Sóleyjartunga, Byggðarhorni, Árborg
2022 að Byggðarhorni, Árborg
Sóleyjartunga er hægra megin á myndinni. Ljósm.: Víkurfréttir ehf. Sótt 5. nóvember 2026 af https://sarpur.is/is/collection/item/2621271/.
Sóleyjartunga sett á nýjan grunn á Læk í Holtum árið Ljósm. í eigu Lilju Bjarkar Andrésdóttur.
Saga:
Árið 1921 reistu hjónin Sveinn Arnoddsson (1893-1946) og Kristín Guðmundsdóttir (1885-1964) sér hús í Sandgerði sem þau nefndu Sóleyjartungu. Húsið stóð norðan Víkurbrautar, vestan við húsið sem er nú (2026) númer 3 við Víkurbraut. Þar bjuggu þau allan sinn búskap ásamt tveimur börnum, Jóni Björgvin (1923-1950) og Svönu Engilrós (1925-1999). Um tíma bjó þar einnig tengdadóttir og sonarsonur þeirra hjóna. Kristín flutti úr húsinu nokkrum árum áður en hún lést til að fara á elliheimili. Síðustu árin sem hún bjó í húsinu leigði hún eitt herbergi til að vera þar ekki ein.1Árborg. Skipulags- og byggingarnefnd 4. maí 2022; Jenný Olga Pétursdóttir (2026, 5. nóvember). Munnleg heimild; Hörður B. Kristinsson (2026, 27. október). Samantekt um Sóleyjartungu. Gögn frá Byggðasafn Suðurnesjabæjar.
Árið 2002 hafði Sandgerðisbær eignast húsið og vildi rífa það eða fjarlægja. Niðurstaðan varð sú að Sigurborg Sólveig Andrésdóttir (1967-2019) fékk húsið með því skilyrði að fjarlægja það. Hún lét flytja húsið í heilu lagi á flutningabíl austur á Læk í Holtum þar sem foreldrar hennar, Andrés Eyjólfsson (1942-2018) og Rakel Guðrún Aldís Benjamínsdóttir (1947-2006), höfðu búið frá árinu 1995. Þar notaði Sigurborg húsið sem sumarbústað sem hún kallaði Sóleyjartungu.
Þegar afkomendur þeirra þeirra Andrésar og Rakelar ákváðu að selja Læk var ákveðið að flytja Sóleyjartungu á lóð í Byggðarhorni, sunnan Selfoss, þar sem húsið stendur nú, en ekki hefur verið gengið endanlega frá því.2Lilja Björk Andrésdóttir (2026, 14. október). Munnleg heimild; Árborg. Skipulags- og byggingarnefnd 4. maí 2022.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 6. nóvember, 2026
Heimildaskrá
- 1Árborg. Skipulags- og byggingarnefnd 4. maí 2022; Jenný Olga Pétursdóttir (2026, 5. nóvember). Munnleg heimild; Hörður B. Kristinsson (2026, 27. október). Samantekt um Sóleyjartungu. Gögn frá Byggðasafn Suðurnesjabæjar. ↩︎
- 2Lilja Björk Andrésdóttir (2026, 14. október). Munnleg heimild; Árborg. Skipulags- og byggingarnefnd 4. maí 2022. ↩︎
Deila færslu
Síðast uppfært 6. nóvember, 2026

