Víkurbraut 22, Grindavík
Suðaustur af Járngerðarstöðum í Grindavík, skammt norðan Sjávarbrautar
Ásgarður við Víkurbraut 22 árið 2013. Eins og sjá má hefur húsið verið lengt til suðurs. Heimild: Efla verkfræðistofa (2015, janúar). Húsakönnun. Gamli bærinn í Grindavík. Grindavík: Grindavíkurbær.
Víkurbraut 22, Grindavík, í ágúst 2022. Ljósm.: Ja.is.
Saga:
Það er ekki óalgengt að erfitt sé að úrskurða um hvort hús hafi verið flutt eða hvort einungis hafi verið nýttir viðir úr eldra húsi til að reisa nýtt hús. Gömlu viðirnir voru jafnvel oft fluttir langa leið og bæta þurfti heilmiklu af timbri við því nýja húsið var stærra en það gamla.
Til dæmis er ekki gott að fullyrða hvort húsið Vellir í Járngerðastaðahverfi í Grindavík hafi flutt eða nýtt hús reist við Víkurbraut 22, því heimildum ber ekki saman um þetta.
Árið 1911 gekk Dagbjartur Einarsson (1876-1944) frá Garðhúsum í Grindavík að eiga Valgerði Guðmundsdóttur (1885-1967) frá Klöpp í Grindavík.1Brynjólfur Magnússon (1944, júní – júlí). Minningarorð. Dagbjartur Einarsson frá Ásgarði. Sjómannablaðið Víkingur, 6. árg., 6.-7. tbl., bls. 198. Í minningarorðum um Dagbjart sem skrifuð voru þegar hann lést árið 1944 segir m.a.
Reistu þau bú í Járngerðastaðahverfi, þar sem hét á Velli, og bjuggu þar til ársins 1926. En árið áður hafði gert flóð svo mikið og sjávarágang í Grindavík, að elztu menn mundu ekki eftir slíku. Flæddi langt upp fyrir túnin og byggðina við sjóinn, svo að hús fóru að hálfu leyti í kaf, en sum flutu af grunni. Misti Dagbjartur þá mikið af fé sínu og búslóð, er var í kjallara og á neðri hæð íbúðarhússins. Undi Dagbjartur þá eigi lengur á Velli, en færði hús sitt og reisti á ný á hærri og öruggari stað og nefndi Ásgarð og bjó þar svo til æfiloka.2Brynjólfur Magnússon (1944, júní – júlí).
Þessi frásögn verður skilin þannig að húsið Vellir, sem virðist hafa verið tvær hæðir á kjallara, hafi verið tekið í sundur og reist að nýju við Víkurbraut 22 í Grindavík. Væntanlega hefur þurft að endurnýja þá viði sem löskuðust í flóðinu 1925.
Í bókinni Það liggur í loftinu, sem fjallar m.a. um alnafna og barnabarn Dagbjarts Einarssonar, segir um húsflutninginn: „Dagbjartur afi gafst ekki upp þó að útihúsin hans færu nánast á vergang [í flóðinu 1925]. Hann ákvað að rífa húsið Velli, byggja það upp að nýju þar sem engin hætta væri á flóði. Húsið sitt nýja kallaði hann Ásgarð …“3Jónas Jónasson (2009). Það liggur í loftinu. Saga Birnu Óladóttur og Dagbjarts Einarssonar í Grindavík, bls. 74. Reykjavík: Skrudda.
Hins vegar segir í minningarorðum um Valgerði þegar hún lést árið 1967:
Valgerður og Dagbjartur byrjuðu búskap að Velli í Járngerðastaðahverfi og stundaði Dagbjartur sjómennsku jafnhliða. Hús þeirra var staðsett niður við sjóinn og útihús, garðar og vel hirt tún allt í kring. Lífið brosti við ungu hjónunum, efnilegur barnahópur var að komast á legg. En margt getur breyzt á einum degi. Hinn 19. janúar 1925 gerði fárviðri mikið með aftakabrimi sunnanlands. Í Grindavík varð brimið svo afskaplegt að sjór gekk á land meira en 150 metra upp fyrir venjulegt stórstraumsfjöruborð. Sjórinn tók marga báta, braut suma í spón en stórskemmdi aðra. Manntjón varð ekkert. Þetta varð mjög mikið eignatjón fyrir hjónin að Velli, hús, garðar, matarbirgðir, tún, allt eyðilagðist, allar kindurnar fórust utan ein, kúnum varð bjaigað. Eftir þetta réðist Dagbjartur í að byggja Ásgarð stórt og myndarlegt hús, enda veitti ekki af, börnin voru orðin 10.4Erla Wigelund (1967, 13. apríl). Valgerður Guðmundsdóttir – Minning. Morgunblaðið, 54. árg., 83. tbl., bls. 24.
Hvað sem því líður þá stóðu Vellir suðaustur af Járngerðarstöðum, skammt norðan Sjávarbrautar, eins og sjá má á meðfylgjandi korti Ómars Smára Ármannssonar.

Kort Ómars Smára Ármannssonar. Heimild: Járngerðarstaðir – Tyrkjaránið – Skilti. Sótt 4. nóvember 2026 af https://ferlir.is/jarngerdarstadir-tyrkjaranid-skilti-2/.
Eftir að þau Dagbjartur og Valgerður hurfu af sjónarsviðinu bjuggu tveir synir þeirra hjóna í húsinu, en nú (2026) er það ekki lengur í eigu fjölskyldunnar.
Geta má þess að þegar Dagbjartur hætti sjómennsku um fimmtugt eða liðlega það var honum treyst til að gefa sjófarendum leiðbeiningar úr landi um veðurhorfur og lendingaraðstæður, sem var bæði vandasamt og ábyrgðarmikið starf.5Ólafur E. Einarsson (1989, 18. ágúst). Dagbjartur í Ásgarði. Dagblaðið Vísir – DV, 79. og 15. árg., 186. tbl., bls. 24. Nánar má lesa um það hér: Víkurbraut 2, Grindavík – Húsaflutningar.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 4. nóvember, 2026
Heimildaskrá
- 1Brynjólfur Magnússon (1944, júní – júlí). Minningarorð. Dagbjartur Einarsson frá Ásgarði. Sjómannablaðið Víkingur, 6. árg., 6.-7. tbl., bls. 198. ↩︎
- 2Brynjólfur Magnússon (1944, júní – júlí). ↩︎
- 3Jónas Jónasson (2009). Það liggur í loftinu. Saga Birnu Óladóttur og Dagbjarts Einarssonar í Grindavík, bls. 74. Reykjavík: Skrudda. ↩︎
- 4Erla Wigelund (1967, 13. apríl). Valgerður Guðmundsdóttir – Minning. Morgunblaðið, 54. árg., 83. tbl., bls. 24. ↩︎
- 5Ólafur E. Einarsson (1989, 18. ágúst). Dagbjartur í Ásgarði. Dagblaðið Vísir – DV, 79. og 15. árg., 186. tbl., bls. 24. ↩︎
Deila færslu
Síðast uppfært 4. nóvember, 2026

