Saga:
Árið 1882 byggði Magnús Pálsson múrari þetta hús fyrir Bjarna Guðnason á lóð númer 16 við Laugaveg. Húsið var úr bindingi múruðum með múrsteini og klætt með borðum á veggjum en járn var á þaki. Stærð þess var 8 x 7 x 3½ álnir. Árið 1891 var búið að breikka húsið í 13 álnir og fjórðungi betur. Um 1907 var byggður skúr við húsið.
Árið 1922 var húsið flutt á baklóð við Þórsgötu og hefur númerið 20 B.1Helga Maureen Gylfadóttir og Guðný Gerður Gunnarsdóttir (2008). Húsakönnun. Baldursgata – Þórsgata – Njarðargata – Freyjugata. Skýrsla nr. 138, bls. 34. Reykjavík: Minjasafn Reykjavíkur. Það þurfti að víkja þegar stórhýsið sem m.a. hýsti Laugarvegsapótek var reist.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 13. desember, 2023
Deila færslu
A - F
G - K
L - S
S - Þ