Litla-Fell, Neðra-Spákonufelli, Skagaströnd
Litla-Fell, líklega árið 1949. Ljósmyndasafn Skagastrandar. Sótt 28. janúar 2024 af https://ljosmyndasafn.skagastrond.is/.
Litla-Fell árið 2018. Argos ehf. (2018). Litla-Fell á Skagaströnd. Stutt greinargerð með skissumælingu og myndum eftir skoðunarferð 9. júlí 2018, bls. 6.
Saga:
Á vef Ljósmyndasafns Skagastrandar má finna efstu myndina hér að ofan. Um myndina er sagt: „Þetta hús var byggt á Hólanesi sem íbúðarhús Carls Berndsen [1874-1954] verslunarmanns þar og konu hans Steinunnar Berndsen [1871-1953] Húsið var síðan flutt 1919-1920 að Litla Felli þar sem stendur enn (í júní 2017). Maðurinn fyrir utan húsið á þessari mynd er Fritz H. Magnússon (d.19.10.1965). Ljósmyndari: Adolf H. Berndsen – safn.“1Ljósmyndasafn Skagastrandar. Sótt 28. janúar 2024 af https://ljosmyndasafn.skagastrond.is.
Húsið er talið hafa verið byggt um aldamótin 1900, líklega á milli húsanna Hólaness og Blálands, sem standa við Fjörubraut á Hólanesi.2Gögn um húsið í gagnasafni Minjastofnunar Íslands; Ólafur Bernódusson (2024, 29. janúar). Skilaboð á hópnum Skagstrendinar á Facebook.
Carl Berndsen var sonur Fritz H. Berndsen (1837-1927), sem hóf verslun á Skagaströnd árið 1875. Carl tók við verslun föður síns árið 1880. Carl stundaði einnig útgerð, en árið 1916 gerði enska stjórnin upptækan saltfiskfarm sem Carl ætlaði að flytja til Kaupmannahafnar, en skipið kom við í Leith. Þetta var versluninni um megn og hætti Carl verslunarrekstri nokkru síðar. Carl sá um póstafgreiðslu frá árinu 1896 til ársins 1947.3Bjarni Guðmarsson (1989). Byggðin undir Borginni. Saga Skagastrandar og Höfðahrepps, bls. 88, 110, 123, 140-141. Skagaströnd: Höfðahreppur.
Húsið var tekið niður og flutt að Litla-Felli um 1920 og þar stendur það enn (2023). Þau Carl og Steinunn héldu áfram að búa í því til ársins 1922 eða 1923.4Gögn um húsið í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
Komið hefur upp sú hugmynd að flytja húsið aftur á Hólanes þar sem það stæði þá nálægt sínum upprunalega stað. Í greinargerð sem skrifuð var árið 2018 eftir að húsið hafði verið skoðað með flutning þess í huga segir m.a.:
Í tímans rás hefur verið byggt við húsið og skúrar upp við það, gripahús og geymsla að vestan og norðan. Húsið er timburhús, ein hæð með portbyggðu risi með kvistglugga fram á hlaðið. Húsið er á steyptum sökkli(?). Kjallari virðist vera undir hluta hússins sem nú er orðinn óaðgengilegur. Skv. gamalli mynd hefur húsið upphaflega, a.m.k. eftir flutninginn verið bárujárnsklætt að utan með torfi á þaki og hár torfveggur hefur staðið uppvið norðurhlið. Í tímans rás hefur húsið verið forskallað, þ.e. múrhúðað utaná bárujárnsklædda veggi og þakið bárujárnsklætt. Almennt séð hefur húsið látið mjög á sjá frá því að það var notað til íbúðar. Steyptur hefur verið veggur meðfram norðvestur-langhlið hússins, milli skúrsins sem þar er og hússins.5Argos ehf. (2018). Litla-Fell á Skagaströnd. Stutt greinargerð með skissumælingu og myndum eftir skoðunarferð 9. júlí 2018, bls. 1. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
Niðurstaða þessarar skoðunar er sú að húsið sé í það slæmu ástandi að ekki væri vænlegt að flytja það í heilu lagi, en til greina kæmi að taka það niður og nýta gamla byggingarefnið eins og unnt væri.6Argos ehf. (2018), bls. 3.
Höfundi er ekki kunnugt um hvort orðið hafi úr þessari hugmynd.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 30. janúar, 2024
Heimildaskrá
- 1Ljósmyndasafn Skagastrandar. Sótt 28. janúar 2024 af https://ljosmyndasafn.skagastrond.is.
- 2Gögn um húsið í gagnasafni Minjastofnunar Íslands; Ólafur Bernódusson (2024, 29. janúar). Skilaboð á hópnum Skagstrendinar á Facebook.
- 3Bjarni Guðmarsson (1989). Byggðin undir Borginni. Saga Skagastrandar og Höfðahrepps, bls. 88, 110, 123, 140-141. Skagaströnd: Höfðahreppur.
- 4Gögn um húsið í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
- 5Argos ehf. (2018). Litla-Fell á Skagaströnd. Stutt greinargerð með skissumælingu og myndum eftir skoðunarferð 9. júlí 2018, bls. 1. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
- 6Argos ehf. (2018), bls. 3.
Deila færslu
Síðast uppfært 30. janúar, 2024

