Strandgata 35b, árið 1982. Húsið sem fór og kom – Strandgata 35 B (1982, 1. september 1982). Fjarðarfréttir, bls. 2. Sótt 2. febrúar 1923 af https://timarit.is.
Strandgata 35b, árið 1982. Húsið sem fór og kom – Strandgata 35 B (1982, 1. september 1982). Fjarðarfréttir, bls. 2. Sótt 2. febrúar 1923 af https://timarit.is.

Hellisgata 26, Hafnarfirði

Byggingarár: 1904
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Lárus Bjarnason kennari
Aðrir eigendur:
1917: Einar Þórðarson úrsmiður
1925: ?
?: Hafnarfjarðarbær
1985: Valdimar Erlingsson
Upphafleg staðsetning: Strandgata 37 (áður nr. 31), Hafnarfirði
Fyrst flutt: 1925 að Strandgötu 35b (áður nr. 29b), Hafnarfirði
Flutt: 1985 að Hellisgötu 26, Hafnarfirði

Saga:

Hellisgata 26, Hafnarfirði, í apríl 2024. Ljósm.: Höfundur.

Húsið, sem nú stendur við Hellisgötu 26 í Hafnarfirði, er sagt byggt árið 1985 í fasteignaskrá, en húsið á sér mun lengri sögu. Húsið var upphaflega byggt árið 1904 við Strandgötu, þar sem nú er lóð númer 37, en upphaflega var lóðin nr. 31. Fyrsti eigandi hússins var Lárus Bjarnason kennari, en árið 1917 virðist Einar Þórðarson úrsmiður hafa keypt húsið og var þá húsið brunavirt. Þá er húsinu lýst svo:

 a) Húsið er einlyft með porti og risi 2,20m. Því er skipt niðri í 3 stofur, eldhús og anddyri, 2 stofur fóðraðar, annar klætt panel og málað. Uppi er húsinu skipt í 2 herbergi og gang, klætt panel, málað, í einni stofunni niðri er bókaverslun, annars er húsið notað til íbúðar. 8 gluggar á húsinu. Undir húsinu er 1,30m hár kjallari með 3 gluggum, grjóthlaðinn á 3 vegu og á 1 veg timbur járnvarið,  honum er skipt í 2 herbergi og geymslu, í herbergjunum eru skósmíðavinnustofur. Við Norðurhlið hússins er skúr með vatnshallaþaki og 1 glugga, notaður til inngöngu í húsið. stærð: L. 2,10m. B. 2,50m. H.2,40m. 1 eldavél og 3 ofnar í húsinu. Allt virt á 6790kr.1Gláma-Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 174. Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið.

Þegar Einar hugðist reisa nýtt hús á lóðinni árið 1925 auglýsti hann gamla húsið til flutnings. Í nýja húsinu, sem enn stendur, hafði Einar úrsmíðaverslun sína til margra ára.2Málfríður Kristjánsdóttir, Björn Pétursson og Rósa Karen Borgþórsdóttir (2019). Miðbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun [ekkert bls.tal]. Hafnarfirði: Hafnarfjarðarkaupstaður.

Húsið var flutt á baklóð við Strandgötu, sem þá var númer 29b, en er nú númer 35b.

Árið 1982 var húsið enn fyrir þegar nýbygging var í undirbúningi og aftur auglýst til flutnings, nú af Hafnarfjarðarbæ, sem eignast hafði húsið. Nú var húsið flutt að Hellisgötu 26, þar sem húsið stendur enn. Kaupandi hússins, Valdimar Erlingsson (f. 1956) húsasmíðameistari, sá sjálfur um flutning þess, en á nýju lóðinni var húsið stækkað töluvert.3Valdimar Erlingsson (2020, 9. júní). Munnleg heimild.

 

Leitarorð: Hafnarfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. maí, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. maí, 2024