Saga:
Í apríl 1905 var virt til brunabóta hús sem Jón Bjarnason verslunarmaður hafði byggt við Grettisgötu 6 í Reykjavík. Húsið var einlyft með porti, kvisti og risi.1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Aðfnr. 735. Bók 1900-1905. Sótt 4. desember 2023 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/735-bok-02-04-1900-til-13-11-1905-adfnr-735.pdf Í virðingunni er húsinu þannig lýst:
Hús þetta er byggt af binding, klætt utan með plægðum 1˝ borða súð með pappa á milli. Innan á binding er pappi og listar, og millum gólf í tveimur bitalögum. Niðri í húsi þessu eru 4 íbúðarherbergi, eldhús og 1 fastur skápur, sem allt er þiljað, og herbergin með striga og pappír á veggjum og lofttum, alt málað. Þar eru 3 ofnar og 1 eldavjel. Uppi eru 6 íbúðarherbergi og gangur sem alt er þiljað, og 5 herbergin með striga og pappír á veggjum súð og loftum; alt málað. þar eru 2 ofnar og 1 eldavjel. Lengd 13½ ál. breidd 12 ál. hæð 6½ á. …
Við vesturgafl er inngönguskúr byggður eins og húsið. …
Við suðurhlið hússins er inn og uppgönguskúr byggður eins og húsið.2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Aðfnr. 735. Bók 1900-1905.
Samkvæmt ofanrituðu hefur húsið sjálft verið tæpir 64 fermetrar að grunnfleti með tveimur íbúðum sem hvor um sig hafði sér inngang.
Ef Jón hefur flutt í húsið eftir að það var byggt hefur hann ekki búið þar lengi, því í manntali frá 1910 er hann ekki talinn til íbúa hússins. Þar býr þá Marie Jónsson (fædd Nissen) (1846-1920), ekkja Sigurðar Jónssonar (1839-1909), fangavarðar og umsjónarmanns Hegningarhússins við Skólavörðustíg, með tveimur fullorðnum börnum sínum. Einnig bjuggu þar hjónin Vigfús Guðbrandsson (1883-1963) klæðskeri og María Sigurðardóttir (1886-1936), dóttir Sigurðar fangavarðar, ásamt ungum syni þeirra, vinnukonu og ungum manni sem var leigjandi í húsinu.3Manntal 1910. Grettisgata 6, Reykjavíkursókn, Reykjavík. Sótt 5. ágúst 2020 af http://manntal.is/; Trúlofanir (1906, 20. janúar), Reykjavík, bls. 11. Sigurði fangaverði auðnaðist ekki að vera lengi í húsinu því hann lést þar árið 1909. Frú Marie var seinni kona hans og saman eignuðust þau 11 börn, en auk þess að hugsa um heimili og börn matreiddi Marie handa föngunum í Hegningarhúsinu. Hún andaðist árið 1920 og bjó þá enn í húsinu.4Sigurður Jónsson fangavörður og kona hans (1924, 1. júlí). Óðinn, 20. árg., 7.-12. tbl., bls. 90: Vísir (1920, 3. ágúst), 10. árg., 203. tbl., bls. 1.
Margskonar starfsemi fór fram í húsinu númer 6 við Grettisgötu. Strax árið eftir byggingu þess er auglýst að þar sé saumaður allskonar léreftsfatnaður og íslenskur kvenfatnaður5Ísafold (1906, 1. desember), bls. 315. og hefur Vigfús klæðskeri væntanlega staðið fyrir því. Árið 1915 eru auglýstar rósir til sölu í húsinu, árið 1921 tekur Þuríður Sigurðardóttir að sér að koma fatnaði til Kaupmannahafnar til litunar og hreinsunar, danskt tryggingafélag hafði þar aðstöðu og árið 1938 flutti Jón Dalmannsson gullsmíðaverkstæði sitt í húsið. Þar var verkstæðið rekið til ársins 1946, en þá var gamla timburhúsið flutt inn í Kleppsholt og nýtt hús byggt á lóðinni. Á meðan nýja húsið var í byggingu var verkstæðið til húsa á Grettisgötu 2, en flutti svo aftur að Grettisgötu 6 og nú var jafnframt opnuð skrautgripaverslun.6Morgunblaðið (1915, 2. maí), 2. árg., 177. tbl., bls. 8; Gamalt gert nýtt! (1921, 8. apríl). Morgunblaðið, 8. árg., 130. tbl., bls. 2., bls. 2; Morgunblaðið (1931, 20. maí), 18. árg., 113. tbl., bls. 4; Tíminn (1941, 19. apríl), 25. árg., 44. tbl., bls. 180; Gullkistan (ódags.). Fyrirtækið. Sótt 5. ágúst 2020 af http://thjodbuningasilfur.is/index.php?option=com_content&view=article&id=296&Itemid=223.
Þegar til stóð að reisa veglegt fjölbýlishús á lóðinni við Grettisgötu var gamla húsið flutt að Skipasundi 68 og stendur þar enn lítið breytt.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. desember, 2023
Heimildaskrá
- 1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Aðfnr. 735. Bók 1900-1905. Sótt 4. desember 2023 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/735-bok-02-04-1900-til-13-11-1905-adfnr-735.pdf
- 2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Aðfnr. 735. Bók 1900-1905.
- 3Manntal 1910. Grettisgata 6, Reykjavíkursókn, Reykjavík. Sótt 5. ágúst 2020 af http://manntal.is/; Trúlofanir (1906, 20. janúar), Reykjavík, bls. 11.
- 4Sigurður Jónsson fangavörður og kona hans (1924, 1. júlí). Óðinn, 20. árg., 7.-12. tbl., bls. 90: Vísir (1920, 3. ágúst), 10. árg., 203. tbl., bls. 1.
- 5
- 6Morgunblaðið (1915, 2. maí), 2. árg., 177. tbl., bls. 8; Gamalt gert nýtt! (1921, 8. apríl). Morgunblaðið, 8. árg., 130. tbl., bls. 2., bls. 2; Morgunblaðið (1931, 20. maí), 18. árg., 113. tbl., bls. 4; Tíminn (1941, 19. apríl), 25. árg., 44. tbl., bls. 180; Gullkistan (ódags.). Fyrirtækið. Sótt 5. ágúst 2020 af http://thjodbuningasilfur.is/index.php?option=com_content&view=article&id=296&Itemid=223.
Deila færslu
Síðast uppfært 14. desember, 2023

