Sæból, Skálum á Langanesi
1919 að Skálum á Langanesi
Saga:
Árið 1902 flutti Jón Guðmundsson (1868-1934) frá Sæbóli á Ingjaldssandi til Bakkagerðis, Borgarfirði eystri, og gerðist þar verkstjóri, kennari, útgerðarmaður og bóndi. Hann byggði sér þar hús sem hann kallaði Sæból eftir sinni heimabyggð. Líklega hefur það verið skömmu eftir að hann kom þangað með eiginkonu sinni, Margréti Elíasdóttur (1880-1965) frá Skálará í Dýrafirði.

Örin vísar á húsgrunn Sæbóls á Skálum. Heimild: Bryndís Zoëga og Guðný Zoëga (2025). Fornleifaskráning Langaness 1. Skálar og Skálaþorp. Sótt 25. ágúst 2026 af https://skraning.minjastofnun.is/Verkefni_3280_1.pdf.
Árið 1919 flutti Jón hús þeirra hjóna að Skálum á Langanesi og setti niður spölkorn fyrir ofan meginbyggðina í þorpinu. Þar hafði hann unnið frá 1913 sem verkstjóri fyrir Þorstein Jónsson útgerðarmann og kaupmann. Síðar fór Jón að gera út og versla fyrir eigin reikning, byggði m.a. stórt sjóhús og gerði út fjóra árabáta í félagi við Þorlák Árnason tengdason sinn. Verslunin var hins vegar heima í Sæbóli. Þar fór einnig skólahald fram. Því hefur eflaust oft verið þröng á þingi í húsinu, því þau Jón og Margrét eignuðust 10 börn, sem flest ólust þar upp.1Ármann Halldórsson, Sigmar Magnússon og Þorsteinn Bergsson (1974). Sveitir og jarðir í Múlaþingi, II. bindi, bls. 392-393. Egilsstaðir. Búnaðarsamband Austurlands; Friðrik G. Olgeirsson (2000). Langnesingasaga. II Saga byggðar á Langanesi frá 1918 til 2000, bls. 26-45. Reykjavík: Þórshafnarhreppur; Minning: Elísa Margrét Jónsdóttir (2014, 22. júlí). Morgunblaðið, 102. árg., 170. tbl., bls. 28.
Skálar eru á sunnanverðu Langanesi utanverðu. Þar myndaðist lítið þorp á fyrri hluta 20. aldar vegna nálægðar við gjöful fiskimið. Það dafnaði um tíma en laust eftir miðja öldina var staðurinn kominn í eyði.2Friðrik G. Olgeirsson (1998). Langnesingasaga I. Saga byggðar á Langanesi frá landnámi til 1918, bls. 22-23. Reykjavík: Þórshafnarhreppur.
Í upphafi aldarinnar voru Skálar með stærri verstöðvum hérlendis. Þegar mest var voru þar heimilisfastir 117 manns og á sumrin voru gerðir þaðan út hátt í 50 bátar. Þá tvöfaldaðist íbúafjöldinn og ríflega það og menn komu þangað til veiða allsstaðar af landinu, en vertíðin stóð aðeins yfir hásumarið, frá maí og til ágústloka. Hafnarskilyrði eru engin frá náttúrunnar hendi á Skálum og því ekki hægt að stunda þaðan vetrarvertíð.3Helgi Mar Árnason (1998, 17. maí). Skálar á Langanesi. Útgerðarstaður í auðn. Morgunblaðið, 86. árg., 110. árg., bls. B 8.
Haustið 1946 fluttu síðustu íbúar Skála burt og Skálar fóru í eyði.4Friðrik G. Olgeirsson (2000), bls. 51. „Flest timburhúsin voru tekin og flutt burt á næstu árum en eftir stóðu steyptir grunnarnir og torfbæirnir sem vitnisburður um það mannlíf sem eitt sinn var á Skálum.“5Friðrik G. Olgeirsson (2000), bls. 51. Ekki liggur fyrir hver örlög Sæbóls urðu.
Jón Guðmundsson bjó á Skálum til dauðadags 17. júní 1934 og er jarðsettur í grafreit sem gerður var á Skálabjargi, um 1,5 km frá þorpinu, árið 1924.6Friðrik G. Olgeirsson (2000), bls. 46.
Eftirtalin hús tengjast einnig Skálum á Langanesi:
Hús Þorsteins Jónssonar, Skálum
Bindindishúsið, Oddagötu, Seyðisfirði
Langanesvegur 16, Sólbakki, Þórshöfn
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 25. ágúst, 2026
Heimildaskrá
- 1Ármann Halldórsson, Sigmar Magnússon og Þorsteinn Bergsson (1974). Sveitir og jarðir í Múlaþingi, II. bindi, bls. 392-393. Egilsstaðir. Búnaðarsamband Austurlands; Friðrik G. Olgeirsson (2000). Langnesingasaga. II Saga byggðar á Langanesi frá 1918 til 2000, bls. 26-45. Reykjavík: Þórshafnarhreppur; Minning: Elísa Margrét Jónsdóttir (2014, 22. júlí). Morgunblaðið, 102. árg., 170. tbl., bls. 28. ↩︎
- 2Friðrik G. Olgeirsson (1998). Langnesingasaga I. Saga byggðar á Langanesi frá landnámi til 1918, bls. 22-23. Reykjavík: Þórshafnarhreppur. ↩︎
- 3Helgi Mar Árnason (1998, 17. maí). Skálar á Langanesi. Útgerðarstaður í auðn. Morgunblaðið, 86. árg., 110. árg., bls. B 8. ↩︎
- 4Friðrik G. Olgeirsson (2000), bls. 51. ↩︎
- 5Friðrik G. Olgeirsson (2000), bls. 51. ↩︎
- 6Friðrik G. Olgeirsson (2000), bls. 46. ↩︎
Deila færslu
Síðast uppfært 25. ágúst, 2026