Ás á upprunalegum stað. Mynd líklega tekin 1870 til 1880. Heimild: Yrki arkitektar og Náttúrustofa Vestfjarða (2022, 5. apríl). Plássið. Vopnafjörður. Húsa- og fornleifakönnun, bls. 125. Drög í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
Ás á upprunalegum stað. Mynd líklega tekin 1870 til 1880. Heimild: Yrki arkitektar og Náttúrustofa Vestfjarða (2022, 5. apríl). Plássið. Vopnafjörður. Húsa- og fornleifakönnun, bls. 125. Drög í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.

Ás, Vopnafirði

Heiti: Ás - eldri Ás - Ás gamli
Byggingarár: <1870 ?
Horfið: <1946
Upphafleg notkun: Verslunarhús ?
Fyrsti eigandi: ?
Aðrir eigendur:
1907: Framtíðin ?
1927: Sigurður Þorbjörn Sveinsson og Katrín Ingibjörg Pálsdóttir
Upphafleg staðsetning: Þar sem Hafnarbyggð 4 A er á Vopnafirði (2023)
Fyrst flutt: Um 1882 ofan við götuna
Flutt: 1927 þar sem Hafnarbyggð 37 á Vopnafirði er nú (2023)
Hvernig flutt: Flutt í heilu lagi mað hest- og mannafli
Ás 2

Ás eftir flutning. Heimild: Yrki arkitektar og Náttúrustofa Vestfjarða (2022, 5. apríl). Plássið. Vopnafjörður. Húsa- og fornleifakönnun, bls. 125. Drög í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.

Saga:

Á ljósmynd sem líklega var tekin á árunum frá 1870 til 1880 sést í gafl á húsi sem stóð þar sem hið stóra og glæsilega hús Kaupvangur á Vopnafirði stendur nú (2023). Það hús er skráð á lóðinni Hafnarbyggð 4 A og var byggt árið 1882. Þegar stóð til að byggja Kaupvang var litla húsið sett ofar götunnar, líklega þar sem torgið og minnismerkið er nú. Þar lá húsið undir skemmdum því sjór fór fljótt að grafa undan því. Árið 1927 keypti Sigurður Sveinsson (1892-1978) húsið og flutti það í heilu lagi með hest- og mannafla utar (norðar) í þorpið á svokallaðan Kolbeinstanga, á þær slóðir sem Hafnarbyggð 37 er í dag, en það hús er einnig kallað Ás.1Yrki arkitektar og Náttúrustofa Vestfjarða (2022, 5. apríl), bls. 125; Vopnafjarðarhreppur (ódags). Sótt 7. apríl 2023 af https://vopnafjardarhreppur.is/thjonusta/menning/husaskra Nýi Ás var byggður árið 1946 og hefur því gamli Ás væntanlega verið rifinn fyrir þann tíma.

Sigurður ræktaði stórt tún við húsið og hafði lengi eina til tvær kýr og kindur. Eiginkona hans var Ingibjörg Pálsdóttir (1891-1978). Hún var ljósmóðir í Vopnafirði í 26 ár. Líklega hefur búskapurinn verið að miklu leyti í höndum Ingibjargar og 5 barna þeirra hjóna, því Sigurður var stauramaður við símalagnir um land allt og var hann því fjarri heimili sínu stóran hluta ársins, yfirgaf það jafnan seinni hluta vetrar og kom naumast heim fyrr en langt var liðið á haust.2Sveitir og jarðir í Múlaþingi. I. bindi. Strönd, Vopnafjörður, Jökulsárhlíð, Jökuldalur, Hróarstunga, Fell (1974), bls. 117. [Egilsstöðum:] Búnaðar­samband Austur­lands; Einar J. Gíslason (1979, 13. október). Hjónaminning: Ingibjörg Pálsdóttir ljósmóðir og Sigurður Þorbjörn Sveinsson. Íslendingaþættir Tímans, bls. 5-6. 33. tbl. 1979.

En snúum okkur aftur að uppruna hússins. Í heimildum segir að Sigurður hafi keypt húsið af Framtíðinni árið 1927. Væntanlega er átt við verslunarfélagið Framtíðina sem var starfandi á Vopnafirði á árunum 1907 til 1926, en þá keypti Guðni J. Kristjánsson kaupmaður (1885-1932) allar eignir félagsins á Vopnafirði. Því er ekki ljóst hvort Sigurður keypti húsið úr þrotabúi Framtíðarinnar eða af Guðna kaupmanni.3Sveitir og jarðir í Múlaþingi. I. bindi. Strönd, Vopnafjörður, Jökulsárhlíð, Jökuldalur, Hróarstunga, Fell (1974), bls. 117; Á. J. (1932, 31. ágúst). Minning: Guðni J. Kristjánsson kaupmaður. Austfirðingur, bls. 1, 26. tbl. 1932. Ekki er heldur ljóst hver reisti húsið upphaflega, en ekki er ólíklegt að verslunarfélagið Örum og Wulff, sem reisti Kaupvang árið 1882, hafi átt húsið og ákveðið að nýta lóðina fyrir hið veglega hús sem hýsti verslun og verslunarstjóra félagsins.

 

Leitarorð: Vopnafjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. desember, 2023

Heimildaskrá

  • 1
    Yrki arkitektar og Náttúrustofa Vestfjarða (2022, 5. apríl), bls. 125; Vopnafjarðarhreppur (ódags). Sótt 7. apríl 2023 af https://vopnafjardarhreppur.is/thjonusta/menning/husaskra
  • 2
    Sveitir og jarðir í Múlaþingi. I. bindi. Strönd, Vopnafjörður, Jökulsárhlíð, Jökuldalur, Hróarstunga, Fell (1974), bls. 117. [Egilsstöðum:] Búnaðar­samband Austur­lands; Einar J. Gíslason (1979, 13. október). Hjónaminning: Ingibjörg Pálsdóttir ljósmóðir og Sigurður Þorbjörn Sveinsson. Íslendingaþættir Tímans, bls. 5-6. 33. tbl. 1979.
  • 3
    Sveitir og jarðir í Múlaþingi. I. bindi. Strönd, Vopnafjörður, Jökulsárhlíð, Jökuldalur, Hróarstunga, Fell (1974), bls. 117; Á. J. (1932, 31. ágúst). Minning: Guðni J. Kristjánsson kaupmaður. Austfirðingur, bls. 1, 26. tbl. 1932.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. desember, 2023