Strýta, Flatey, Breiðafirði
Losað um húsið á grunninum 1977. Heimild: Þorsteinn Jónsson (ritstjóri) (1996). Eylenda I. Ábúendur í Flateyjarhreppi og þjóðlífsþættir, bls. 210. Reykjavík: Byggðir og bú.
Strýta við Verthússtíg. Heimild: https://flatey.com/hus/stryta-jadar/
Saga:
Hús þetta byggði Magnús Jónsson vélstjóri árið 1918 í Flatey á Breiðafirði. Upphaflega stóð það þar sem húsið Vegamót stendur nú, í hánorður af Flateyjarkirkju, vestur af Grýluvogi. Hann flutti frá Flatey árið 1922 og var þá húsið dregið á hjarni suður á eyju. Þar stóð húsið á háum steyptum kjallara og fékk viðurnefnið Strýta, þó nafn þess hafi verið Jaðar því það var lengi ysta íbúðarhúsið í Flatey. Húsið stóð nærri Hólsbúð, rúma 60 m vestur af húsinu Krákuvör.

Strýta flutt 1977. Ljósm.: Þórður Arason. Sótt 28. október 2024 af https://www.facebook.com/photo?fbid=1070335299689586&set=pcb.945406448913924.
Árið 1975 keyptu hjónin Guðrún Halldórsdóttir og Valdimar Valdimarsson húsið og fluttu það árið 1977 á núverandi stað á Norðurbökkum við Vertshússtíg. Nú stendur það ekki lengur á steyptum kjallara og er því Strýta vart réttnefni lengur.1Guðmundur L. Hafsteinsson (2006). Þorpið í Flatey á Breiðafirði, Byggða- og húsakönnun, bls. 46. Reykhólar: Reykhólahreppur; Þorsteinn Jónsson (ritstjóri) (1996). Eylenda I. Ábúendur í Flateyjarhreppi og þjóðlífsþættir, bls. 210. Reykjavík: Byggðir og bú; Birna Lárusdóttir, Elín Ósk Hreiðarsdóttir og Garðar Guðmundsson (2016). Fornleifar í Flatey: Aðalskráning, bls. 70. Reykjavík: Fornleifafélag Barðstrendinga og Dalamanna og Fornleifastofnun Íslands ses. Skýrsla nr. FS640-14071; Húsin í Flatey. Strýta (Jaðar) (ódags.). Sótt 30. desember 2023 af https://flatey.com/hus/stryta-jadar/.
Húsinu er lýst þannig í Húsakönnun sem gerð var í Flatey:
Strýta er einlyft portbyggt timburhús með risþak og anddyri með risþak er við framhlið. Húsið stendur á steinsteyptum stoðum og á milli þeirra er klætt með láréttum borðum. Veggir eru klæddir bárujárni og hornborðum. Þök eru klædd báruðum asbestsplötum og reykháfur með reykrör er við mæni á suðurhlið þaks. Mismunandi gluggagerðir eru á húsinu og um þá einfaldir faldar til hliða og vatnsbretti að ofan og neðan og barokskorin fjöl undir neðra vatnsbretti. Á því eru fimm gluggar með þremur rúðum og þverpóst ofarlega og einum lóðréttum pósti ofan hans. Einn þeirra er á framhlið og tveir á vesturstafni og tveir á bakhlið. Þrír gluggar eru með sex rúðum milli lóðrétts og láréttra pósta; einn á hvorri hlið og einn á austurstafni. Á framhlið er að auki gluggi með þremur rúðum og þverpóstum og tveir einnar rúðu gluggar á austurstafni. Tveggja rúðu gluggi er á suðurhlið anddyris og dyr á vesturhlið og trépallur framan þeirra. Á bakhlið er lúga á milli stoðstökkla að geymslu undir húsinu.2Guðmundur L. Hafsteinsson (2006), bls. 46.
Þegar húsið var flutt á núverandi stað var það lækkað og stækkað. Árið 2014 voru gerðar verulegar endurbætur á húsinu, það einangrað, skipt um glugga og bárujárn endurnýjað. Þá var einnig byggð geymsla austan við húsið.3Húsin í Flatey. Strýta (Jaðar) (ódags.). Sótt 30. desember 2023 af https://flatey.com/hus/stryta-jadar/.
Leitarorð: Breiðafjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 28. október, 2024
Heimildaskrá
- 1Guðmundur L. Hafsteinsson (2006). Þorpið í Flatey á Breiðafirði, Byggða- og húsakönnun, bls. 46. Reykhólar: Reykhólahreppur; Þorsteinn Jónsson (ritstjóri) (1996). Eylenda I. Ábúendur í Flateyjarhreppi og þjóðlífsþættir, bls. 210. Reykjavík: Byggðir og bú; Birna Lárusdóttir, Elín Ósk Hreiðarsdóttir og Garðar Guðmundsson (2016). Fornleifar í Flatey: Aðalskráning, bls. 70. Reykjavík: Fornleifafélag Barðstrendinga og Dalamanna og Fornleifastofnun Íslands ses. Skýrsla nr. FS640-14071; Húsin í Flatey. Strýta (Jaðar) (ódags.). Sótt 30. desember 2023 af https://flatey.com/hus/stryta-jadar/.
- 2Guðmundur L. Hafsteinsson (2006), bls. 46.
- 3Húsin í Flatey. Strýta (Jaðar) (ódags.). Sótt 30. desember 2023 af https://flatey.com/hus/stryta-jadar/.
Deila færslu
Síðast uppfært 28. október, 2024

