Bræðraborgarstígur 29, Reykjavík., 1970. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Ljósm. nr. SÞÓ ÁBS 0269.jpg. Sótt 22. maí 2023 af https://ljosmyndasafn.reykjavik.is/.
Bræðraborgarstígur 29, Reykjavík., 1970. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Ljósm. nr. SÞÓ ÁBS 0269.jpg. Sótt 22. maí 2023 af https://ljosmyndasafn.reykjavik.is/.

Birkilundur 37, Sauraskógi, Helgafellssveit

Heiti: Jafetshús
Byggingarár: 1898
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Ingiríður Jónsdóttir
Aðrir eigendur:
1904: Jafet Sigurðsson og Guðrún Kristinsdóttir
Upphafleg staðsetning: Bræðraborgarstígur 29 (áður Kaplaskjólsvegur 29), Reykjavík
Fyrst flutt: 1993 á geymslu- og viðgerðarstað í Örfirisey
Flutt: 1995 í Sauraskóg í Sveitarfélaginu Stykkishólmi (áður Helgafellssveit)
Hvernig flutt: Í heilu lagi
Birkilundur 37 2

Húsinu lyft af grunni sínum við Bræðraborgarstíg. Ljósm.: Jón Jóel Einarsson. Gagnasafn Minjastofnunar Íslands, nr. 2844.

Birkilundur 37 3

Birkilundur 37 í Sauraskógi. Ljósm.: Ásta Hermannsdóttir. Heimild: Ásta Hermannsdóttir (2011). Skráning húsa í Helgafellssveit. Gagnasafn Minjastofnunar Íslands, nr. 2844.

Saga:

Árið 1898 lét Ingiríður Jónsdóttir (f. 1855) byggja lítið timburhús, einlyft timburhús á lóð sem þá var nr. 29 við Kaplaskjólsveg, en varð síðar nr. 29 við Bræðraborgarstíg. Í brunavirðingu hússins í júní 1898 segir:

Hús þetta er byggt af bindindi klætt utan með borði járni og með pappa milli, og með járnþak á súð með pappa á milli. Í húsinu eru 3 herbergi auk eldhúss allt þiljað en ómálað, og með einföldum loptum. Þar er 1 eldavjel. Kjallari er undir öllu húsinu hólfaður í tvennt. Við austurhlið hússins er inngöngu og geymsluhús klætt járni. Lengd 10 al breidd 9 al hæð 4 al.1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Aðf. 734. Brunabótavirðingar 1888-1900.

Í manntali árið 1901 kemur fram að í húsinu býr Ingiríður ásamt þremur börnum sínum, tveimur uppkomnum sonum og 10 ára dóttur. Hún er sögð vera ráðskona, en eldri sonur hennar, Jón Magnússon, húsbóndinn á heimilinu. Auk þess býr í húsinu sextug kona, Sigurbjörg Þorkelsdóttir, sem er sögð leigjandi.

Ingibjörg var gift Magnúsi Finnssyni (f. 1849), sem lést árið 1895. Í mars það ár birti Ingiríður þessa auglýsingu í Ísafold.2Ísafold (1895, 16. mars). 22. árg., 21. tbl., bls. 84.

Árið 1904 keyptu Jafet Sigurðsson skipstjóri (1874-1945) og Guðrún Kristinsdóttir (1872-1938) kona hans húsið. Var þá húsið nefnt Jafetshús. Árið 1925 var byggt verslunarhús úr steinsteyptu áfast við norðurgafl hússins, þar sem var sölubúð og skrifstofuherbergi.3Helga Maureen Gylfadóttir og Guðný Gerður Gunnarsdóttir (2008). Húsakönnun. Túngata – Hofsvallagata – Hávallagata – Bræðraborgarstígur, bls. 37. Skýrsla Minjasafns Reykjavíkur nr. 142.

Þegar til stóð að rífa húsið um 1992 eignaðist hópur manna húsið gegn því að fjarlægja það. Árið eftir var húsið flutt út í Örfirisey þar sem það var lagfært og búið undir lengri flutning. Árið 1995 var húsið flutt á núverandi stað, í sumarhúsabyggð í Sauraskógi í Helgafellssveit (nú Sveitarfélagið Stykkishólmur) og stendur þar á lóð nr. 37 við Birkilund. Þar var byggður nýr inngönguskúr við húsið, verönd framan við það og kjallari hækkaður miðað við upphaflegan kjallara.4Ásta Hermannsdóttir (2011). Skráning húsa í Helgafellssveit. Gagnasafn Minjastofnunar Íslands, nr. 2844.

 

Leitarorð: Sauraskógur

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. janúar, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. janúar, 2025