Skipasund 33, Reykjavík
Grettisgata um 1920. Fremst er Grettisgata 23 þar sem sést í steinsteyptan vesturgafl hússins. Við hlið þess er Frakkastígur 12, sem enn stendur. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Myndavefur. Mynd nr. 2011 1 02.jpg.
Skipasund 33 í júlí 2010. Ljósm.: Höfundur.
Saga:
Hús þetta var byggt við Grettisgötu 23 í Reykjavík og var þá kallað Folaldið. Árið 1945 flutti þáverandi eigandi þess, Guðmundur Jónsson skósmiður, húsið að Skipasundi 33 og gerði um leið á því allmiklar endurbætur.1Bjarnfríður Vilhjálmsdóttir (2009, 25. september). Tölvupóstur; Minjasafn Reykjavíkur (ódags.). Húsaskrá. Skipasund 33.
Árið 1943, áður en húsið var flutt, var því þannig lýst í brunavirðingu:
Íbúðarhús, með risi og kjallara, einlyft úr binding, klætt utan plægðum borðum, pappa, listum og járni þar yfir á 3 hliðar, en vesturgafl er úr steinsteypu. Þak er úr plægðri borðasúð, pappa, listum og járni þar yfir. Innan á binding er pappi og milligólf er í neðra bitalagi. Á aðalhæðinni eru 2 íbúðarherbergi og eldhús, sem allt er þiljað og herbergin með striga og pappír á loftum og veggjum, allt málað. Á efri bitalögum eru plægð gólfborð. Kjallari eru undir öllu húsinu til geymslu.2Minjasafn Reykjavíkur (ódags.). Húsaskrá. Skipasund 33.
Húsið var þá 5,6 x 5,7 m með inngönguskúr við norðurhlið þar sem einnig var salerni. Húsið var sett á steyptan kjallara í Skipasundi þar sem innréttuð var tveggja herbergja íbúð, en flatarmál hússins hélst óbreytt. Íbúðinni á hæðinni var gert til góða og þar sett rafmagnseldavél og miðstöð, en kjallarinn var hitaður með hráolíuofni.3Minjasafn Reykjavíkur (ódags.). Húsaskrá. Skipasund 33. Eins og fram kemur var vesturgafl hússins upphaflega steinsteyptur, eins og sést á ljósmynd hér að ofan. Ekki er vitað hvernig það mál var leyst við flutning hússins. Ekki verður séð að húsinu hafi verið breytt mikið síðan það var flutt, en líklega hefur verið skipt um utanhússklæðningu.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. desember, 2023
Heimildaskrá
- 1Bjarnfríður Vilhjálmsdóttir (2009, 25. september). Tölvupóstur; Minjasafn Reykjavíkur (ódags.). Húsaskrá. Skipasund 33.
- 2Minjasafn Reykjavíkur (ódags.). Húsaskrá. Skipasund 33.
- 3Minjasafn Reykjavíkur (ódags.). Húsaskrá. Skipasund 33.
Deila færslu
Síðast uppfært 14. desember, 2023

