Aðalstræti 26 A, Ísafirði
Aðalstræti 26 A árið 2010. Ljósm.: Dagný Arnarsdóttir.
Aðalstræti 26 A árið 2020. Bragi Bergsson, Herborg Árnadóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir (2022). Ísafjörður - Neðstikaupstaður og gamli bærinn á Eyrinni. Húsakönnun, [bls. 55]. Sótt 9. nóvember 2023 af https://husaskraning.minjastofnun.is/Husakonnun_239.pdf.
Saga:
Í húsakönnuninni Ísafjörður – Neðstikaupstaður og gamli bærinn á Eyrinni er húsið sem nú er númer 26A við Aðalstræti á Ísafirði sagt byggt árið 1884. Um húsið segir þar m.a.:
Í virðingu frá árinu 1884 er íbúðarhús H.J. Bulls sagt byggt af stokkverki, 23 álnir á lengd, 12 á breidd og 6 á hæð. Henrik Johan Bull var norskur hvalveiðimaður og pólfari sem reyndi fyrir sér á Ísafirði með þorskveiðar.
Húsið stóð þá á Eyrartúni en árið 1888 keypti Th. Thorsteinsson húsið og flutti það að Aðalstræti.
Í virðingu frá því sama ári, er húsið orðið tvílyft, neðri hæðin stokkbyggð en efri hæðin bindingsverk.
Húsið var aftur virt árið 1896 og þá mikið endurbætt, allt málað að utan og framhlið þess skreytt. Á það voru komnar svalir og járnpumpa fyrir vatn var niður úr gólfinu í forstofunni.
Árið 1908 var svo komin útbygging á húsið með stiga upp á efri hæðina.1Bragi Bergsson, Herborg Árnadóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir (2022). Ísafjörður – Neðstikaupstaður og gamli bærinn á Eyrinni. Húsakönnun, [bls. 55]. Sótt 9. nóvember 2023 af https://husaskraning.minjastofnun.is/Husakonnun_239.pdf.

Aðalstræti 26A meðan símstöð var í húsinu. Jón Þ. Þór (1988). Saga Ísafjarðar og Eyrarhrepps hins forna. III. Bindi. Atvinnu- og hagsaga Ísafjarðarkaupstaðar 1867-1920. Eyrarhreppur 1867-1920, bls. 161. Ísafirði: Sögufélag Ísfirðinga.
Húsið er væntanlega flutt inn frá Noregi, eins og nafngiftin Norska húsið bendir til.
Árið 1888 keypti Þorsteinn Thorsteinsson, kaupmaður og bakari og alþingismaður um tíma, húsið.2Jón Þ. Þór (1986). Saga Ísafjarðar og Eyrarhrepps hins forna. II. bindi. Félags- og menningarsaga 1867-1920, bls. 42. Ísafirði: Sögufélag Ísfirðinga.
Þegar símstöð var opnuð á Ísafirði árið 1918 var hún til húsa í Aðalstræti 26 A, en þar bjó þá Guðmundur Bergsson póstmeistari. Á mynd af húsinu frá þeim tíma sem símstöð var í húsinu sjást símalínurnar greinilega.3Jón Þ. Þór (1988). Saga Ísafjarðar og Eyrarhrepps hins forna. III. Bindi. Atvinnu- og hagsaga Ísafjarðarkaupstaðar 1867-1920. Eyrarhreppur 1867-1920, bls. 160-161. Ísafirði: Sögufélag Ísfirðinga.
Húsinu hefur verið breytt mikið í tímans rás. Allt skraut hefur verið fjarlægt ásamt dyraumbúnaði og svölum.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 3. september, 2025
Heimildaskrá
- 1Bragi Bergsson, Herborg Árnadóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir (2022). Ísafjörður – Neðstikaupstaður og gamli bærinn á Eyrinni. Húsakönnun, [bls. 55]. Sótt 9. nóvember 2023 af https://husaskraning.minjastofnun.is/Husakonnun_239.pdf.
- 2Jón Þ. Þór (1986). Saga Ísafjarðar og Eyrarhrepps hins forna. II. bindi. Félags- og menningarsaga 1867-1920, bls. 42. Ísafirði: Sögufélag Ísfirðinga.
- 3Jón Þ. Þór (1988). Saga Ísafjarðar og Eyrarhrepps hins forna. III. Bindi. Atvinnu- og hagsaga Ísafjarðarkaupstaðar 1867-1920. Eyrarhreppur 1867-1920, bls. 160-161. Ísafirði: Sögufélag Ísfirðinga.
Deila færslu
Síðast uppfært 3. september, 2025

