Mjallargata 9, Ísafirði
Saga:
Um 1880 hófu þrjú norsk síldveiðifélög rekstur í Skutulsfirði í Ísafjarðardjúpi. Eitt þeirra, Haugesunds trankompani, var staðsett á Torfnesi, líklega á svipuðum slóðum og Framhaldsskóli Vestfjarða og Fjórðungssjúkrahús Vestfjarða standa nú. Þarna reisti fyrirtækið íbúðarhús og lýsisbræðslu árið 1882. Reksturinn varð þó ekki langlífur, því árið 1886 voru bæði húsin seld. Ásgeirsverslun keypti lýsisbræðsluna og flutti niður í Neðstakaupstað, þar sem hún var notuð lengi. Þorvaldur Jónsson héraðslæknir keypti hins vegar íbúðarhúsið, sem hann flutti út að Mjallargötu 9, byggði ofan á það ris og rak þar bókabúð í norðurstofunni og lyfsölu í suðurendanum. Réði hann fastan starfsmann til að sinna verslunarstörfunum bæði í lyfja- og bókabúðinni. Sjálfur bjó Þorvaldur í öðru húsi við sömu götu, en þar hafði hann lyfsöluna fyrst. Hann virðist hafa hætt rekstri lyfjabúðar í Mjallargötu 9 árið 1878 og flutti þá starfsemi aftur í íbúðarhús sitt.
Þorvaldur Jónsson (1837-1916) var settur héraðslæknir árið 1863.1Elísabet Gunnarsdóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir (2003). Ísafjörður og Vestfirðir – miðstöð hvalveiða, bls. 234. Í Hjörleifur Stefánsson, Kjell H. Halvorsen og Magnús Skúlason ritnefnd, Af norskum rótum – gömul timburhús á Íslandi, bls. 227-249. Reykjavík: Mál og menning.; Harpa Grímsdóttir (1999, júlí). Byggingarár húsa á Ísafirði, bls. 17. Reykjavík: Veðurstofa Íslands. Sótt 8. nóvember 2023 af https://www.vedur.is/media/vedurstofan/utgafa/greinargerdir/1999/99014.pdf.; Jón Þ. Þór (1986). Saga Ísafjarðar og Eyrarhrepps hins forna. II. bindi. Félags- og menningarsaga 1867-1920, bls. 306-306. Ísafirði: Sögufélag Ísfirðinga; Mjallargata 9, Ísafirði, verknr. 2380 í gagnasafni Minjastofnunar Íslands; Hreinn Ragnarsson og Steinar J. Lúðvíksson (ritstjórar) (2007). Síldarstaðir á 19. öld, bls. 189-190. Í Silfur hafsins. Gull Íslands. Síldarsaga Íslendinga. 1. bindi, bls. 117-196. Reykjavík: Nesútgáfan; Kristján Jónsson (1957). Þorvaldur Jónsson, læknir, bls. 108-109. Ársrit Sögufélags Ísfirðinga, 2, bls. 102-130. Hann kom
mikið við almenn mál kaupstaðarins og var einn þekktasti borgari hans á síðari hluta 19. aldar og öndverðri þeirri 20. Má með miklum rétti segja, að varla hafi meiriháttar máli verið ráðið til lykta á Ísafirði á þessum árum, án þess að Þorvaldur kæmi þar nærri.2Jón Þ. Þór (1986), bls. 303.
Meðal annars var hann í fyrstu bæjarstjórn á Ísafirði árið 1866 og sama ár varð hann fyrsti forseti Lestrarfélags Ísfirðinga við stofnun þess. Auk þess var hann m.a. sparisjóðs- og bankastjóri og hafði forgöngu um að nýtt sjúkrahús reis af grunni árið 1896.3Jón Þ. Þór (1984). Saga Ísafjarðar og Eyrarhrepps hins forna. I. bindi. Fram til árins 1866, bls. 209, 272 og 275 Ísafirði: Sögufélag Ísfirðinga; Jón Þ. Þór (1986), bls. 303-306.
Húsið að Mjallargötu 9 stendur enn. Það komst í eigu Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi árið 1992. Árið 1999 var byggð kapella sem nefnd er Jóhannesarkapella og bílskúr við húsið, en árið 1943 hafði verið byggt anddyri við það.4Mjallargata 9, Ísafirði, verknr. 2380 í gagnasafni Minjastofnunar Íslands; Elísabet Gunnarsdóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir (ódags.), bls. 103.
Leitarorð: Skutulsfjörður – Ísafjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. september, 2025
Heimildaskrá
- 1Elísabet Gunnarsdóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir (2003). Ísafjörður og Vestfirðir – miðstöð hvalveiða, bls. 234. Í Hjörleifur Stefánsson, Kjell H. Halvorsen og Magnús Skúlason ritnefnd, Af norskum rótum – gömul timburhús á Íslandi, bls. 227-249. Reykjavík: Mál og menning.; Harpa Grímsdóttir (1999, júlí). Byggingarár húsa á Ísafirði, bls. 17. Reykjavík: Veðurstofa Íslands. Sótt 8. nóvember 2023 af https://www.vedur.is/media/vedurstofan/utgafa/greinargerdir/1999/99014.pdf.; Jón Þ. Þór (1986). Saga Ísafjarðar og Eyrarhrepps hins forna. II. bindi. Félags- og menningarsaga 1867-1920, bls. 306-306. Ísafirði: Sögufélag Ísfirðinga; Mjallargata 9, Ísafirði, verknr. 2380 í gagnasafni Minjastofnunar Íslands; Hreinn Ragnarsson og Steinar J. Lúðvíksson (ritstjórar) (2007). Síldarstaðir á 19. öld, bls. 189-190. Í Silfur hafsins. Gull Íslands. Síldarsaga Íslendinga. 1. bindi, bls. 117-196. Reykjavík: Nesútgáfan; Kristján Jónsson (1957). Þorvaldur Jónsson, læknir, bls. 108-109. Ársrit Sögufélags Ísfirðinga, 2, bls. 102-130.
- 2Jón Þ. Þór (1986), bls. 303.
- 3Jón Þ. Þór (1984). Saga Ísafjarðar og Eyrarhrepps hins forna. I. bindi. Fram til árins 1866, bls. 209, 272 og 275 Ísafirði: Sögufélag Ísfirðinga; Jón Þ. Þór (1986), bls. 303-306.
- 4Mjallargata 9, Ísafirði, verknr. 2380 í gagnasafni Minjastofnunar Íslands; Elísabet Gunnarsdóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir (ódags.), bls. 103.
Deila færslu
Síðast uppfært 2. september, 2025
