Hlaðbrekka 22, Kópavogi
Tveir menn með yfirbyggðar hestakerrur á Fríkirkjuvegi í Reykjavík, 1925-1935. Sá fremri er Sveinn úr Bráðræði. Ljósm.: Karl Nielsen. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Mynd nr. KAN 0578.jpg. Sótt 10. október 2023 af https://ljosmyndasafn.reykjavik.is/.
Bráðræði á Bráðræðisholti, líklega skömmu áður en það var flutt í Kópavoginn. Heimild: Pétur Pétursson (2000, 27. ágúst). Sögufrægt hús. Morgunblaðið, bls. 14-15 B.
Saga:
Bærinn Bráðræði, sem Bráðræðisholtið í Reykjavík er kennt við, stóð nokkurn veginn þar sem húsið Grandavegur 37 er nú staðsett. Þar rak Thor Jensen umfangsmikinn búskap í byrjun síðustu aldar og lét m.a. reisa þar 30 kúa fjós, sem var með sjálfbrynningarbúnaði sem þótti mikil nýlunda. Íbúðarhúsið þótti veglegt þegar það var reist árið 1904, en varð síðar hrörnun að bráð.
Árið 1910 voru hjónin Sveinn Jón Einarsson (1872-1960) og Helga Ólafsdóttir (1899-1953) eigendur Bráðræðis. Þar voru þau með búskap auk þess sem Sveinn stundaði ýmsa aðra vinnu, var kaupmaður, steinsmiður og hreinsaði úr kömrum bæjarbúa á nóttunni. Til þess notaði hann hest og kerru sem var með yfirbyggðum kassa (sjá mynd).
Það hefur líklega verið árið 1954 sem húsið var flutt að Hlaðbrekku 22 í Kópavogi, því það ár er skráð byggingarár hússins í fasteignskrá. Þar stendur húsið enn, mikið breytt, því byggt hefur verið við það og settur á það stór kvistur, en þrátt fyrir það má greina gamla húsið í vesturhluta hússins.1Pétur Pétursson (2000, 27. ágúst). Sögufrægt hús. Morgunblaðið, bls. 14-15 B.; Þorsteinn Jónsson (2011). Reykvíkingar. Fólkið sem breytti Reykjavík úr bæ í borg, bls. 635-636. Reykjavík: Sögusteinn; Páll Líndal (1991). Reykjavík. Sögustaður við Sund. 1. bindi, A – G, bls. 99. Reykjavík: Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf.
Leitarorð: Kópavogur
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. desember, 2023
Heimildaskrá
- 1Pétur Pétursson (2000, 27. ágúst). Sögufrægt hús. Morgunblaðið, bls. 14-15 B.; Þorsteinn Jónsson (2011). Reykvíkingar. Fólkið sem breytti Reykjavík úr bæ í borg, bls. 635-636. Reykjavík: Sögusteinn; Páll Líndal (1991). Reykjavík. Sögustaður við Sund. 1. bindi, A – G, bls. 99. Reykjavík: Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf.
Deila færslu
Síðast uppfært 14. desember, 2023

