Ránargata 46 árið 1971. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 0992.jpg. Sótt 13. febrúar 2024 af https://ljosmyndasafn.reykjavik.is/
Ránargata 46 árið 1971. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 0992.jpg. Sótt 13. febrúar 2024 af https://ljosmyndasafn.reykjavik.is/

Fossagata 1, Reykjavík

Heiti: Gíslakot – Gíslaholt eystra - Eystra-Gíslholt
Byggingarár: 1903
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Erlendur Guðmundsson
Upphafleg staðsetning: Ránargata 46, Reykjavík
Flutt: 1986 að Fossagötu 1, Reykjavík

Saga:

Árið 1903 byggði Erlendur Guðmundsson (1869-1938) hús á lóð sem þá var talin til Vesturgötu. Húsið var virt 22. júní það ár. Í virðingunni segir m.a.:

[virt var] hús það einloptað með porti og risi sem skipstjóri Erlendur Guðmundsson hefur byggja látið á lóð sinni (Gíslaholtslóð) sunnanvert við Vesturgötu. Hús þetta er byggt af bindingi, klætt utan með sérplægðum 5/4′ borðum, pappa og járni þar yfir og með járnþaki á sérplægði 5/4′ borðasúð með pappa á milli, allir útveggir eru stoppaðir í binding með marhálmi. Niðri í húsinu þessu eru 3 íbúðarherbergi, eldhús, búr og 1 fastur skápur sem allt er þiljað og herbergin með pappa á veggjum en striga og pappír á loptum sem eru tvöföld, allt málað. Þar eru 3 ofnar og 1 eldavjel. Uppi eru 6 herbergi, eldhús og gangur sem allt er þiljað og 2 herbergin með striga og pappa á loptum sem eru tvöföld, allta málað. Þar eru 2 ofnar og 1 eldavjel. Kjallari er undir öllu húsinu 3½ al á hæð. Í honum eru 2 herbergi þiljuð og máluð. Þar er 1 eldavjel ennfremur 4 geymsluklegar og gangur. …
Við norðurhlið hússins er byggður inn og uppgönguskúr af sama efni sem húsið sjálft en óstoppaður, hann er þiljaður og málaður innan. Undir honum er kjallari.1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Aðf. 735. Brunabótavirðingar 1900-1905.

Húsið virðist vera um 53 m² og inngönguskúrinn tæpir 5 m² til viðbótar.2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Aðf. 735. Brunabótavirðingar 1900-1905.

Ekki er vitað hvort Erlendur bjó í húsinu, sem nefnt var Gíslholt eystra, en árið 1907 byggði hann húsið Gíslholt vestra á næstu lóð fyrir vestan. Það hús er nú Ránargata 50 og stendur enn. Þegar manntal var tekið 1910 bjó Erlendur ásamt fjölskyldu sinni í Gíslholti vestra, en í Gíslholti eystra eru þá taldar þar til heimilis fimm fjölskyldur, alls 23 manneskjur.3Manntal 1910. Sótt af https://manntal.is/; Húsaskrá Reykjavíkur. Gagnasafn Minjastofnunar Íslands.

Árið 1937 var ákveðið að telja húsið nr. 46 við Ránargötu.4Húsaskrá Reykjavíkur. Gagnasafn Minjastofnunar Íslands.

Fossagata 1 líklega árið 2009. Ljósm.: Höfundur.

Í bók sinni Indæla Reykjavík segir Guðjón Friðriksson um Ránargötu 46:

Á árunum um og upp úr 1975 bjuggu Jón Hólm kaupmaður og Edda Guðmundsdóttir leikkona í Gíslholti eystra. Þau auglýstu hvert sumar hið árlega garden party sitt í Morgunblaðinu og var öllum nágrönnum boðið. Þann hátíðisdag var Dannebrog dreginn að húní í garðinum í Gíslholti eystra, en húsbóndinn var af dönskum ættum, og skemmtu gestir sér daglangt við hljóðfæraslátt, söng, mat og drykk.5Guðjón Friðriksson (1996). Indæla Reykjavík. 6 gönguleiðir um gamla Vesturbæinn. Saga, mannlíf, menning, bygingarlist [sic], gróður og garðar, bls. 32. Reykjavík: Iðunn.

Þegar til stóð að byggja fjölbýlishús á lóðinni nr. 46 var húsið flutt á lóð númer 1 við Fossagötu í Skerjafirði árið 1986.

„Dóra Hafsteinsdóttir lét gera húsið upp á hinum nýja stað. Ráðgjafi var Ívan Stefán Cilia arkitekt, en smiður Stefán Andrésson. Settir voru á húsið tveir kvistir í stað eins áður og tvei nýir gluggar. Svalir og utanhússtigar voru byggðir upp að nýju og stækkaðir.“6Hörður Ágústsson (2000). Íslensk byggingararfleifð II. Varðveisluannáll 1863-1990. Verndunaróskir, bls. 139. Reykjavík: Húsafriðunarnefnd.

 

Leitarorð: Skerjafjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 21. júní, 2025

Heimildaskrá

  • 1
  • 2
    Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Aðf. 735. Brunabótavirðingar 1900-1905.
  • 3
    Manntal 1910. Sótt af https://manntal.is/; Húsaskrá Reykjavíkur. Gagnasafn Minjastofnunar Íslands.
  • 4
    Húsaskrá Reykjavíkur. Gagnasafn Minjastofnunar Íslands.
  • 5
    Guðjón Friðriksson (1996). Indæla Reykjavík. 6 gönguleiðir um gamla Vesturbæinn. Saga, mannlíf, menning, bygingarlist [sic], gróður og garðar, bls. 32. Reykjavík: Iðunn.
  • 6
    Hörður Ágústsson (2000). Íslensk byggingararfleifð II. Varðveisluannáll 1863-1990. Verndunaróskir, bls. 139. Reykjavík: Húsafriðunarnefnd.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 21. júní, 2025