Sænsku húsin í Hrísey. Sótt 16. janúar 2026 af https://www.hrisey.is/is/um-hrisey/myndir/gamlar-myndir/gamlar-myndir-fra-hrisey/gomul_0001.
Sænsku húsin í Hrísey. Sótt 16. janúar 2026 af https://www.hrisey.is/is/um-hrisey/myndir/gamlar-myndir/gamlar-myndir-fra-hrisey/gomul_0001.

Keflavíkurflugvöllur, Reykjanesi

Heiti: Sænsku húsin
Byggingarár: ≈ 1915
Upphafleg notkun: Pakkhús og íveruhús
Fyrsti eigandi: Alex Quirist
Aðrir eigendur:
≈ 1925: Ottó Tuliníus, Carls Tuliníus og Stefán Stefánsson – þ.e. Síldarstöðin í Hrísey
≈ 1939: Breski flugherinn ?
Upphafleg staðsetning:

Sandshorn, Hrísey

Fyrst flutt:

1939 á Keflavíkurflugvöll, Reykjanesi

Saga:

Um 1915 hóf Svíinn Alex Quirist frá Gautaborg að salta síld í Hrísey. Stöðin sem hann reisti var með stóru plani, bryggju og tveimur stórum húsum sem settu mikinn svip á þorpið, sem hafði myndast upp af svonefndu Sandshorni. Annað húsanna var pakkhús en hitt íbúðarhús, aðallega fyrir síldarstúlkur. Talið er að eitt sumarið hafi 88 stúlkur dvalið í húsinu. Húsin voru úr timbri, byggð úr furu, panelklædd að innan, 12 x 25 m að stærð.1Klara Teitsdóttir (2015). Saga sjávarútvegs í Hrísey 1850-1950. Verkefni unnið við Auðlindadeild Háskólans á Akureyri; Héraðsskjalasafnið á Akureyri (2016, 22. febrúar). Svíar salta síld í Hrísey. Sótt 16. janúar 2026 af https://www.herak.is/is/frettir/sviar-salta-sild-i-hrisey; Þorsteinn Þorsteinsson (2025, 9. Október). Tölvupóstur; Hrísey (2008, 24. Mars). Frábær mynd. Sótt 16. janúar 2026 af  https://www.hrisey.is/is/frettir/frabaer_mynd.

Hafís braut breyggjur stöðvarinnar 1918 en þær voru endurbyggðar. Ekki er vitað hve lengi Svíarnir söltuðu þarna en um miðjan þriðja áratuginn var stöðin komin í eigu Ottós Tuliníusar, Carls sonar hans og Stefán Stefánssonar. Víst er að þeir söltuðu í henni árið 1926. Þeir héldu þessum rekstri áfram til 1939 en þá komust þeir í þrot. Hríseyjarhreppur hafði þá hug á að kaupa aðstöðuna, en ekki varð af því og var stöðin rifin.2Hreinn Ragnarsson (2007). Söltunarstaðir á 20. öld, bls. 317. Í Silfur hafsins – Gull Íslands. Síldarsaga Íslendinga. 2. bindi, bls. 281-360. Reykjavík: Nesútgáfan.

Húsin voru endurreist á Keflavíkurflugvelli og voru með fyrstu byggingum sem þar risu.3Hrísey (2008, 24. Mars). Frábær mynd.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 16. janúar, 2026

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 16. janúar, 2026