Suðurgata 54, Hafnarfirði
Saga:
Í fasteignaskrá er húsið sem nú stendur við Suðurgötu 54 (sem áður var númer 32) í Hafnarfirði sagt byggt árið 1977. Það mun ekki vera rétt en það ár var byggt við húsið. Hið rétta er að Guðmundur Hjaltason kennari og fræðimaður (1853-1919) byggði húsið árið 1915 á lóð sem hann hafði keypt tveimur árum áður, sem síðar varð númer 16 við Suðurgötu, en er nú Hamarsbraut 17. Húsið var brunavirt fyrst árið 1917 og var því þá lýst „… sem einlyftu bárujárnsklæddu timburhúsi á hlöðnum kjallara en ólíkt öðrum húsum var eldhúsið í kjallaranum.“ Þrjú herbergi og eldhús voru í húsinu, fjórir gluggar á hæð og 4 í kjallara. Við húsið var 500 ferfaðma tún og 100 ferfaðma kálgarður, þar sem Hólmfríður (1870-1948), eiginkona Guðmundar, ræktaði rófur og kartöflur, sem hún seldi. Einnig seldi hún töðu og reyndist landið því góð búbót, því eftir að Guðmundur dó einungis 4 árum eftir að þau fluttu í húsið, var oft þröngt í búi hjá Hólmfríði. Hún brá einnig á það ráð að ráða sig til kaupavinnu í sveit og leigði þá hús sitt, en þegar báðar dætur hennar voru farnar að heiman seldi hún húsið, sem þau hjón bæði höfðu hugsað sér að eyða ellinni í.
Árið 1929 fékk Kristján Ágúst Kristjánsson (1899-1930) heimild til að flytja húsið á lóð sem hann hafði fengið við Suðurgötu 32 (nú Suðurgata 54), þar sem húsið var sett á steyptan kjallara, en var að öðru leyti óbreytt.
Kristján bjó þó ekki lengi í húsinu, því hann tók út af togaranum Venusi í apríl árið eftir og drukknaði, en kona hans og dóttir bjuggu í húsinu í um áratug eftir það.
Eins og fyrr segir var húsið stækkað töluvert árið 1977. Það var aftur stækkað árið 1999. Þá var m.a. byggður við það áfastur bílskúr.1Málfríður Kristjánsdóttir (2022). Suðurgata – Strandgata, Hafnarfirði. Húsakönnun, bls. 48; Elínborg Lárusdóttir (2017). Tvennir tímar. Endurminningar Hólmfríðar Hjaltason. Reykjavík: Angústúra.
Leitarorð: Hafnarfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. maí, 2024
Heimildaskrá
- 1Málfríður Kristjánsdóttir (2022). Suðurgata – Strandgata, Hafnarfirði. Húsakönnun, bls. 48; Elínborg Lárusdóttir (2017). Tvennir tímar. Endurminningar Hólmfríðar Hjaltason. Reykjavík: Angústúra.
Deila færslu
Síðast uppfært 2. maí, 2024
