Hafnargata 13, Fáskrúðsfirði
Saga:
Konráð Hjálmarsson (1858-1939) var mikill athafnamaður á Austurlandi á sinni tíð og setti verulegt mark á byggðarlögin tvö sem hann starfaði í, Mjóafjörð og Norðfjörð. Hann rak umfangsmikla útgerð og verslun, byggði fyrsta íshús landsins og lét til sín taka í málefnum sveitarfélaganna. Árið 1880 kvæntist hann Sigríði Jónsdóttur (1859-1915) og eignuðust þau tvö börn. Sama ár hófu þau búskap í Mjóafirði, fyrst í svokölluðu Vöruhúsi, en 1883 fluttu þau við 12. mann í nýbyggt glæsilegt íbúðar- og verslunarhús. Það hús brann í nóvember 1896, en næsta sumar var nýtt hús risið.1Vilhjálmur Hjálmarsson (1990). Mjófirðingasögur. Þriðji hluti, bls. 229-238. Reykjavík: Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
Konráðshús hið nýja var glæsileg bygging eins og myndir sýna og vel snyrt umhverfi þess að því er virðist. Á þrjá vegu voru eggsléttar grasflatið, en að ofan (norðan) var hið næsta steinsteypt stétt við vesturhluta, en blómabeð austan við litla ytri forstofu, þá malborin Þorpsgata og svo ístjörnin [þar sem tekinn var ís til notkunar í íshúsinu] …. Nokkrum metrum austan við húsið var vandlega hirtur skrúðgarður, framundan hrein malarfjara að flæðarmáli, skilin frá grasflötinni með lágum stauravegg.2Vilhjálmur Hjálmarsson (1990), bls. 238.
Eftirfarandi lýsingu á húsaskipan í Konráðshúsi birti Vilhjálmur Hjálmarsson í Múlaþingi, sem hann hafði að mestu eftir Hermanni Vilhjálmssyni frá Brekku:
Neðri hæð. – Þvert yfir vesturendann var búðin, Konráðsbúð, gengið inn um Búðarskúrinn á vesturstafni miðjum.
Inn úr búðinni var að norðan gengið inn í Pakkkamers en að sunnan í skrifstofu og úr henni í einkaskrifstofu kaupmanns.
Við norðurhlið hússins var ytri forstofa, dyr til vesturs, gengið inn af steinstéttinni. Í innri forstofu var stigi upp á loftið og fjórar dyr, frá ytri forstofu að norðan, til eldhúss að austan, skrifstofu kaupmanns að sunnan og í Pakkkamersið að vestan. En vörur voru teknar inn um op eða dyr á norðurhlið þess. Úr eldhúsinu var svo gengið inn í borðstofu í norðaustur horni hússins. Úr borðstofu var gengið til dagstofu í suðaustur horninu og þaðan til vesturs í minni stofu sem kölluð var kabinett og lá að skrifstofu kaupmanns.
Ekki voru dyr milli þeirra herbergja.
Á austurvegg dagstofu voru dyr fram í rúmgóða ytri forstofu — frá henni steinsteyptar tröppur til suðurs.
Efri hæð. – Á loftinu var gangur eftir endilöngu, gluggi á vesturstafni og dyr að austan.
Þar var gengið út á svalir sem höfðu stoð af forstofunni.
Á suðurhlið voru tveir kvistir. Svefnherbergi hjóna á austurkvisti, gesta á þeim vestari. Til hliðar við ganginn voru fjögur herbergi með gluggum á stöfnum. …
Tveir minni kvistir voru á norðurhlið og herbergi vinnustúlkna á þeim austari. Vesturhluti norðurloftsins var nýttur sem vörugeymsla. Í norðurskúrnum var loft. Þar hafði heimasætan Sigfríður leikherbergi fram að fermingu – snyrtilegt, allt í röð og reglu, sögðu þeir sem sáu.
Kjallari. – Hann var minni en ætla mætti eftir stærð hússins. En veggir hans voru mjög þykkir, hlaðnir úr ótilhöggnu grjóti, steinlímdir.
Þeir munu haf náð rösklega meter upp úr jörð að sunnan, sléttaðir að utan og málaðir í dökkum lit. Vörur voru geymdar í kjallaranum, væntanlega þær grófari og þyngri.
