni við Grettisgötu. Síðar var húsið talið við Laugaveg 18 og loks við Vegamótastíg 9. Í virðingunni segir að húsið sé með porti og risi, byggt af bindingi, klætt utan með plægðum borðum, pappa, listum og járni þar yfir og með járnþaki á plægðri borðasúð með pappa á milli. Pappi er utan á bindingi og fyllt í binding með marhálmi. Niðri eru 3 íbúðarherbergi, eldhús, 2 gangar og 2 fastir skápar, sem allt er þiljað og 2 herbergi með striga og pappír á veggjum og loftum, sem allt er málar. Þar eru 2 ofnar og ein eldavél. Uppi eru 4 herbergi, eldhús og 2 fastir skápar, sem allt er þiljað og málað. Þar eru 2 ofnar og 2 eldavélar. Kjallari er undir öllu húsinu, þar sem eru geymslur og smíðaherbergi. Við vesturgaflinn er inn- og uppgönguskúr.1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Aðf. 735. Brunavirðingar 1900-1905.
Í Húsaskrá Reykjavíkur kemur þetta fram um húsið.
Davíð Jóhannesson keypti húsið 1906 og bjuggu niðjar hans lengi í húsinu. Húsinu hefur verið lítið breytt nema að stækkaðir voru gluggar að austan og vestan en ekki er vitað hvað ár það var gert. Einnig var annar inngangurinn tekinn af eftir að hætt var að leigja út húsnæði og fjölskyldan tók húsið allt til eigin nota. Hluti af húsinu var leigður út um tíma. Meðal leigjanda var Jóhannes Kjarval sem bjó í húsinu 1912 og Halldór K. Laxness sem var um tíma í húsinu áratugi síðar og bjó í sama herbergi og Jóhannes.2Helga Maureen Gylfadóttir, Borgarsögusafni (2013, 19. febrúar). Tölvupóstur.
Davíð Jóhannesson (1861-1950) og kona hans Guðrún Skaftadóttir (1863-1937) önduðust bæði á heimili sínu að Vegamótastíg 9, Guðrún árið 1937 og Davíð árið 1950. Davíð vann ýmis störf í Reykjavík, m.a. við höfnina og á fyrri hluta ævinnar var hann eftirsóttur sem fylgdarmaður ferðamanna því hann þótti bera umhyggju bæði fyrir mönnum og hestum, enda annálaður hestamaður.3Sólm. Einarsson (1950, 11. október). Dánarminnig: Davíð Jóhannesson frá Stöðlakoti. Tíminn, 34. árg., 225. tbl., bls. 3.
Árið 2007 komu fyrst fram hugmyndir um að færa húsið vegna nýbyggingar sem reisa átti á lóðinni. Ein af hugmyndunum sem fram komu var að lyfta húsinu við Vegamótastíg 9 upp á þak nýbyggingar sem reist yrði á lóðinni. Þáverandi eigandi hússins vildi þannig sýna ættaróðali sínu virðingu, en hann var barnabarnabarn þeirra Davíðs og Guðrúnar. Niðurstaðan varð hins vegar sú að húsið var flutt á lóðina númer 54b við Grettisgötu, þar sem kvistir voru settir á húsið. Það var gert í janúar 2017. Lóðin var auð því hús sem þar hafði staðið brann árið 2005. 4Helga Maureen Gylfadóttir (2013, 19. febrúar); Fundargerð húsafriðunarnefndar 2. október 2008. Gagnasafn Minjastofnunar Íslands; Vegamótastígur 9 víkur fyrir hóteli (2017, 9. janúar). Sótt 15. febrúar 2024 af https://www.visir.is/g/2017981530d; Inga Rún Sigurðardóttir (2008, 21. september). Virðingarvottur við það sem var. Morgunblaðið, 96. árg., 258. tbl., bls. 30-31; Húsið er talið ónýtt (2005, 24. júní). Fréttablaðið, 5. árg., 168. tbl., bls. 4.
Um það leyti var fjallað um húsið á vef Morgunblaðsins. Þar segir m.a.:
Halldór [Laxness] var á unglingsárum þegar hann bjó í húsinu hjá hjónunum Guðrúnu Skaftadóttur og Davíð Jóhannessyni frá Stuðlakoti, sem fluttu þangað árið 1906, tveimur árum eftir að húsið var byggt af Páli Guðmundssyni trésmið. Með þeim fluttu inn foreldrar Davíðs, Jóhannes Oddsson og Salgerður Þorgrímsdóttir.
Í endurminningarbókinni Sjömeistarasagan sem kom út árið 1979 skrifaði skáldið um dvöl sína þar: „En það var ánægjuleg, að mér liggur við að segja sæl stund, að stíga aftur inní gömlu suðurstofuna á Vegamótastíg þar sem sólin bjó; og þar sem Jóhannes Kjarval hafði verið leigjandi þegar ég var sjö ára. Þá sá ég hann mála dreka úr gulli á svart silki,“ skrifaði hann.
„Ég var látinn vera hér til húsa hjá þessum góðu hjónum þegar ég fór í bæinn fyrst, 12 ára, til að læra myndlist og tónlist og fleiri listir, að því ógleymdu sem oft hefur verið viðlag á þessum blöðum að ég ætlaði mér að verða stórskáld á borð við frú Torfhildi Hólm.“5Laxness og Kjarval bjuggu í húsinu (2017. 3. janúar). Sótt 15. maí 2023 af https://www.mbl.is/frettir/innlent/2017/01/03/laxness_og_kjarval_bjuggu_i_husinu/
Að lokum má geta þess að þegar Kjarval bjó í húsinu árið 1912 rissaði hann mynd af Þórdísi Dagbjörtu Davíðsdóttur, dóttur húsráðenda, en hún eignaðist síðar húsið eftir foreldra sína.6Freyja Jónsdóttir (1996, 5. janúar). Húsin í bænum. Vegamótastígur 9. Tíminn, 80. árg., 3. tbl., bls. 6.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 21. júní, 2025
Heimildaskrá
- 1
- 2Helga Maureen Gylfadóttir, Borgarsögusafni (2013, 19. febrúar). Tölvupóstur.
- 3Sólm. Einarsson (1950, 11. október). Dánarminnig: Davíð Jóhannesson frá Stöðlakoti. Tíminn, 34. árg., 225. tbl., bls. 3.
- 4Helga Maureen Gylfadóttir (2013, 19. febrúar); Fundargerð húsafriðunarnefndar 2. október 2008. Gagnasafn Minjastofnunar Íslands; Vegamótastígur 9 víkur fyrir hóteli (2017, 9. janúar). Sótt 15. febrúar 2024 af https://www.visir.is/g/2017981530d; Inga Rún Sigurðardóttir (2008, 21. september). Virðingarvottur við það sem var. Morgunblaðið, 96. árg., 258. tbl., bls. 30-31; Húsið er talið ónýtt (2005, 24. júní). Fréttablaðið, 5. árg., 168. tbl., bls. 4.
- 5Laxness og Kjarval bjuggu í húsinu (2017. 3. janúar). Sótt 15. maí 2023 af https://www.mbl.is/frettir/innlent/2017/01/03/laxness_og_kjarval_bjuggu_i_husinu/
- 6Freyja Jónsdóttir (1996, 5. janúar). Húsin í bænum. Vegamótastígur 9. Tíminn, 80. árg., 3. tbl., bls. 6.
Deila færslu
Síðast uppfært 21. júní, 2025

