Túngata 15, 1920-1922. Hluti myndar. Ljósm.: Valgeir Björnsson. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Myndavefur. Mynd nr. L67 001 073 2-1.jpg
Túngata 15, 1920-1922. Hluti myndar. Ljósm.: Valgeir Björnsson. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Myndavefur. Mynd nr. L67 001 073 2-1.jpg

Smyrilsvegur 28, Reykjavík

Byggingarár: 1884
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: ?
Aðrir eigendur:
1929: Kristín Árnadóttir og Eyjólfur Brynjólfsson
Upphafleg staðsetning: Túngata 15, Reykjavík
Flutt: 1929 að Smyrilsvegi 28, Reykjavík
Hvernig flutt: Tekið niður næstum fjöl fyrir fjöl og flutt á handvagni
Smyrilsvegur 28b

Túngata 15 lengst til hægri og umhverfi 1920-1922. Í forgrunni sjást framkvæmdir við grunn Túngötu 18. Húsið með þremur kvistum vi. megin á myndinni er Suðurgata 4. Ljósm.: Valgeir Björnsson. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Myndavefur. Mynd nr. L67 001 073 2-1.jpg

Smyrilsvegur 28 1

Smyrilsvegur 28, árið 1971. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Myndin er í eigu Eyjólfs Brynjólfssonar.

Saga:

Svolítill þéttbýliskjarni myndaðist á Grímsstaðaholti á árunum 1918-1920, sem smám saman stækkaði. Einn þeirra sem kom sér þarna eigin þaki yfir höfuðið var Eyjólfur Brynjólfsson (1891-1973)  ásamt konu sinni, Kristínu Árnadóttur (1899-1974). Árið 1929 festu þau kaup á húsi nr. 15 við Túngötu, sem þurfti að flytja þaðan vegna nýs skipulags, en húsið hafði staðið þar síðan 1884. Húsið stóð gegnt húsi sem nr. 18 við Túngötu, þar sem nú (2023) er bílastæði við norð-austurhorn Landakotstúns. Þegar húsið var rifið bjó þar Kristín Egilsdóttir. „Hún var fyrsta kona Jóns Laxdal og er því stundum kölluð Kristín Laxdal.“

Eyjólfur tók það til bragðs að taka húsið niður næstum því fjöl fyrir fjöl og flytja á handvagni alla leið suður á Grímsstaðaholt, þar sem hann hafði fengið lóð númer 28 við Smyrilsveg og byggt þar undir húsið steyptan kjallara. Erfitt er að ímynda sér hversu margar ferðir Eyjólfur hefur þurft að fara, en upp komst húsið og ungu hjónin fluttu inn með barnahópinn sinn.

Húsið var byggt nákvæmlega eins og það var á Túngötunni, einlyft, með porti, risi og kjallara. Í kjallara hússins var eina þvottahúsið í hverfinu og fengu því nágrannakonur að þvo þvotta sína hjá Kristínu. Þrátt fyrir að húsið sé aðeins 45,5 m² bjuggu allt að 12 manns í húsinu í tveimur  íbúðum. Þrjú herbergi voru á neðri hæðinni, eldhús og stigagangur. Þar hafa þau Kristín og Eyjólfur væntanlega búið ásamt átta börnum (árið 1940). Í risinu voru tvö herbergi, eldhús og gangur, þar sem hjón með eitt barn bjuggu, en risíbúðina leigðu þau Kristín og Eyjólfur út þar til börn þeirra hófu búskap, en flest þeirra stofnuðu sitt fyrsta heimili þarna í risinu. T.d. byrjaði Brynjólfur sonur þeirra sinn búskap þar ásamt Svanhvíti Stellu Ólafsdóttur. Áður en þau fluttu úr húsinu voru börn þeirra orðin fimm.

Smyrlisvegur 28 í júlí 2022. Ljósm.: ja.is.

Hjónin unnu bæði utan heimilis, Eyjólfur var lengi á sjó og Kristín stundaði fiskvinnu. Auk þess áttu þau kindur, kýr, hesta og hænur sem þau hýstu á lóð sinni og var umhirða þeirra að einhverju leyti í verkahring barnanna.1Freyja Jónsdóttir (2003, 20. maí). Smyrilsvegur 28. Morgunblaðið, Heimili Fasteignir, bls. B 42; Drífa Kristín Þrastardóttir, Helga Maureen Gylfadóttir og Guðný Gerður Gunnarsdóttir (2008). Húsakönnun. Grímsstaðaholtið og nágrenni. Skýrsla nr. 140, bls. 98. Reykjavík: Minjasafn Reykjavíkur; Minjasafn Reykjavíkur (ódags.). Húsaskrá. Túngata 15, þar sem tilvitnun er; Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Myndavefur. Mynd nr. L67 001 073 2-1.jpg; Eyjólfur Brynjólfsson (2024, 12. júní). Tölvupóstur.

Þess má geta að á stríðsárunum stóð elsti tengdasonur þeirra hjóna, Jón Veturliðason, fyrir því að selja „Fish & Chips“ í kjallara hússins og Kristín þvoði fatnað af hermönnum með aðstoð dætra sinna, enda herkampar allt um kring þar sem fjöldi hermanna bjó.2Eyjólfur Brynjólfsson (2024, 12. júní). Tölvupóstur.

 

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 12. júní, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 12. júní, 2024