Túngata 10, Eskifirði
Saga:
Hús þetta lét frú Gytte Thorlacius, ekkja Bjarna Thorlacius, læknis á Eskifirði, byggja eftir dauða manns síns. Hann lést árið 1867 en húsið mun hafa verið reist á árunum 1870 til 1880, þó nær 1880. Gytte lést á útmánuðum 1881 og entist henni ekki aldur til að sjá húsið fullsmíðað. Húsið stóð á svokölluðu Bleiksártúni, skammt innan við þorpið í Eskifirði, en nákvæm staðsetning er ekki þekkt.
Bræðurnir Finnur og Guðni Vigfússynir keyptu húsið þegar búið var að reisa það undir þak og fluttu það út í mitt kauptúnið árið 1886, þar sem það stendur enn og er nr. 10 við Túngötu. Húsið er ýmist kallað Finnshús eða Guðnahús, en hefur einnig verið nefnt Gytteborg.1Eskja 1. Örnefni við Eskifjörð. Sögur og sagnir af örnefnasvæðinu (1971). Sögurit Eskfirðinga I. bindi, bls. 59 og 181. Einar Bragi Sigurðsson sá um útgáfuna. Eskifirði: Byggðasögunefnd Eskifjarðar; Eskja 2. Eskifjarðarkaupstaður. Upphaf byggðar og fríhöndlunar (1977). Sögurit Eskfirðinga II. bindi, bls. 13. Einar Bragi Sigurðsson aflaði fanga og færði í letur. Eskifirði: Byggðasögunefnd Eskifjarðar; Kristín Ágústsdóttir (2001, maí). Byggingarár húsa á Eskifirði, bls. 6. Unnið fyrir Veðurstofu Íslands. Neskaupstað: Náttúrustofa Austurlands. Sótt 6. nóvember 2023 af https://www.vedur.is/gogn/snjoflod/haettumat/es/eskifj_byggingarar.pdf; Lárus H. Blöndal og Vilmundur Jónsson (1970). Læknar á Íslandi I, bls. 162. Önnur útgáfa. Reykjavík: Læknafélag Íslands og Ísafoldarprentsmiðja.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 13. desember, 2023
Heimildaskrá
- 1Eskja 1. Örnefni við Eskifjörð. Sögur og sagnir af örnefnasvæðinu (1971). Sögurit Eskfirðinga I. bindi, bls. 59 og 181. Einar Bragi Sigurðsson sá um útgáfuna. Eskifirði: Byggðasögunefnd Eskifjarðar; Eskja 2. Eskifjarðarkaupstaður. Upphaf byggðar og fríhöndlunar (1977). Sögurit Eskfirðinga II. bindi, bls. 13. Einar Bragi Sigurðsson aflaði fanga og færði í letur. Eskifirði: Byggðasögunefnd Eskifjarðar; Kristín Ágústsdóttir (2001, maí). Byggingarár húsa á Eskifirði, bls. 6. Unnið fyrir Veðurstofu Íslands. Neskaupstað: Náttúrustofa Austurlands. Sótt 6. nóvember 2023 af https://www.vedur.is/gogn/snjoflod/haettumat/es/eskifj_byggingarar.pdf; Lárus H. Blöndal og Vilmundur Jónsson (1970). Læknar á Íslandi I, bls. 162. Önnur útgáfa. Reykjavík: Læknafélag Íslands og Ísafoldarprentsmiðja.
Deila færslu
Síðast uppfært 13. desember, 2023