Hermann Vilhjálmsson sagði að Konráð hefði látið mála hús sín í gulum lit með hvíta karma og dökk þök. Búðin smekklega máluð, innréttingar vandaðar, vörur í hillum og skúffum og líka hengdar upp.
Búðarskúrinn óþiljaður innan og þó snyrtilegur.3Vilhjálmur Hjálmarsson (2007). Konráðshús – með meiru, bls. 144-145. Múlaþing, 34. hefti., bls. 141-149.
Árið 1912 skilja leiðir þeirra Konráðs og Sigríðar. Hann flytur til Norðfjarðar en hún ásamt dóttur sinni til Seyðisfjarðar.4Vilhjálmur Hjálmarsson (1990), bls. 238.
Árið 1918 keypti Guðmundur Jónsson útgerðarmaður í Króki á Fáskrúðsfirði húsið, tók það niður og flutti viði þess til Fáskrúðsfjarðar. Þar notaði hann viðina til að reisa hús ofan á salthúsi á einni hæð sem hann átti og stóð við Hafnargötu 13. Gera má ráð fyrir að ráð fyrir að húsinu hafi verið nokkuð breytt miðað við upprunalegt útlit þess. Húsið fékk nafnið Valhöll á nýja staðnum. 5Valhöll fær nýtt útlit (2005, 5. október). Sótt 14. mars 2023 af https://lvf.is/2005/10/05/valholl-faer-nytt-utlit/
Árið 1942 kaupir Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga húsið og setur þar á fót saumastofu. Valhöll hefur gegnt hinum margvíslegustu hlutverkum á Fáskrúðsfirði. Það var m.a fyrsta fjölbýlishúsið á staðnum, en kunnast mun það vera sem Hótel Valhöll, en þar var rekin gisting og mötuneyti af kaupfélaginu í áratugi. Í húsinu eru 13 svefnherbergi með 25 rúmum, eldhús og matsalur. Auk saumastofunnar, var í húsinu m.a. póstur og sími, bakarí, raftækjaverslun, bókabúð og verkfræðistofa.6Valhöll fær nýtt útlit (2005, 5. október).
Nú (2023) er húsið í eigu Loðnuvinnslunnar hf. og hefur verið notað sem verbúð mörg síðustu ár, aðallega fyrir erlenda starfsmenn vinnslunnar.
Þess má geta að innréttingarnar úr Konráðsbúð voru settar í húsið sem byggt var árið 1918 við Hafnargötu 11 á Seyðisfirði. Þar störfuðu ýmsar verslanir, síðast Áfengis og tóbaksverslun ríksins og húsið því kallað Ríkið. Húsið ásamt innréttingunum var friðlýst árið 2009.7Vilhjálmur Hjálmarsson (2007), bls. 141; Minjastofnun Íslands. Friðlýst hús og mannvirki. Hafnargata 11, Ríkið, Seyðisfirði. Sótt 4. júlí 2024 af https://www.minjastofnun.is/is/byggingararfur/fridlyst-hus-og-mannvirki/hafnargata-11-rikid-seydisfirdi.
Leitarorð: Mjóifjörður – Fáskrúðsfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 4. júlí, 2024
Heimildaskrá
- 1Vilhjálmur Hjálmarsson (1990). Mjófirðingasögur. Þriðji hluti, bls. 229-238. Reykjavík: Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
- 2Vilhjálmur Hjálmarsson (1990), bls. 238.
- 3Vilhjálmur Hjálmarsson (2007). Konráðshús – með meiru, bls. 144-145. Múlaþing, 34. hefti., bls. 141-149.
- 4Vilhjálmur Hjálmarsson (1990), bls. 238.
- 5Valhöll fær nýtt útlit (2005, 5. október). Sótt 14. mars 2023 af https://lvf.is/2005/10/05/valholl-faer-nytt-utlit/
- 6Valhöll fær nýtt útlit (2005, 5. október).
- 7Vilhjálmur Hjálmarsson (2007), bls. 141; Minjastofnun Íslands. Friðlýst hús og mannvirki. Hafnargata 11, Ríkið, Seyðisfirði. Sótt 4. júlí 2024 af https://www.minjastofnun.is/is/byggingararfur/fridlyst-hus-og-mannvirki/hafnargata-11-rikid-seydisfirdi.
Deila færslu
Síðast uppfært 4. júlí, 2024
