Túngata 7, Grindavík
Grunnur Hafnar á Þórkötlustaðanesi. Heimild: Landslagsmyndagrúppa Jóa Waage. Sótt 2. nóvember 2026 af Landslagsmyndagrúppa Jóa Waage | Höfn á Þórkötlustaðanesi við Grindavík, í það minnsta steyptur kjallari hússins | Facebook.
Saga:

Kort eftir Ómar Smára Ármannsson af Þórkötlustaðanesi. Heimild: Ómar Smári Ármannsson (2003, 1. júní). Á milli Kónga og Strýthóla. Viðtal við Pétur Guðjónsson frá Höfn. Sjómannadagsblað Grindavíkur, 15. árg., bls. 44-45.
Árið 1927 byggðu hjónin Guðjón Jónsson (1896-1980) og Guðbjörg Pétursdóttir (1905-1991) sem bæði voru ættuð úr Þórkötlustaðahverfinu í Grindavík, sér hús á austanverðu Þórkötlustaðanesi (Hópsnesi) og nefndu Höfn. Þar ólu þau upp fimm börn, Hauk (1927-1996), Guðmund (1928-2018), Pétur (f. 1931), Jón Ella (f. 1934) og Guðbjörgu.
Á Nesinu lifði fólk af sjómennsku og útgerð var frá bæjunum. Þangað kom fólk víða að á vertíð og bjó þá á viðkomandi bæjum. Stundum bjuggu allt að 25 manns í Höfn og hefur þá verið þröngt setinn bekkurinn.
Þegar stórhuga hafnargerð hófst í Járngerðarstaðahverfinu fluttu margir íbúanna þangað og sumir tóku húsin sín með sér. Höfn var flutt þangað árið 1947 og sett á lóð við Túngötu 7 í Grindavík. Þar stendur húsið enn og virðist vera lítið breytt ef marka má gamla mynd af húsinu (sjá hér að ofan).1Ómar Smári Ármannsson (2003, 1. júní). Á milli Kónga og Strýthóla. Viðtal við Pétur Guðjónsson frá Höfn. Sjómannadagsblað Grindavíkur, 15. árg., bls. 44-48.
Um lífið á Þórkötlustaðanesi má lesa betur hér: Þórkötlustaðanes I – Ferlir og Þórkötlustaðanes II – Ferlir
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. nóvember, 2026
Heimildaskrá
- 1Ómar Smári Ármannsson (2003, 1. júní). Á milli Kónga og Strýthóla. Viðtal við Pétur Guðjónsson frá Höfn. Sjómannadagsblað Grindavíkur, 15. árg., bls. 44-48. ↩︎
Deila færslu
Síðast uppfært 2. nóvember, 2026

